Hola lovers,
Afsakið fjarveruna. Ég hef átt annríkt.
Ég ætla rétt að vona að þið hafið farið eftir laufléttum ráðleggingum mínum um hátíðirnar og ekki fitnað neitt (og helst grennst). En góð vísa er aldrei of oft kveðin, stundum er gott að skipta um tóntegund og því vil ég benda ykkur á nokkrar frábærar greinar sem birst hafa á Smartlandinu, vinasíðu Tískubloggsins, undanfarið. Lesendum mínum til hægðarauka hef ég dregið fram helstu atriði þeirra hér fyrir neðan.
Fyrsta ber að nefna greinina 9 leiðir til að verða besta útgáfan af sjálfri þér, sem ber reyndar svolítið misvísandi titil. Að óreyndu mætti ætla að hún fjalli um hvernig er hægt að verða betri manneskja, en sem betur fer er það ekki raunin. Greinin fjallar um útlit (enda skiptir auðvitað engu máli hvernig manneskja maður er ef maður er sætur). Í greininni má finna uppástungur að níu leiðum til þess að líta betur út og ber þar ef til vill hæst lið nr. 5, Drekktu grænan djús, og lið nr. 8, Borðaðu regnbogann.
Í greininni Vertu betri manneskja á 21 degi má finna ráðleggingar fyrir tvítyngda í fimm liðum. Ég verð reyndar að játa að ég er enn að reyna að komast að því hvað orðin „exchercise“ og „someting“ þýða. Að sama skapi hef ég aldrei séð sögnina „to attent“ í texta áður og viðurkenni jafnframt að orðalagið að „tosast í eitthvað nýtt“ er mér sömuleiðis framandi. En ég veit að Smartlandið á Mbl.is er faglegur og metnaðarfullur vefur sem myndi aldrei birta illa þýtt og óprófarkalesið drasl svo ég geri fastlega ráð fyrir því að vandinn sé, einsog þeir segja, mín megin.
Í 10 ráð til að tækla janúarljótuna er margt bitastætt að finna, en ég vil sérstaklega benda lesendum á liði 4 (Vönduð snið klæða af) og 5 (Hækkaðu þig upp) því einsog allir vita vilja allar konur líta út fyrir að vera bæði grennri og hávaxnari en þær raunverulega eru. Ég bið ykkur samt í guðsbænum um að hunsa algjörlega lið 7 (Falleg nærföt). Ég hef sagt ykkur áður að það er afar mikilvægt að tryggja karlmönnum sem best aðgengi að líkama ykkar öllum stundum og því heillavænlegast að sleppa hreinlega nærfatnaði og spara þeim þannig dýrmætan tíma í samförum sem þeir geta svo í staðinn notað annað hvort í ræktinni eða til þess að bæta forgjöfina.
Margir lesendur hafa vafalítið fengið snjallsíma í jólagjöf og því er vel við hæfi að enda þessa samantekt á því að minnast á greinina 8 ráð til að vera gordjöss á myndum, því einsog segir réttilega í upphafi hennar: „Í allri Instragram-, Twitter- og Facebook-menningunni skiptir máli að líta vel út á öllum myndunum sem vinir þínir eru taka og pósta jafnóðum daginn út og daginn inn.“ Af þessum átta óbrigðulu „leynitrix[um] sem leysa öll heimsins vandamál“ þykja mér tvö bitastæðust: nr. 4 (Skyggðu andlitið vel) og nr. 2, en þar er réttlilega bent á að „[e]f teknar eru af þér litmyndir skiptir mestu máli að hyljarinn sé með bleikum eða ferskjulituðum tónum“ (ath. leturbreyting síðuhaldara).
Gleðilegt ár.
xoxo
-h
Showing posts with label árnað heilla. Show all posts
Showing posts with label árnað heilla. Show all posts
Tuesday, January 8, 2013
Wednesday, November 16, 2011
Monday, January 3, 2011
ársuppgjör Tískubloggsins
Hola lovers og gleðilegt ár!
Ég þakka samfylgdina síðan Tískubloggið hóf göngu sína nú í júlí 2010. Þetta hafa verið nokkuð viðburðaríkir fimm mánuðir.
Hérna kemur það sem ef til vill bar hæst á þessum tíma:
En ferskir vindar munu blása um Tískubloggið árið 2011, því höfuðstöðvar þess hafa verið fluttar og það er komið á splunkunýja kennitölu. Árið sem nú er hafið mun því ekki verða síður viðburðaríkt en það liðna, því það er ýmislegt á döfinni.
Sem dæmi mætti nefna að ég hygg ég fari bráðum í brjóstastækkun, ég er enn að vinna í megrunar- og lífstílsbókinni minni og bíð spennt eftir því að forleggjarar sjái sóma sinn í því að bjóða mér framvirkan útgáfusamning, ég mun halda áfram að vinna að þeim markmiðum mínum að selja auglýsingar hér á síðunni og fá fullt af peningum og fá sent frítt sjitt og vera boðið á hundatískusýningar í útlöndum og margt, margt fleira.
Lifið heil.
xoxo
-h
Ég þakka samfylgdina síðan Tískubloggið hóf göngu sína nú í júlí 2010. Þetta hafa verið nokkuð viðburðaríkir fimm mánuðir.
Hérna kemur það sem ef til vill bar hæst á þessum tíma:
- Ég fór í legnám með afar góðum árangri. Sjá hér og hér.
- Ég hlaut ritstjórastöðuna á vefritinu Eyjunni, einungis til að vera svipt henni að því er virðist að tilefnislausu með afar skömmum fyrirvara.
- Ég fékk svo skömmu síðar uppreisn æru og ástarjátningu frá Pjattrófunum.
- Ég minntist Hermanns, hundsins sem örlögin hrifsuðu frá mér allt of snemma, í þeirri von að reynslusaga mín myndi koma í veg fyrir að nokkuð svo hræðilegt kæmi fyrir aftur.
- Ég skilgreindi fyrst allra óendanleika á mannamáli, og hóf þannig frama minn sem afar virtur heimspeðlisfræðingur.
- Það var allt útlit fyrir það að ég og kærastinn þyrftum að slíta sambúð okkar því við vorum ekki í sama blóðflokki, en sem betur fer tók Landlæknir til sinna ráða og bjargaði sambandinu. Sjá hér og hér.
- Órætinn einstaklingur sem ég vil síður nefna á nafn (ég kalla hana yfirleitt Þá Sem Við Nefnum Ekki, eða *i*d* K**t**ó*t*r) reyndi að sölsa undir sig Tískubloggið, en sem betur fer komu Pjattrófurnar Tískublogginu til bjargar.
- Ég miðlaði af viskubrunni mínum, í þeirri von að koma kvenþjóðinni einsog hún leggur sig til bjargar. Sjá t.d. hér og hér.
En ferskir vindar munu blása um Tískubloggið árið 2011, því höfuðstöðvar þess hafa verið fluttar og það er komið á splunkunýja kennitölu. Árið sem nú er hafið mun því ekki verða síður viðburðaríkt en það liðna, því það er ýmislegt á döfinni.
Sem dæmi mætti nefna að ég hygg ég fari bráðum í brjóstastækkun, ég er enn að vinna í megrunar- og lífstílsbókinni minni og bíð spennt eftir því að forleggjarar sjái sóma sinn í því að bjóða mér framvirkan útgáfusamning, ég mun halda áfram að vinna að þeim markmiðum mínum að selja auglýsingar hér á síðunni og fá fullt af peningum og fá sent frítt sjitt og vera boðið á hundatískusýningar í útlöndum og margt, margt fleira.
Lifið heil.
xoxo
-h
Thursday, December 23, 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)



