Showing posts with label framtíðin. Show all posts
Showing posts with label framtíðin. Show all posts

Friday, February 11, 2011

þegar Tískublogginu gafst næstum því tækifæri á að sauma sín eigin merki í föt með aðstoð IceFashion Netverslunar

Hola lovers,

Ég held ég hafi áður rætt um það hér hvernig lífið getur komið manni á óvart. Og þegar manni bjóðast óvænt tækifæri þá finnst mér að maður eigi undantekningarlaust að slá til.

Þið getið því ímyndað ykkur gleði mína þegar Tískublogginu bárust eftirfarandi skilaboð á Facebook.

Titill: Hæhæ
Frá: IceFashion Netverslun, 2. febrúar 16:07
Samuel heiti ég frá ice Fashion .
viltu sauma þitt eigin merki föt ? ég get hjálpa þér
við eigum saumastofa sem gerir alt frá A til Z með logo alt .
ef þú att ahuga hafðu samband
eg er i frakklandi ,
bk
samuel

Ég svaraði samstundis.

Titill: Hæhæ
Frá: Tískublogg, 2. febrúar 16:22
Sæll Samúel og þakka þér kærlega fyrir bréfið!
Ég hef raunar afar mikinn áhuga á því að sauma mín eigin merki í föt.
Ég sé fyrir mér eitthvað sem líkist beikoni við fyrstu sýn, en reynist við nánari skoðun vera eitthvað annað og meira, a.m.k. í augum þeirra sem búa yfir næmi og siðfágun.
Hvað myndi slíkt lógó kosta?
Ég er á Íslandi.
xoxo
-h

Titill: Hæhæ
Frá: IceFashion Netverslun, 2. febrúar 16:25
hæhæ
tak fyrir aðð svara . sko ég er fata skerari og honnuður .
og eigi eigin saumastofa i evropu .
og plus við getum gert alt
logo . sem setur bæði inni föt . kassa merki utan fot fyrir verð
bua til snið - plus Gradation -
og alt sem anar kemur með
eg er að koma til island á morgun kvold þá getur hafa samband við mig ef þu vilit
eg er að stopa i nokkra dagar eingongu .
bk
samuel gsm. 8457869

Titill: Hæhæ
Frá: Tískublogg, 2. febrúar 19:37
Hæ,
Hvað kemur Anar með?
Og getur þú vinsamlegast sent mér lógótillögur svo ég geti borið þær undir kettina mína? Þeir eru listrænir stjórnendur Tískubloggsins og vilja hafa klærnar í öllum ákvörðunum.
xoxo
-h

Titill: Hæhæ
Frá: IceFashion Netverslun, 3. febrúar 11:27
hæ reyndar það get ég ekki gert logo ............. það er frekari auyglisniga stofu vinnu . okkar viðskiptamen gefur okkur tilbuin logo og við gerum
Merki ur polyester eða ployamide efni með eða silkiprent eða embrodery.
reyndar varðandi honunn . það lika er nog fyrir okkur að gefa mér mynd af td kjol sem þér likar og við gerum eins .
eg er að fljuga heim i kvold
á morgun getur ringt i mig ef þu vilt ,
bless
8457869
Sönnunargagn #1. Smellið til að stækka.

Sönnunargagn #2. Smellið til að stækka.


Ég hringdi ítrekað í hann daginn eftir en það svaraði aldrei.

Þar fór draumur minn um að sauma mín eigin merki í föt, en ég get þó allavega sagt með stolti að þegar kom að því að hrökkva eða stökkva hafi ég þó að minnsta kosti reynt að láta drauma mína rætast.

xoxo
-h

Friday, January 14, 2011

lógósamkeppni og mögulegar breytingar mögulega í vændum

Hola lovers!

Mér var bent á að Tískubloggið vantaði lógó, en lógó er að sjálfsögðu bráðnauðsynlegt til að ná heimsyfirráðum, en það er náttúrulega á stefnuskránni þannig að ég ákvað að bæta úr þessu og blása til lógósamkeppni!

Einsog þið vitið er ég einstaklega hæfileikarík í hönnun (sem öðru) og skellti í eitt sjálf og það er að sjálfsögðu rosalega flott, en ég hef áhuga á að fá tillögur að lógóum frá aðdáendum mínum líka, og ef þátttakan verður góð höfum við kannski bara þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta.

Vinsamlegast sendið tillögur ykkar á tiskublogg@gmail.com.

Glæsileg tillaga að lógói – þó ég segi sjálf frá.

Og svo að öðrum fréttum.

Tískubloggið fékk í gær æsispennandi tilboð um að færa sig yfir á ónafngreint vefrit, og gegn greiðslu meira að segja.

EN, þá fengi bloggið nýja slóð, sem mér þykir afar, afar miður, því vefslóðin http://tiskublogg.blogspot.com/ hefur frá upphafi verið helsta stolt og flaggskip Tískubloggsins.
Ég er því enn að bræða með mér hvort ég eigi að taka tilboðinu eða ekki.

Æh hvað finnst ykkur?

Endilega verið nú dugleg að kommenta og segið mér hvað ykkur finnst, lovers.

xoxo
-h

ÖPPDEIT

Ég er búnað föndra aðra útgáfu af lógóinu OG fá sendar 3 tillögur til viðbótar frá aðdáendum mínum, sem verða birtar síðar. Ég ætla engu að síður að birta mína eigin tillögu #2 nú, þó mikilfengleiki hennar gæti orðið til þess að einhverjir  þori ekki að senda sínar tillögur inn af hræðslu við að þær standist ekki samanburðinn. En ég vil hvorteðer ekkert tillögur frá soleiðs fólki þannig að hér er tillaga #2!

Verði ykkur að góðu.