Showing posts with label töff stöff. Show all posts
Showing posts with label töff stöff. Show all posts

Monday, July 11, 2011

stelpur; takmarkaður orðaforði og almennur þekkingarskortur

Hola lovers,

Á föstudaginn las ég svolítið í Fréttablaðinu sem gladdi mig mikið. Það var viðtal við eina kvenkyns íþróttafréttaritarann í sjónvarpi allra landsmanna og fyrirsögnin var „Vil ekki að talað sé við mig eins og stelpu“.

Fyrirsögnin vísar til þess þegar hún nefnir að hún biðji íþróttamenn og þjálfara sem tala „mjúklega“ til hennar eða „nota annan orðaforða“ vinsamlegast um að tala ekki við sig eins og stelpu. Hún og viðmælendur hennar vita (og eru greinilega sammála um) að þekkingarskortur og lítill orðaforði sé hið náttúrulega og eðlilega ástand stelpna.

Þetta er nokkuð sem ég hef lengi vitað og það gleður mig að sjá viðtal við stelpu sem gerir sér grein fyrir þessu líka. Ég er einnig fegin því að hún brýni það jafnt fyrir viðmælendum sínum sem og lesendum blaðsins að „mjúklegur háttur“ sé sá sem almennt beri að nota þegar yrt er á stelpu. Því það er því miður orðið allt of algengt að fólk tali við stelpur eins og þær séu venjulegt fólk og hvessi jafnvel við þær róminn (sem má ekki, því þær eru svo viðkvæmar).

Þetta viðtal er svo sannarlega hressandi mótvægi við annan ófögnuð sem virðist fá að grassera á Rúv þrátt fyrir að ég hafi beinlínis lagt við því blátt bann.

[Já, ég er að tala um Sokkabandið. En engar áhyggjur lovers, þær systur eru með það yfirlýsta markmið að tala við stelpur með „vit í kollinum“, en eins og við vitum öll (og ummæli íþróttafréttakonunnar undirstrika) er þar ekki um auðugan garð að gresja, svo ég býst við því að þátturinn verði sjálfdauður hvað og hverju.]

Áhugasamir geta annars fundið viðtalið við íþróttafréttakonuna í heild sinni hér.

xoxo
-h

Þegar þið sjáið svona fyrirbæri skuluð þið samstundis milda róminn og einfalda orðaforðann, lovers.

Thursday, June 2, 2011

skref í rétta átt / uppstillingadagur

Hola lovers,

Einsog þið munið kannski þá krafðist ég þess í síðustu færslu að framleiðendur sæju sóma sinn í því að bjóða mér að vera með minn eigin sjónvarpsþátt. Og hvað haldiði að mér hafi borist í póstinum í gær?

Smellið til að stækka.
Slóðin í póstinum leiðir mann á þessa síðu hérna og síðan þessa hérna.

Því miður virðist þetta vera eitthvað dularfullt indí-batterí og alls ekki það sem ég var að leita að (sem voru frjálsar hendur, ótakmarkað fjármagn og besti sýningartíminn á sjónvarpsstöð) en ég kýs að túlka þetta sem merki um að bransafólk sé ef til vill að taka við sér og tækifæri mitt leynist handan við hornið.

Annars er uppstillingadagur í dag, og í tilefni af því datt mér í hug að deila með ykkur myndum af nokkrum vel völdum uppstillingum.

Njótið.








xoxo
-h

Thursday, April 21, 2011

Biflía Tískubloggsins, eða hin nýuppgötvaða gullna regla ástarsambands á milli manns og konu

Hola lovers,

Ég er um þessar mundir að skrifa sambandskaflann* í lífstílsbók minni. (Og mér finnst notabene réttast að upplýsa ykkur um nýjan vinnutitil. Hann er ekki lengur Lífstíllinn: Megranir, tíska, Bob & beikon, heldur ákvað ég í samráði við útgefendur mína að vera ögn óræðari og mínímalískari (því það er í tísku) og núverandi vinnutitill er því einfaldlega Hola, lovers.)

Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að sambandskaflinn hafi beinlínis vafist fyrir mér, en flestir vita að sambönd eru flókin. En þau eru jafnframt lífsnauðsynleg öllum sem ætla að koma sér á framfæri og öðlast góða stöðu í lífinu.

Um þau gilda margar, flóknar og óskrifaðar reglur. Mér vitanlega hefur enginn reynt að festa þær niður á blað áður og því er ég sannarlega að vinna frumkvöðlaverk fyrir mannkynið einsog það leggur sig (að ógleymdum mannfræðingum framtíðarinnar (sem munu vafalaust þakka mér óeigingjarnt starf mitt og hafa nafn mitt í hávegum löngu eftir að daga mínir eru taldir (og ef ég verð heppin munu þeir jafnvel nefna gallabuxnategund í höfuðið á mér (einsog þeir gerðu fyrir annan (og síðri) mannfræðing)))) og raunar er það hin mesta hneisa að mér hafi ekki að fyrrabragði verið boðin ritlaun í síðustu úthlutun Launasjóðs íslenskra blogglistamanna.

En í sambandskaflanum fjalla ég einnig töluvert um ástarsambandið á milli manns og konu. Það er víðfemt efni og sannarlega af mörgu að taka. En þarsem ég er ekki að frumsemja efnið, heldur er ég, einsog ég nefndi hér að ofan, að rita niður áður óskrifaðar samfélagsreglur, þá vil ég síður líta á mig sem höfund þessa kafla. Hlutverk mitt er frekar í átt við loftnet sem fangar ósýnilegar bylgjur andrúmsloftsins (sem eru þrátt fyrir allt til staðar, þó þið auðnuleysingjarnir komið ekki auga á þær) og þýðir þær yfir í ómþýða tóna í útvarpstæki; yfir í eitthvað sem jafnvel almúgamaður eða -kona fær skilið.

Eiginlega mætti líta á kaflann sem Biflíuna sjálfa, og mig sem Móses (þó ég hefði aldrei klæðst svona ógeðslegum kufli ótilneydd), en hann fann einmitt steintöflurnar með guðs orði og færði þær niður af fjallinu, og til fólksins. Eða, svo ég noti aðra myndlíkingu (sem þið skiljið kannski betur); Ég er líktog hinn nafnlausi ritari sem festi guðs orð niður á bókfell, svo fólk gæti notið þess um aldir alda.

Það ætti því ekki að koma ykkur á óvart, lesendur kærir, að ég hafi komist að því að sambandskafli minn, líkt og Biflían sjálf, hverfist um eina setningu sem bæði súmmerar upp efni verksins í heild sinni en vísar jafnframt útfyrir sig um leið. Því Biflían, og jafnvel hið kristna siðferði einsog það leggur sig, kristallast í einni setningu; Gullnu reglunni, sjá nánar hér.

Í skrifum mínum hef ég nefnilega komist að því að sambandskafli lífstílsbókar minnar, og hið sambandslega ástarsiðferði á milli karls og konu, kristallast einnig í einni setningu**. Hún er:

Vertu undirgefin, annars verður þú yfirgefin.

xoxo
-h

*Sambandskaflinn er ætlaður konum til aflestrar. Karlmenn þurfa, eðli málsins samkvæmt, aldrei að sýna undirgefni.

**Konur, ekki halda að þessi setning nægi ykkur til að þóknast karlmanninum í lífi ykkar.
Til þess að tryggja farsælt ástarsamband við karlmann þurfið þið að kaupa bókina mína.

Monday, February 14, 2011

Að líta vel út í rúminu - gestapóstur

Hola lovers,

Loksins sendir hún Fanney Mangó, kynlífsbloggari með meiru, inn annan gestapóst.

Það var sko tími kominn til að einhver tæki á þessu brýna málefni.

xoxo
-h

***

Hvernig á að líta vel út í rúminu?

Þessi spurning var borin upp í athugasemdakerfi Tískubloggsins fyrir skömmu og ýmsar hugmyndir fóru undir eins að hringsnúast í kollinum á mér. Ég hef auðvitað ekki þurft að hugsa út í slíkt áður, enda kemur þetta náttúrulega hjá mér, en það er einmitt ástæða þess að ég ætti að setjast niður og greina mitt útlit í bólinu til að deila með öðrum konum sem ekki fæddust bólfagrar.

Ég komst að þessari niðurstöðu:

1. Klæðaburður: Fötin skipta mestu máli. Nema auðvitað að tæknin „the naked man“ sé notuð en hún er vinsælust meðal ómyndarlegra manna og virkar hún í þriðja hvert skiptið.
Konur geta einnig notað þessa tækni en þess má geta að hlutfallið hækkar því ófríðari sem viðfangsefnið er. Þess vegna er kjörið fyrir konur sem tæla ófríða menn að koma þeim að óvöru og fara úr öllum flíkum þegar litlar líkur eru á drætti. En fyrir ykkur sem viljið tæla fríðari menn þá þurfið þið fyrst og fremst að huga að klæðaburðinum. Þetta á líka við um konur í sambandi því þær eiga það til að hætta að klæða sig upp fyrir karlinn sinn og fara að sofa í kynþokkalausum fötum líkt og víðum bómullarstuttermabol og of stórum flannelbrókum eða jafnvel með tannréttingagræjur!
Þetta gengur auðvitað alls ekki. Ég fer ekki einu sinni að sofa án sokkabanda. Þó eru til mun þægilegri kostir en sokkabönd. Með skærum einum saman er til dæmis hægt að klippa göt fyrir brjóstin eða jafnvel klippa klofið af brókunum. Það er bæði sexí og pör geta prufað eitthvað nýtt í svefnherberginu.

2. Appelsínuhúðina burt: Enginn vill sofa hjá konu með appelsínuhúð. Til eru margar aðferðir til að losna við þetta leiðindafyrirbæri og hefur Tískubloggið áður og jafnvel óafvitandi gefið upp þær aðferðir sem mínar vinkonur telja að virki best.
  • Hreyfing. Tískubloggið talar um hreyfingu, sjá hér. Ég tala um hreyfingu, sjá hér.
  • Hrukkueyðir, sjá hér. Kreminu smyr maður á lærin og loka svo fyrir oxun þess með því að vefja álpappír utan um lærin og plastfilmu utan um álpappírinn.
  • Náttúrulegt ávaxtafreyðibað, sjá hér.
Á hverjum áratugi missir kona 4 kíló af vöðvum og bætir á sig 16 kílóum af fitu auk þess sem ytra lag húðarinnar þynnist til muna. Vegna þessa versnar appelsínuhúðin með aldrinum. Þess vegna hvet ég allar þær vísindakonur sem þetta blogg lesa að einbeita sér að uppfinningu lífselexírsins. Með honum haldast lærin fersk.

En ef þið hafið ekki tíma fyrir þetta, eigið jafnvel von á næturgesti í kvöld, þá mæli ég með því að leggja lærin ofan í heitt kaffi.

3. Brjóst. . Need I say more?

4. Stellingar. Hér hef ég flokkað nokkrar vinsælar stellingar eftir hversu vel líkami kvenmannsins birtist manninum:

Líkamspartar í jákvæðum hlutföllum:

Líkamspartar í neikvæðum hlutföllum:
  • Hún ofan á (ef brjóstin eru skökk)
  • Hundabað (rass nálægt honum og virkar því of stór)
  • Kóngulóarvefurinn (brjóst síga í aðra áttina og lærin eru í röngum hlutföllum)
  • V (algjört bann fyrir konur með feita ökla)
  • Álegg (höfuð hennar er of langt í burtu og því eru rasskinnarnar of stórar í hlutfalli við það)

Ást og kynlíf,
Fanney Mango

Sunday, January 16, 2011

verður staðgöngumæðrun nýjasta tískan?

Hola lovers!

Bloggfærslur um staðgöngumæðrun virðast vera í tísku núna (einsog þær voru að því er virðist líka árið 2007, þið vitið hvernig þetta virkar, tískan fer í hringi) og þarsem Bleikt.is hefur meira að segja birt pistil um málið fannst mér að Tískubloggið gæti ekki látið sitt eftir liggja.

Og Tískubloggið, líktog pistlahöfundur Bleikt.is, er afar hlynnt því að staðgöngumæðrun fátækra gegn greiðslu þeirra ríkari verði lögleidd hér á landi. Að sama skapi finnst mér sjálfsagt að Íslendingar með eitthvað á milli handanna geti nýtt sér líkama fátækra kvenna í þriðja heims ríkjum til barnaframleiðslu, hvort sem konurnar ganga með þeirra börn eða þeir kaupa erfaefnið af þeim í leiðinni líka.

Því það eru mannréttindi ríkra að fá að eignast börn. Þetta er réttur sem ætti að mínu mati að vera bundinn í stjórnarskrá (alveg einsog réttur ófríðra karlmanna til kynlífs ætti að vera bundinn í stjórnarskrá, en það er einmitt ástæðan fyrir því að samfélagið þarfnast vændiskvenna, því einhver verður að fórna sér fyrir öll þessi einmana karlmenni, þeir hafa þarfir, þið vitið).

Þið vitið auðvitað líka að ríkt fólk á peninga afþví að það er betra en fátæka fólkið. Það er gáfaðra, betur innrætt, betur menntað og meira virði, og virði þeirra í veröldinni endurspeglast í efnahag þeirra. Þetta er beisikk kapítalísk kenning, sem fyrir löngu hefur verið sönnuð, og því á ríka fólkið skilið að eignast börn þegar það vill, frekar en þeir sem eru ófrjóir en hafa ekki efni á því að borga fyrir þjónustuna.

Í Vestrænum ríkjum hefur mikið verið rætt um tenginguna sem móðir myndar við ófætt barn sitt og öfugt, en sem betur fer þá þekkist slíkt ekki í þriðja heims ríkjum. Fátækum þykir heldur hvort sem er ekkert jafn vænt um börnin sín og ríku fólki þykir, því fátækir eru svo vanir því að missa þau úr vosbúð og hungri.

Einhverjir hafa bent á að þessar fátæku konur í þriðja heims ríkjum fái kannski ekki að ráða þessu sjálfar, heldur séu það mögulega mennirnir þeirra sem skipi þeim að ganga með börn fyrir annað fólk og hirði svo peninginn sjálfir, en ég sé ekki hvernig það geta verið mótrök gegn staðgöngumæðrun gegn greiðslu. Því einsog allir vita á eiginmaður ávallt rétt á ótakmörkuðum aðgangi að líkama konu sinnar, og hann ræður hvað hann gerir við hann.

Svo er líka einn punktur sem mér finnst alveg vanta í umræðuna, og það er að meðgöngu fylgir gjarnan slit á maga og brjóstum, og það ætti að vera sjálfsagt að konum sem er annt um líkama sinn en vilja samt fjölga mannkyninu standi til boða að fá einhvern til að gera þetta bara fyrir sig.

Eins fylgir því viss áhætta að ganga með barn og það er alltaf ein og ein kona sem deyr við barnsburð, og mér finnst eðlilegt að fólk sem á peninga fái einhvern til að taka áhættuna fyrir sig. (Ég meina, það er ástæða fyrir því að í bíómyndum er fenginn stöntmaður til að leika áhættuatriðin fyrir stjörnuna, því stjarnan er miklu verðmætari einstaklingur. Og stöntmaðurinn er oftast í betri þjálfun líka, og á sama hátt eru þessar fátæku konur í miklu betri þjálfun við að eignast börn.)

Að vísu eru töluvert meiri líkur á því að látast við barnsburð í þriðja heims ríki, en það búa líka miklu fleiri þar en á Íslandi þannig að þeir mega alveg við smá afföllum.

xoxo
-h

Monday, December 27, 2010

gúggl

Hola lovers,

Mér finnst alltaf gaman að sjá hvað fólk gúgglar til að lenda á síðunni minni, og mér datt í hug að ykkur þætti það gaman líka.

Ef ekki, skuluð þið endilega senda mér haturspóst.

xoxo
-h

Smellið til að stækka.

Tuesday, December 14, 2010

beikonsushi fyrir byrjendur (og lengra komna)

Hola lovers,

Einsog allir með snefil af tískuviti þekkja, þá er fjúsjon-matargerð heitasta heitt.

Aðdáandi Tískubloggsins sendi mér rétt í þessu dásamlegt myndband sem kennir manni m.a. hvernig er hægt að gera hrísgrjónalaust beikonsushi. Það kalla ég sko fjúsjon í lagi.

Þetta er miklu, miklu meira töff en úldinn fiskur og sojasósa.



xoxo
-h

Tuesday, December 7, 2010

kvenlegar sjónmælingar framtíðarinnar

Hola lovers,

Gamaldags, úrelt
sjónpróf
Einsog þið vitið kannski þá er framtíðin komin, og framtíðin hefur iðulega í för með sér ýmsar tækninýjungar. Á undanförnum árum hefur mikil framför átt sér stað á sjónarsviðinu, og ber þar helst að nefna næmari sjónmælingar, betri og léttari gler í gleraugum (nú er jafnvel hægt að fá þau með glampavörn, pælið í því) og að sjálfsögðu leiseraðgerðirnar sem hafa bjargað ófáum tískudrósum frá hræðilegum örlögum sem ógeðslegir gleraugnaglámar sem enginn nennir að hlutgera.

En þó er eitt sem hefur háð neytendum, og það er að augnlæknar og optikerar hafa verið með einokunarstöðu á sjónmælingamarkaðinum fram að þessu. En sem betur fer er það allt að breytast.

Fram hefur komið ný og byltingarkennd aðferð til sjónmælinga, þar sem konur nota brjóst sín til að mæla sjón karlmanna.

Sjálf hef ég prófað þessa aðferð á kærastanum með prýðisgóðum árangri, þó réttast sé að taka fram að fræðimenn deila um hvort að niðurstöður þær sem hljótast af rannsóknum kvenna sem ekki hafa stækkað brjóst sín með skurðaðgerð séu marktækar.

Svona virkar sjónprófið:



Mér skilst að það sé verið að sækja um einkaleyfi á sjónprófinu og fáist það virðist það nokkuð ljóst að konur (og transfólk) muni brátt gera optikera og augnlækna með öllu óþarfa.

En þá má að líkum leiða að öðrum konum verði gert að hylja barm sinn, til að skekkja ekki niðurstöður fagkvenna.

xoxo
-h

Monday, November 22, 2010

ég get ekki beðið!

Hola lovers,

Ég er loksins, eftir mikið internetráp, búin að velja mér áramótaskó! Pantaði þá áðan og ég get ekki beðið eftir að fá þá!

Einsog þið sjáið eru þeir inspíreraðir af Alien, einu helsta meistarverki síðari kynslóða (þó persónulega sé ég hrifnari af Predator).


Eru þeir fab eða eru þeir fab?

En yfir í aðra sálma. Ég hef fengið þónokkra pósta eftir að ég birti myndina af átfitti gærdagsins og frekar en að svara hverjum fyrir sig þá ákvað ég að svara þeim bara hér á blogginu, því þeir báru allir meira og minna upp sömu spurninguna.

Já, ég ætla í brjóstastækkun.

Um leið og ég er farin að hafa tekjur af þessu Tískubloggi þá skelli ég mér undir hnífinn. Ég get bara ekki alveg ákveðið hvaða stærð ég á að fá mér.

En meira um það síðar.

xoxo
-h

Tuesday, November 16, 2010

Dagur íslenskrar tungu

Hola lovers og til hamingju með daginn!



Það er í tísku að tala íslensku, ekki láta neinn segja ykkur annað.

xoxo
-h