Sunday, August 21, 2011

það sem við höfum alltaf vitað; varalitur eyðir femínisma (og blómatími íslenskra kvenna; árið 1981)

Hola lovers,

Ég mæli með því að þið hlustið öll á viðtalið við hana Tobbu hér. Þar bendir Tobba réttilega á að gagnrýni sem hún hefur fengið á fyrirhugaðan sjónvarpsþátt sinn frá meintum femínista falli kylliflöt um sjálfa sig, því sést hafi til meinta femínistans með varalit. En allir vita að femínistar eru ljótar, loðnar og leiðinlegar konur sem hugsa ekkert um útlitið og af því leiðir þá að konan getur ekki verið femínisti og gagnrýni hennar því með öllu ómarktæk.

Þetta er nokkuð sem ég hef lengi vitað; að snyrtivörur núlla út alla feminíska tilburði kvenna. Því allir vita að sætar konur þurfa ekki að vera teknar alvarlega, vera metnar að verðleikum, fá sanngjörn laun eða stjórnunarstöður. Aukinheldur benda rannsóknir til þess að konur eyði að meðaltali þremur árum lífs síns í að hugsa um útlitið, mála sig, klæða sig, greiða sér, raka á sér lappirnar, o.fl., og snyrtileg kona með varalit getur því varla haft tíma til að hafa áhyggjur af stöðu kvenna eða tíma til að mynda sér skoðanir sem mark er takandi á.

Tobba stærir sig af því að hafa fært réttindabaráttu kvenna aftur til ársins 1981 og heimtar einkennisbúning fyrir (ætti maður að líta á þetta sem áskorun, lovers? lógósamkeppnin sýndi svo sannarlega hversu liðtæk við erum í hönnun, einn einkennisbúningur ætti nú að vera lítið mál), en með því held ég að hún hljóti að vísa til þess hve mjög hún hefur lagt sitt af mörkum til þess að hefta útbreiðslu femínisma meðal kvenna – einmitt með því að halda að þeim sjónvarpsþáttum og bókum um varaliti.

Varalitur: Besta vopnið í baráttunni gegn femínisma.
(Og allir í þættinum eru reyndar alveg sammála um að það sé bara hið besta mál að færa kvenréttindabaráttuna aftur til ársins 1981, því þá hafi verið svo fínt að vera kona. Þó ég hafi ekki verið fædd það ár, þá held ég að þetta sé hárrétt hjá þeim, því ég sé ekki betur en árið 1981 hafi einmitt verið blómatími íslenskra kvenna. Þá var atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi 65% og á tímabilinu 1979-1981 voru laun kvenna í fullu starfi að jafnaði 71% af launum karlmanna, sem ég tel að endurspegli u.þ.b. muninn á virði þeirra sem manneskjur. Árið 1978 voru aukinheldur 5% þeirra sem kosnir voru til fjögurra ára setu á Alþingi konur, þar var enginn kvenkyns ráðherra, og árið 1986 var hlutfall kvenna í sveitarstjórnum 24,6%. Var þetta ekki bara ídeal, lovers?)

xoxo
-h

Wednesday, August 3, 2011

bækur sem ég vil banna, 1. hluti

Hola lovers,

Einsog þið vitið þá læt ég mig æskuna varða. Ég vil að samfélag okkar ali upp heilsteypta einstaklinga með heilbrigð lífsviðhorf. Ég vil hugsa um börnin og vernda þau gegn óæskilegum öflum sem koma allskonar grillum í hausinn á þeim, s.s. sósíalisma, jafnaðarstefnu, umhverfisvernd og femínisma.

En þessi barátta mín er erfið, því þessi annarlegu viðhorf sem ég nefndi hér að ofan virðast því miður vera á góðri leið með því að verða rótgróin í samfélagi okkar. Þessi öfl svífast einskis til þess að koma áróðri sínum að börnum, og nota m.a. til þess barnaefni og aðra miðla sem sérstaklega er beint að ungum ómótuðum sálum sem eru varnarlaus gagnvart skilaboðunum.

Ég tel að hið eina rétta í stöðunni sé að banna barnaefni sem er gegnsýrt af röngum áróðri (efni sem inniheldur réttu skilaboðin eru aftur á móti auðvitað í lagi).

Bókin sem er efst á lista er eftir Bryndísi Jónu Magnúsdóttur og ber titilinn Senjorítur með sand í brók.


Titillinn er augljós vísun í kvenrembu (femínisma), því einsog alþjóð veit þá eru allir femínistar með sand í píkunni.

Barnsleg kápumyndin tekur aukinheldur af öll tvímæli um það að bókinnni sé beint að stúlkubörnum (skærir litir, teiknimyndalegar fígúrur) og því er hér bersýnilega óforskammað femínistarit á ferð sem er ætlað að innræta saklausum og áhrifagjörnum stúlkubörnum kvenrembu.

Ég legg því hérmeð til að þessi bók verði tafarlaust bönnuð.

Það er von mín að þið, lesendur kærir, hjálpið mér að bjarga æsku Íslands og nefnið hér í athugasemdakerfi síðunnar þær bækur sem þið hafið rekist á og ætti einnig að banna.

Hver veit svo nema við getum haldið almennilega bókabrennu einhverntímann í haust.

xoxo
-h