"Chelsea Charmes er gríðarlega hláturmild kona - en það sem hún á meira af en hlátri er barmurinn."
-Ritstjórn Menn.is, úr greininni Brjóst og stór snjór (eða öfugt) - Myndband.
Showing posts with label kvót. Show all posts

Sunday, May 15, 2011
Tuesday, May 10, 2011
inspirational kvót dagsins
„Ætli maður verði ekki að hugsa um sjálfan sig. Þannig brjóstin yrðu fyrir valinu.“
-Steinunn Laufey, í viðtali í greininni Gella vikunnar á Menn.is.

Sunday, May 1, 2011
inspirational kvót dagsins - eða enn frekari sönnun þess allar mæður heimsins eru í raun einstæðar
"Þær mæður sem hafa of mikið að gera þurfa aðstoð frá leikskólum, ömmum, barnapíum, ræstitækni o.s.frv. til að geta hvílst, endurnærst og komið jafnvægi á líf sitt."
-Melkorka Kristinsdóttir, í greinni Ofhjálparar á Bleikt.is.
[Kvót dagsins rennir annars enn frekari stoðum undir þá kenningu mína sem ég hef viðrað áður hér á blogginu, um að allar mæður heimsins séu í raun einstæðar, því þegar kemur að því að halda heimili og ala upp börn eru karlmenn sannarlega verri en enginn.]
xoxo
-h

Friday, April 29, 2011
inspirational kvót dagsins
Hola lovers,
Það eru svo mörg gullkorn í þessari grein að ég gat ekki valið bara eitt. Í staðinn valdi ég fjögur.
1. „Við erum allar viðkvæmar og leitumst eftir karlmanni til þess að passa okkur“
2. „Hvaða faðir sem er passar uppá dóttur sína eins og slípaðan demant, ekkert fær að rispa hann“
3. „Eitt er víst, að herramennska heillar konur og gefur karlmönnum auka sjarma sem hefur þau áhrif á okkur að það þarf að skúra gólfið á eftir okkur.“
4. „A gentleman is simply a patient wolf“
-Snædís Ragnarsdóttir, í greininni Hvað varð um herramennskuna.

Monday, April 25, 2011
bjargvætturinn í gáttinni
Hola lovers,
Þið vitið ekki hvað það fyllir mig mikilli gleði, elsku konur, að fá að benda ykkur á eftirfarandi grein, og það á þessum degi, af öllum dögum!
Því sjá, ég boða ykkur mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því yður er í dag frelsari fæddur, sem heitir Ágúst Halldórsson og skrifar á Bleikt.is. Og að grein hans Flíspeysa = enginn karlmaður, skuli birtast nú á páskum, þegar Jesúm sjálfur fórnaði sér svo við syndararnir gætum óhikað gengið inní guðsríki, er sko alls engin tilviljun.
Þið getið rétt ímyndað ykkur gleði mína, þegar ég rakst á greinina á Blogggáttinni, ýtti á linkinn, las og upp rann fyrir mér ljós: Hér er bjargvættur allra kvenna ljóslifandi kominn!
Líktog Jesúm hikaði ekki við að umgangast hórkvendi, holdsveikisjúklinga og farísea, teygir Ágúst fram ástúðlega arma sína til þeirrar allra fyrirlitlegustu í okkar þjóðfélagi; flíspeysuklæddu konunnar. Og í stað þess að dæma hana sýnir Ágúst ást og skilning þegar hann umvandar hana af ákveðni og festu og bendir henni föðurlega á villu síns vegar. Líktog Jesúm vissi forðum, þá veit hann að flíspeysuklædda konan vill í hjarta sínu vel, en sökum hirðuleysis, leti og sjálfsbirgingsháttar þá hefur hún syndgað gegn karlkyninu.
Og syndir flíspeysuklæddu konunnar eru margar:
En afhverju telur Ágúst þessar syndir upp? Afhverju skrifar hann pistilinn? Afhverju leyfir hann syndurunum ekki að hírast flíspeysuklæddum og kokkáluðum í forarvilpru syndar sinnar?
Því Ágústi stendur ekki á sama. Hann vill "koma því á framfæri að það er ekkert samasem merki fyrir konu að þegar hún er annað hvort gift eða trúlofuð að þær megi bæta á sig, klæða sig í íþróttagalla og hætta að sjá um sig."
Og Ágúst er maður orðsins. Hann hefur unun af því að hlýða á rökfimi og orðaskak jafningja, en hin flíspeysuklædda kona mun alltaf verða undir í rökræðum, og þarmeð svipta hann ánægjunni af því að hlýða á óratoríska snilld, því "kona sem hefur haft sig til hefur mikla yfirburði í samræðum við aðrar konur sem eru ekki eins glæsilegar til fara".
Og afhverju er hin flíspeysuklædda kona fyrirfram dæmd til þess að bera skarðan hlut frá borði í samræðum við kynsystur sínar? Því "ekkert [er] konum eðlislægra en að finna kvenlega veikleika annarra kynsystra sinna og níðast á þeim". Og Ágúst er ennfremur "þeirrar trúar að það sé ekki til grimmara dýr í heiminum en kona þegar hún ætlar að ná sínu fram, hvort svo sem það sé af hefndarhug, deilum eða einbeittum brotavilja".
Pistlinum lýkur Ágúst svo á örlítilli hugvekju, sem mér finnst réttast að deila með ykkur án nokkurra málalenginga af minni hálfu, til að tryggja að orð mín saurgi ekki þann kristaltæra sannleik sem niðurlag hans geymir.
Ég get ekki annað en sagt takk, Ágúst, bjargvættur minn. AMEN.
xoxo
-h
Þið vitið ekki hvað það fyllir mig mikilli gleði, elsku konur, að fá að benda ykkur á eftirfarandi grein, og það á þessum degi, af öllum dögum!
Því sjá, ég boða ykkur mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum, því yður er í dag frelsari fæddur, sem heitir Ágúst Halldórsson og skrifar á Bleikt.is. Og að grein hans Flíspeysa = enginn karlmaður, skuli birtast nú á páskum, þegar Jesúm sjálfur fórnaði sér svo við syndararnir gætum óhikað gengið inní guðsríki, er sko alls engin tilviljun.
![]() |
| Flísefni: 100% pólýester - 100% óhamingja |
Líktog Jesúm hikaði ekki við að umgangast hórkvendi, holdsveikisjúklinga og farísea, teygir Ágúst fram ástúðlega arma sína til þeirrar allra fyrirlitlegustu í okkar þjóðfélagi; flíspeysuklæddu konunnar. Og í stað þess að dæma hana sýnir Ágúst ást og skilning þegar hann umvandar hana af ákveðni og festu og bendir henni föðurlega á villu síns vegar. Líktog Jesúm vissi forðum, þá veit hann að flíspeysuklædda konan vill í hjarta sínu vel, en sökum hirðuleysis, leti og sjálfsbirgingsháttar þá hefur hún syndgað gegn karlkyninu.
Og syndir flíspeysuklæddu konunnar eru margar:
- Hún málar sig á föstudögum og laugardögum.
- Hún vaknar á sunnudögum.
- Hún skellir sér í íþróttabuxur og flíspeysu.
- Hún lyftir upp hárinu í flýti og setur í teygju.
- Hún klæðir sig jafnvel svona í vinnunni, komist hún upp með það.
- Hún gerir sér ekki grein fyrir því að fegurðin er það fyrsta sem hún fær frá náttúrunni, en fegurðin er einnig það fyrsta náttúran tekur frá henni.
- Hún giftist.
- Hún bætir á sig.
- Hún klæðir sig í íþróttagalla.
- Hún hættir að sjá um sig líkamlega.
- Hún klæðist Cintamani-peysu.
- Hún klæðist bleikum náttbuxum.
- Hún er með töff klippingu.
- Hún undrast að maður hennar taki að sækja á önnur mið.
En afhverju telur Ágúst þessar syndir upp? Afhverju skrifar hann pistilinn? Afhverju leyfir hann syndurunum ekki að hírast flíspeysuklæddum og kokkáluðum í forarvilpru syndar sinnar?
Því Ágústi stendur ekki á sama. Hann vill "koma því á framfæri að það er ekkert samasem merki fyrir konu að þegar hún er annað hvort gift eða trúlofuð að þær megi bæta á sig, klæða sig í íþróttagalla og hætta að sjá um sig."
![]() |
| ÁSJÓNA SYNDARINNAR |
Og Ágúst er maður orðsins. Hann hefur unun af því að hlýða á rökfimi og orðaskak jafningja, en hin flíspeysuklædda kona mun alltaf verða undir í rökræðum, og þarmeð svipta hann ánægjunni af því að hlýða á óratoríska snilld, því "kona sem hefur haft sig til hefur mikla yfirburði í samræðum við aðrar konur sem eru ekki eins glæsilegar til fara".
Og afhverju er hin flíspeysuklædda kona fyrirfram dæmd til þess að bera skarðan hlut frá borði í samræðum við kynsystur sínar? Því "ekkert [er] konum eðlislægra en að finna kvenlega veikleika annarra kynsystra sinna og níðast á þeim". Og Ágúst er ennfremur "þeirrar trúar að það sé ekki til grimmara dýr í heiminum en kona þegar hún ætlar að ná sínu fram, hvort svo sem það sé af hefndarhug, deilum eða einbeittum brotavilja".
Pistlinum lýkur Ágúst svo á örlítilli hugvekju, sem mér finnst réttast að deila með ykkur án nokkurra málalenginga af minni hálfu, til að tryggja að orð mín saurgi ekki þann kristaltæra sannleik sem niðurlag hans geymir.
Þessi flíspeysa getur verið þröskuldur þess hvort þú lifir hamingjusömu lífi með fjögurra manna fjölskyldu í Garðabænum eða leigir kjallaraíbúð í Breiðholtinu þar sem þú lifir þínu innihaldslausa lífi nema um helgar þegar þú dustar rykið af kynþokkanum og ferð á veiðar innan um sauðdrukkna einstaklinga.Svo mörg voru þau orð.
Látið ekki flíspeysuna skemma líf ykkar.
Ég get ekki annað en sagt takk, Ágúst, bjargvættur minn. AMEN.
xoxo
-h
inspirational kvót dagsins
"Allir foreldrar ættu að eiga iPad"
-Margrét, úr greininni TÆKNI: Podkast í iPaddinn á Pjattrófusíðunni.

Sunday, April 24, 2011
inspirational kvót dagsins
"Þegar [bróðir minn] drekkur allt of mikið þá á hann það til að reyna að selja mig."
-Áslaug Sóllilja, úr greininni Að lenda í "cock blocki" af meðleigjanda sínum á Menn.is.

Thursday, April 21, 2011
inspirational kvót dagsins
"[Konur] eru svo gleymnar á lykla og svoleiðis hluti þegar þær eru að mála sig fyrir djammið."
-Höfundur óþekktur, úr greininni Konur, konur, konur! á Menn.is.

Wednesday, April 20, 2011
inspirational kvót dagsins
"Margar konur eru mjög erfiðar þegar kemur að fullnægingu"
-Bella, Pjattrófa, í pistlinum KYNLÍF: Sjálfselska í rúminu - TURN OFF.

Monday, March 7, 2011
brothætt sjálfsmynd karlmanna
Hola lovers,
Ég vona að þið afsakið bloggleysið, en sannleikurinn er sá að ég hef verið iðin við að skrifa lífstílsbókina sem kemur út í haust, og það er bara þannig að þegar maður hefur mikið að gera við að raka sig að neðan, blogga, skoða sig í spegli og skrifa bók þá verður bara eitthvað undan að láta og því miður var það bloggið (afþví ég kann að forgangsraða).
En í lífstílsbókinni fjalla ég einmitt töluvert um brothætta sjálfsmynd karlmanna og varð því glöð þegar ég rakst á þessa grein, því höfundur hennar er á svipuðum slóðum í hugvekju sinni og ég er í minni lífstílsbók.
Því þó karlmenn séu nær undantekningarlaust sterkari, gáfaðri og hæfileikaríkari en kvenfólk, þá eru engu að síður dæmi um það að sjálfsmynd þeirra sé í öfugu hlutfalli við atgervið.
Og þá kemur það í hlut kvenna að taka saman höndum og styrkja hana.
Hún Klara Egilson hittir nefnilega naglann á höfuðið í grein sinni þegar hún skrifar: „Þú mátt aldrei vera sterkari en hann. Það gerir bara lítið úr manninum.“
Eiginlega er það sárara en tárum taki að hún finni sig knúna til að leggja áherslu á þessa staðreynd sem ætti að vera viðtekin sannindi, en ætli það að hún telji þörf á því að taka þetta sérstaklega fram sýni ekki bara að enn er rík ástæða til að brýna þetta fyrir ungum og óreyndum konum sem hafa ekki fengið nægilega gott uppeldi (og við þurfum að horfast í augu við þá nöturlegu staðreynd að því miður eru til stúlkubörn sem eru aldar upp af geðsjúkum einstaklingum sem innræta þeim annan og verri hugsunarhátt (en ég bið ykkur að hafa í huga að ekki er við stúlkurnar sjálfar að sakast, heldur foreldra þeirra (og að vissu leyti samfélagið (og þar með okkur sjálf, fyrir að láta þennan ósóma sem femínisminn er viðgangast (þannig að lítið í eigin barm, áður en þið dæmið))))).
En styrkur felst í ýmsu, s.s. ósérhlífni, hæfileikum, heiðarleika, hárri stöðu, gáfnafari, kímnigáfu og svo mætti lengi telja. Það er því óhætt að slá því föstu að í greininni hafi Klara ekki eingöngu átt við líkamlega yfirburði og því má heimfæra tilvitnunina í Klöru yfir á flest allt sem jákvætt má telja í fari manneskju.
Ég finn mig knúna til að leggjast á sveif með Klöru og brýna eftirfarandi fyrir kynsystrum mínum, og sérstaklega saklausum fórnarlömbum kvenrembunnar (femínismans):
Konur skulu ávallt gæta þess að vera ekki gáfaðri, hæfileikaríkari, heiðarlegri, fyndnari eða hærra settari en karlmenn í kringum þær, og fyrir alla muni skulu þær forðast að vera með hærri laun en þeir.
Því það gerir bara lítið úr manninum.

Tuesday, October 12, 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)