Hola lovers,
Ég held að Vefpressan ehf. sé uppáhaldsfyrirtækið mitt. Það er vegna þess að Vefpressan ehf. á flesta netmiðla á Íslandi (þ.m.t. Bleikt.is, sem er uppáhaldsheimasíðan mín) og fyrirtækið hefur unnið mjög markvisst að því að draga úr fréttaflutningi og einbeita sér frekar að því að ala upp íslenskt kvenfólk, móta skoðanir þeirra, segja þeim hvað þær eiga að kaupa (í netverslun sem Vefpressan ehf. á), segja þeim hvernig þær eigi að hegða sér á Facebook, segja þeim hvernig þær eigi að hegða sér í kringum karlmenn, segja þeim hvernig þær eigi að klæðast, verja feminískan rétt þeirra til að fá sér sílikon og ganga á háum hælum og síðast en ekki síst hefur Vefpressan ehf. innrætt konum þann algilda sannleika að það tekur enginn mark á því sem konur skrifa nema pistlinum fylgi mynd þarsem sést í a.m.k. 2/3 hluta af brjóstunum á þeim.
Og þá er að sjálfsögðu ónefnt þegar Vefpressan ehf. keypti vefritið Eyjuna og gerði sér lítið fyrir og mokaði út öllum konum þar, enda höfðu margir þær grunaðar um að vera kvenrembur (femínistar). Fyrir það löðurmannlega verk á Vefpressan góðar þakkir skildar, einsog ég fjallaði ítarlega um í þessari færslu.
Miðlar Vefpressunnar ehf. taka uppeldishlutverk sitt alvarlega og starfsfólkið er óþreytandi við að koma með ábendingar til kvenna um hvað þær eiga að elska (svar: töskur og skó), hvernig þær eiga að vilja vera í sumar (svar: sumarlegar og sætar) og hvernig þær eiga að borða til að léttast (svar: svona og svona og svona en ekki svona).
Vefpressunni ehf. er líka mjög umhugað um birtingarmynd kvenna á internetinu og fylgist greinilega grannt með því ef einhverjar óæskilegar konur birta myndir sem smætta kvenkynið einsog það leggur sig. Því auðvitað eiga konur sem uppfylla ekki þær ströngu útlitskröfur sem Vefpressan ehf. gerir til kvenna ekkert að vera að birta myndir af sér af netinu. Því það er einfaldlega „bara óhugnalegt“, svo ég vitni í grein sem birtist nýverið á Pressunni.
Og myndirnar af konunum sem fylgja eru sannarlega óhugnalegar og hljóta að fylla hvern þann sem skoðar ógeði.
Þar má sjá hvorki meira né minna en 10 myndir sem konur dirfðust að birta af sér á opinberum samskipta- og spjallvefum!
Bíræfnin í þessum konum gengur náttúrulega jafn mikið fram af mér og blaðamanni Pressunnar.
ATH AÐ VIÐKVÆMIR ERU VARAÐIR VIÐ ÞVÍ AÐ SKOÐA ÓHUGNAÐINN Í MYNDEFNINU SEM BIRTIST HÉR AÐ NEÐAN.
Í grein Pressunnar kemur fram að á internetinu finnist t.d. konur yfir kjörþyngd sem hika ekki við að birta myndir af sér þarsem þær eru léttklæddar:
Rauðhærð kona hefur sett sjálfmynd á netið og kært sig kollótta um þau áhrif sem þessi óhugnaður getur haft á góðborgara:
Og síðast en ekki síst þá má í greininni finna dæmi þess að jafnvel hafi gráhærð kona birt mynd af sér á brjóstahaldaranum einum fata:
Ég veit að þið eruð jafn sjokkeruð og ég, lovers.
En við getum þó alltént þakkað fyrir að starfsfólk Vefpressunnar ehf. sé sífellt á tánum og alltaf á vaktinni.
Við skulum bara vona að einhverjar konur yfir kjörþyngd, rauðhærðar konur og gráhærðar lesi þessa frétt og átti sig á óhugnaðinum sem útlit þeirra er og þær sjái í kjölfarið sóma sinn í því að hlífa öðru fólki við því að þurfa að horfa á þær.
xoxo
-h
Showing posts with label tískuvaktin. Show all posts
Showing posts with label tískuvaktin. Show all posts
Tuesday, July 5, 2011
Monday, January 31, 2011
enn frekar af hártísku ungbarna
Hola lovers,
Hárleysi ungbarna er greinilega mun útbreiddara og algengara vandamál en mig hefði órað fyrir. Það er gott að Húsmóðir helvítis tók af skarið og opnaði umræðuna fyrir þetta viðkvæma mál hér í gestapósti, því það eru greinilega ýmis úrræði í boði fyrir þá sem eru tilbúnir að viðurkenna vandamálið og leita sér í kjölfarið hjálpar.
Velviljaðir lesendur hafa bent síðunni á lausnir sem henta ef til vill efnameira fólki, eða þeim sem eru ekki nægilega handlagnir til að nýta sér ráðleggingar Húsmóðurinnar.
Ef þú ert ein/n af þeim sem hefur tíu þumalfingur og ekkert ímyndunarafl þá gæti þetta verið eitthvað fyrir þig og sköllótta ungbarnið þitt.
Heklaðar hárkollur
Þessar einstaklega fallegu, hlýju og endingargóðu hárkollur má fá á Ebay fyrir aðeins 45 Bandaríkjadali.
Nánari upplýsingar og pantanir hér.
Hárkollur með áföstu hárbandi
Þessar þokkafullu og elegant ungbarnahárkollur eru gerðar úr efni sem heitir kanekalon og innra byrðið er úr mjúku flísefni sem fer vel með viðkvæma húð. Þær kosta u.þ.b. 30 Bandaríkjadali, að viðlögðu sendingargjaldi, en það þykir mér vera lágt verð fyrir að þurfa aldrei aftur að skammast sín fyrir barnið sitt!
Nánari upplýsingar og pantanir hér.
Ég vil þakka þeim lesendum sem sendu ábendingarnar kærlega fyrir.
Það er gott að vita af fólki einsog ykkur sem tekur samfélagslega ábyrgð sína á ófríðum ungbörnum alvarlega og lætur sig málin varða.

Sunday, January 16, 2011
verður staðgöngumæðrun nýjasta tískan?
Hola lovers!
Bloggfærslur um staðgöngumæðrun virðast vera í tísku núna (einsog þær voru að því er virðist líka árið 2007, þið vitið hvernig þetta virkar, tískan fer í hringi) og þarsem Bleikt.is hefur meira að segja birt pistil um málið fannst mér að Tískubloggið gæti ekki látið sitt eftir liggja.
Og Tískubloggið, líktog pistlahöfundur Bleikt.is, er afar hlynnt því að staðgöngumæðrun fátækra gegn greiðslu þeirra ríkari verði lögleidd hér á landi. Að sama skapi finnst mér sjálfsagt að Íslendingar með eitthvað á milli handanna geti nýtt sér líkama fátækra kvenna í þriðja heims ríkjum til barnaframleiðslu, hvort sem konurnar ganga með þeirra börn eða þeir kaupa erfaefnið af þeim í leiðinni líka.
Því það eru mannréttindi ríkra að fá að eignast börn. Þetta er réttur sem ætti að mínu mati að vera bundinn í stjórnarskrá (alveg einsog réttur ófríðra karlmanna til kynlífs ætti að vera bundinn í stjórnarskrá, en það er einmitt ástæðan fyrir því að samfélagið þarfnast vændiskvenna, því einhver verður að fórna sér fyrir öll þessi einmana karlmenni, þeir hafa þarfir, þið vitið).
Þið vitið auðvitað líka að ríkt fólk á peninga afþví að það er betra en fátæka fólkið. Það er gáfaðra, betur innrætt, betur menntað og meira virði, og virði þeirra í veröldinni endurspeglast í efnahag þeirra. Þetta er beisikk kapítalísk kenning, sem fyrir löngu hefur verið sönnuð, og því á ríka fólkið skilið að eignast börn þegar það vill, frekar en þeir sem eru ófrjóir en hafa ekki efni á því að borga fyrir þjónustuna.
Í Vestrænum ríkjum hefur mikið verið rætt um tenginguna sem móðir myndar við ófætt barn sitt og öfugt, en sem betur fer þá þekkist slíkt ekki í þriðja heims ríkjum. Fátækum þykir heldur hvort sem er ekkert jafn vænt um börnin sín og ríku fólki þykir, því fátækir eru svo vanir því að missa þau úr vosbúð og hungri.
Einhverjir hafa bent á að þessar fátæku konur í þriðja heims ríkjum fái kannski ekki að ráða þessu sjálfar, heldur séu það mögulega mennirnir þeirra sem skipi þeim að ganga með börn fyrir annað fólk og hirði svo peninginn sjálfir, en ég sé ekki hvernig það geta verið mótrök gegn staðgöngumæðrun gegn greiðslu. Því einsog allir vita á eiginmaður ávallt rétt á ótakmörkuðum aðgangi að líkama konu sinnar, og hann ræður hvað hann gerir við hann.
Svo er líka einn punktur sem mér finnst alveg vanta í umræðuna, og það er að meðgöngu fylgir gjarnan slit á maga og brjóstum, og það ætti að vera sjálfsagt að konum sem er annt um líkama sinn en vilja samt fjölga mannkyninu standi til boða að fá einhvern til að gera þetta bara fyrir sig.
Eins fylgir því viss áhætta að ganga með barn og það er alltaf ein og ein kona sem deyr við barnsburð, og mér finnst eðlilegt að fólk sem á peninga fái einhvern til að taka áhættuna fyrir sig. (Ég meina, það er ástæða fyrir því að í bíómyndum er fenginn stöntmaður til að leika áhættuatriðin fyrir stjörnuna, því stjarnan er miklu verðmætari einstaklingur. Og stöntmaðurinn er oftast í betri þjálfun líka, og á sama hátt eru þessar fátæku konur í miklu betri þjálfun við að eignast börn.)
Að vísu eru töluvert meiri líkur á því að látast við barnsburð í þriðja heims ríki, en það búa líka miklu fleiri þar en á Íslandi þannig að þeir mega alveg við smá afföllum.
xoxo
-h
Bloggfærslur um staðgöngumæðrun virðast vera í tísku núna (einsog þær voru að því er virðist líka árið 2007, þið vitið hvernig þetta virkar, tískan fer í hringi) og þarsem Bleikt.is hefur meira að segja birt pistil um málið fannst mér að Tískubloggið gæti ekki látið sitt eftir liggja.
Og Tískubloggið, líktog pistlahöfundur Bleikt.is, er afar hlynnt því að staðgöngumæðrun fátækra gegn greiðslu þeirra ríkari verði lögleidd hér á landi. Að sama skapi finnst mér sjálfsagt að Íslendingar með eitthvað á milli handanna geti nýtt sér líkama fátækra kvenna í þriðja heims ríkjum til barnaframleiðslu, hvort sem konurnar ganga með þeirra börn eða þeir kaupa erfaefnið af þeim í leiðinni líka.
Því það eru mannréttindi ríkra að fá að eignast börn. Þetta er réttur sem ætti að mínu mati að vera bundinn í stjórnarskrá (alveg einsog réttur ófríðra karlmanna til kynlífs ætti að vera bundinn í stjórnarskrá, en það er einmitt ástæðan fyrir því að samfélagið þarfnast vændiskvenna, því einhver verður að fórna sér fyrir öll þessi einmana karlmenni, þeir hafa þarfir, þið vitið).
Þið vitið auðvitað líka að ríkt fólk á peninga afþví að það er betra en fátæka fólkið. Það er gáfaðra, betur innrætt, betur menntað og meira virði, og virði þeirra í veröldinni endurspeglast í efnahag þeirra. Þetta er beisikk kapítalísk kenning, sem fyrir löngu hefur verið sönnuð, og því á ríka fólkið skilið að eignast börn þegar það vill, frekar en þeir sem eru ófrjóir en hafa ekki efni á því að borga fyrir þjónustuna.
Í Vestrænum ríkjum hefur mikið verið rætt um tenginguna sem móðir myndar við ófætt barn sitt og öfugt, en sem betur fer þá þekkist slíkt ekki í þriðja heims ríkjum. Fátækum þykir heldur hvort sem er ekkert jafn vænt um börnin sín og ríku fólki þykir, því fátækir eru svo vanir því að missa þau úr vosbúð og hungri. Einhverjir hafa bent á að þessar fátæku konur í þriðja heims ríkjum fái kannski ekki að ráða þessu sjálfar, heldur séu það mögulega mennirnir þeirra sem skipi þeim að ganga með börn fyrir annað fólk og hirði svo peninginn sjálfir, en ég sé ekki hvernig það geta verið mótrök gegn staðgöngumæðrun gegn greiðslu. Því einsog allir vita á eiginmaður ávallt rétt á ótakmörkuðum aðgangi að líkama konu sinnar, og hann ræður hvað hann gerir við hann.
Svo er líka einn punktur sem mér finnst alveg vanta í umræðuna, og það er að meðgöngu fylgir gjarnan slit á maga og brjóstum, og það ætti að vera sjálfsagt að konum sem er annt um líkama sinn en vilja samt fjölga mannkyninu standi til boða að fá einhvern til að gera þetta bara fyrir sig.
Eins fylgir því viss áhætta að ganga með barn og það er alltaf ein og ein kona sem deyr við barnsburð, og mér finnst eðlilegt að fólk sem á peninga fái einhvern til að taka áhættuna fyrir sig. (Ég meina, það er ástæða fyrir því að í bíómyndum er fenginn stöntmaður til að leika áhættuatriðin fyrir stjörnuna, því stjarnan er miklu verðmætari einstaklingur. Og stöntmaðurinn er oftast í betri þjálfun líka, og á sama hátt eru þessar fátæku konur í miklu betri þjálfun við að eignast börn.)
Að vísu eru töluvert meiri líkur á því að látast við barnsburð í þriðja heims ríki, en það búa líka miklu fleiri þar en á Íslandi þannig að þeir mega alveg við smá afföllum.
xoxo
-h
Tuesday, December 7, 2010
Monday, November 22, 2010
ég get ekki beðið!
Hola lovers,
Ég er loksins, eftir mikið internetráp, búin að velja mér áramótaskó! Pantaði þá áðan og ég get ekki beðið eftir að fá þá!
Einsog þið sjáið eru þeir inspíreraðir af Alien, einu helsta meistarverki síðari kynslóða (þó persónulega sé ég hrifnari af Predator).
Eru þeir fab eða eru þeir fab?
En yfir í aðra sálma. Ég hef fengið þónokkra pósta eftir að ég birti myndina af átfitti gærdagsins og frekar en að svara hverjum fyrir sig þá ákvað ég að svara þeim bara hér á blogginu, því þeir báru allir meira og minna upp sömu spurninguna.
Já, ég ætla í brjóstastækkun.
Um leið og ég er farin að hafa tekjur af þessu Tískubloggi þá skelli ég mér undir hnífinn. Ég get bara ekki alveg ákveðið hvaða stærð ég á að fá mér.
En meira um það síðar.

Wednesday, November 17, 2010
Tuesday, October 19, 2010
Tuesday, October 12, 2010
Gestapóstur - Mannhosur og mannósíur
Hola Lovers,
Kynlífs- og tískubloggarinn Fanney Mango er komin með annan gestapóst. Njótið heil.
Þarna sést „karl“maður í dökkgrænum ógagnsæjum mannhosum með appelsínugulu mynstri á ytri hliðum fótleggjanna. Hann er í hnébuxum úr gallaefni, stuttum til að sýna hosur sínar, og langermapeysu sem dregur fram appelsínugult mynstur hosanna. Skórnir hafa ekki verið sérstaklega valdir til að passa við neitt og eru aðeins dekkri en allt annað, en þó hlutlausir til að taka ekki athyglina frá mannhosunum, en þó má sjá að skyrta drengsins er í sama litatóni og skórnir en passar þó einnig vel við allt annað. Vefsíðan tekur því næst fram að það sést að stelpan er hrifin af appelsínugulum líka svo það var eins gott að hann kom í mannhosunum sínum.
Mannhosur og mannósíur
Framfarir í jafnrétti kynjanna eða stöðnun?
Vefsíðan http://www.e-mancipate.net/ hefur farið sem eldur um sinu um internetið undanfarna mánuði vegna nýs tískufyrirbæris sem kallast mannhosur eða mannósíur (mantyhose). Síðan sérhæfir sig í gerð mannhosa og mannósía, auglýsir þær og selur. Mannósíurnar falla jafn þröngt að líkamanum og þær gammósíur sem við kvenfólkið notum. Hægt er að fá allar gerðir mannósía, allt frá þunnum nælonsokkabuxum til þykkra mynstraðra bómullarhosa. En af hverju datt stofnendum síðunnar þetta í hug?
Others will just do it and go out with friends. No, we can't give you any advices regarding this. But we can show you how we imagine it...
...and you might find our guide useful, inspiring, or even practical.
Þarna sést „karl“maður í dökkgrænum ógagnsæjum mannhosum með appelsínugulu mynstri á ytri hliðum fótleggjanna. Hann er í hnébuxum úr gallaefni, stuttum til að sýna hosur sínar, og langermapeysu sem dregur fram appelsínugult mynstur hosanna. Skórnir hafa ekki verið sérstaklega valdir til að passa við neitt og eru aðeins dekkri en allt annað, en þó hlutlausir til að taka ekki athyglina frá mannhosunum, en þó má sjá að skyrta drengsins er í sama litatóni og skórnir en passar þó einnig vel við allt annað. Vefsíðan tekur því næst fram að það sést að stelpan er hrifin af appelsínugulum líka svo það var eins gott að hann kom í mannhosunum sínum.
En eins og sjá má á þessari mynd hér að neðan er þetta ekki beint nýtt fyrirbæri:
Já, menn hafa klæðst þröngum buxum frá örófi alda. Og kemur ekki allt aftur í tísku einn daginn?
En spurningin er: Er þetta rétt þróun í jafnrétti kynjanna?
Með spurningunni á ég við að konur hafa nálgast fatastíl karlmanna síðustu árin. Það var ekki fyrir svo mörgum tugum ára að litið var hornauga á konur í buxum. En um leið og buxurnar fóru að klæða konur vel leið ekki langur tími þar til þær fóru að sníða skyrtur á sig og breikka axlir sínar. Nú virðist röðin vera komin að karlmönnum að nálgast konur í klæðaburði. Vissulega hafa verið gerðar tilraunir áður til þess. Hver man ekki eftir Einari Ágúst í Eurovision árið 2000:
Og nú hafa íslenskir tískufrömuðir aftur leitað til tónlistarinnar til að fá karlmenn til að klæðast eins og konur: Á Íslandi er gelgjuvæluhljómsveitin Endless Dark (ef ég gerist svo djörf að flokka hana sem tónlist) farin að klæðast svörtum spandexmannósíum (sem svipar til gammósía sem voru í tísku meðal ungra kvenna fyrir ári síðan) og hefur aðdáandinn þeirra tekið vel í þá þróun buxnaskálma þeirra sem alltaf hafa talist með þeim þrengstu á Íslandi. Ekki er hægt að segja að þetta komi okkur á óvart. Buxnaskálmar karlmanna hafa farið minnkandi í þessum hluta þjóðfélagsins síðustu árin.
Hér eru tvær myndir frá vefsíðunni sem sýna greinilega nálgun karlafatatískunnar til kvenmannssniðsins:
Hvað gerist ef við höldum svona áfram? Verðum við ekki bara öll eins? Hvernig þekkjum við muninn á körlum og konum? Hvernig finnum við maka? Hvernig fjölgum við okkur?
Já, það má greinilega sjá að hér er furðuleg þróun í gangi. Ekki er aðeins verið að samræma föt kynjana heldur er reynt að gera kynin sjálf eins lík hvort öðru og mögulegt er. Þetta er afar óheilbrigð þróun því ekki er einu sinni gefið einstaklingnum færi á að vera „einstakur“, hvað þá kyninu. Þessi þróun er þegar byrjuð meðal emóvælumenningarinnar, eins og fyrr kom fram, og stundum er erfitt að greina einstaklinga í sundur og yfirleitt er ógerlegt að greina emóstráka frá emóstelpum. Stöðnun einstaklings- og kynjatísku getur valdið gríðarlegu tjóni fyrir mannkynið og jafnvel fólksfækkun.
Hættum að vera eins og aðrir og klæðumst okkar eigin stíl.
Kærleikur og kynlíf,
Fanney Mango (fanneymango.blogspot.com )
Monday, August 23, 2010
tíska framtíðarinnar
Mér finnst það einhvernveginn svo hughreystandi tilhugsun að það sé þegar búið að hanna tísku framtíðinnar. Þá þarf maður ekki að hafa endalausar áhyggjur af því að vera með puttann á púlsinum og vera áskrifandi að tískublöðum, heldur getur maður bara sett einhverja War Trek eða Far Wars mynd í tækið og séð það sem koma skal.
War Trek gerist í mjög náinni framtíð (eða á næstu 10 eða 15 árum), á meðan Far Wars er aðeins lengra fram í tímann (sirka 80-90 ár).
Hér eru nokkur sýnishorn af tísku framtíðarinnar.
War Trek:
Far Wars:
Sjáumst í framtíðinni - svona klædd!
xoxo
-h
War Trek gerist í mjög náinni framtíð (eða á næstu 10 eða 15 árum), á meðan Far Wars er aðeins lengra fram í tímann (sirka 80-90 ár).
Hér eru nokkur sýnishorn af tísku framtíðarinnar.
War Trek:
![]() |
| Samkvæmisfatnaður framtíðarinnar. |
![]() |
| Kasjúal klæðnaður. |
![]() |
| Klæðnaður verkfræðinga. |
![]() |
| Spariföt framtíðarinnar. |
![]() |
| Giftingarsamfestingur. |
![]() |
| Það sem koma skal í lýtalækningum. |
![]() |
| Það verða líka hundar í framtíðinni - og þeir verða svona klæddir. |
Far Wars:
![]() |
| Pelssamfestingur með áfastri húfu. |
![]() |
| Pollagalli. |
![]() |
| Svona munu spjátrungar framtíðarinnar klæða sig. |
![]() |
| Einkennisklæðnaður stjórnmálamanna. |
![]() |
| Lögreglubúningur úr framtíðinni. |
![]() |
| Viðeigandi klæðnaður þjóðhöfðingja. |
![]() |
| Hundatískan eftir 90 ár. |
Sjáumst í framtíðinni - svona klædd!
xoxo
-h
Subscribe to:
Posts (Atom)