Hola lovers,
Afsakið fjarveruna. Ég hef átt annríkt.
Ég ætla rétt að vona að þið hafið farið eftir laufléttum ráðleggingum mínum um hátíðirnar og ekki fitnað neitt (og helst grennst). En góð vísa er aldrei of oft kveðin, stundum er gott að skipta um tóntegund og því vil ég benda ykkur á nokkrar frábærar greinar sem birst hafa á Smartlandinu, vinasíðu Tískubloggsins, undanfarið. Lesendum mínum til hægðarauka hef ég dregið fram helstu atriði þeirra hér fyrir neðan.
Fyrsta ber að nefna greinina 9 leiðir til að verða besta útgáfan af sjálfri þér, sem ber reyndar svolítið misvísandi titil. Að óreyndu mætti ætla að hún fjalli um hvernig er hægt að verða betri manneskja, en sem betur fer er það ekki raunin. Greinin fjallar um útlit (enda skiptir auðvitað engu máli hvernig manneskja maður er ef maður er sætur). Í greininni má finna uppástungur að níu leiðum til þess að líta betur út og ber þar ef til vill hæst lið nr. 5, Drekktu grænan djús, og lið nr. 8, Borðaðu regnbogann.
Í greininni Vertu betri manneskja á 21 degi má finna ráðleggingar fyrir tvítyngda í fimm liðum. Ég verð reyndar að játa að ég er enn að reyna að komast að því hvað orðin „exchercise“ og „someting“ þýða. Að sama skapi hef ég aldrei séð sögnina „to attent“ í texta áður og viðurkenni jafnframt að orðalagið að „tosast í eitthvað nýtt“ er mér sömuleiðis framandi. En ég veit að Smartlandið á Mbl.is er faglegur og metnaðarfullur vefur sem myndi aldrei birta illa þýtt og óprófarkalesið drasl svo ég geri fastlega ráð fyrir því að vandinn sé, einsog þeir segja, mín megin.
Í 10 ráð til að tækla janúarljótuna er margt bitastætt að finna, en ég vil sérstaklega benda lesendum á liði 4 (Vönduð snið klæða af) og 5 (Hækkaðu þig upp) því einsog allir vita vilja allar konur líta út fyrir að vera bæði grennri og hávaxnari en þær raunverulega eru. Ég bið ykkur samt í guðsbænum um að hunsa algjörlega lið 7 (Falleg nærföt). Ég hef sagt ykkur áður að það er afar mikilvægt að tryggja karlmönnum sem best aðgengi að líkama ykkar öllum stundum og því heillavænlegast að sleppa hreinlega nærfatnaði og spara þeim þannig dýrmætan tíma í samförum sem þeir geta svo í staðinn notað annað hvort í ræktinni eða til þess að bæta forgjöfina.
Margir lesendur hafa vafalítið fengið snjallsíma í jólagjöf og því er vel við hæfi að enda þessa samantekt á því að minnast á greinina 8 ráð til að vera gordjöss á myndum, því einsog segir réttilega í upphafi hennar: „Í allri Instragram-, Twitter- og Facebook-menningunni skiptir máli að líta vel út á öllum myndunum sem vinir þínir eru taka og pósta jafnóðum daginn út og daginn inn.“ Af þessum átta óbrigðulu „leynitrix[um] sem leysa öll heimsins vandamál“ þykja mér tvö bitastæðust: nr. 4 (Skyggðu andlitið vel) og nr. 2, en þar er réttlilega bent á að „[e]f teknar eru af þér litmyndir skiptir mestu máli að hyljarinn sé með bleikum eða ferskjulituðum tónum“ (ath. leturbreyting síðuhaldara).
Gleðilegt ár.
xoxo
-h
Showing posts with label lífstíll. Show all posts

Tuesday, January 8, 2013
Thursday, March 22, 2012
sögur af andláti mínu eru stórlega ýktar
Hola lovers,
Ég ætla ekki að biðja ykkur afsökunar á fjarveru minni, en ég skal útskýra hana.
Eftir allt fjölmiðlafárið sem fylgdi útkomu lífstílsbókar minnar þá var ég orðin fullkomlega úrvinda. Þið getið auðvitað ekki ímyndað ykkar hvað það er slítandi að fara í viðtöl í öllum helstu fjölmiðlum álfunnar, fá tonn af aðdáendabréfum, mæta á endalausa upplestra, árita þúsundir (ef ekki milljónir) eintaka, heiðra aðdáendur með nærveru minni og líta jafnframt óaðfinnanlega út.
Í janúar ákvað ég því að nota brotabrot af ágóða sölu bókarinnar og fara í tveggja mánaða dítox-spa-búðir við strendur Dauðahafsins.
Það var endurnærandi að komast í annað umhverfi þar sem enginn vissi hver ég var. Engir ljósmyndarar eltu mig á röndum, enginn vildi fá mig til að árita neinar bækur og engir blaðamenn að hringja til að biðja mig að koma í viðtöl (ég skildi símann eftir heima).
Í dítox-spa-búðunum var notalegt og gott andrúmsloft. Þarna var andlega þenkjandi og fallegt fólk á borð við mig sjálfa. Það var sérstaklega einn sem ég náði góðu sambandi við, soldán nokkur að nafni Said. Ég tók strax eftir honum fyrsta daginn. Hann er með hunangslita húð og svo hvítar tennur að þær lýsa upp andlitið á honum þegar hann brosir. Indverskur fakír elti hann á röndum og það var ekki fyrr en undir lok dvalar minnar sem ég komst að því að fakírinn er í raun lífvörður hans. Og Said er jórdanskur olíufursti og einn af ríkustu mönnum veraldar.
Einhvernveginn æxluðust hlutirnir þannig að ég og Said vorum í flestum meðferðum á sama tíma og á milli okkar mynduðust fljótt órjúfanleg bönd. Það er ef til vill erfitt fyrir ófríða að ímynda sér hversu náið samband myndast á milli tveggja einstaklinga sem dítoxa saman, fasta og skola út. Og hvernig maður deilir ósjálfrátt innstu leyndarmálum sínum, löngunum og þrám þegar maður liggur í grænni vin í skugga frá eyðimerkursólinni og bíður eftir því að andlitsmaskinn þorni og hreinsi um leið svitaholurnar á t-svæðinu.
Said hefur sjálfur lýst sambandi okkar sem stokkhóms-syndrómi, en ég sagði honum að ekkert skandinavískt orð gæti fyllilega lýst hita þeirra tilfinninga sem kviknuðu á milli okkar þarna í eyðimörkinni.
Þegar dítox-búðunum lauk bauð hann mér að fylgja honum í höll sína. Ég þáði auðvitað boðið og þar er ég nú. Lífið er ljúft, ég er búin að missa heil 8 kíló, svitaholur mínar eru hreinari en þær hafa nokkurntímann verið og ég hef fengið fullt af innblástri fyrir næstu lífstílsbók. Og það allra besta er að hinar konurnar í höllinni eru huldar frá toppi til táar, og því er ég óumdeilanlega fallegasta konan á svæðinu, því samkeppnin er engin.
Því miður get ég hvorki sýnt ykkur myndir af Said né höllinni eða einhverjum af fjölmörgum lystigörðum hennar, því fakírinn (sem er víst ekki bara lífvörður heldur yfirmaður allrar öryggisgæslu í höllinni) bannar mér að taka myndir og hann braut meira að segja myndavélina mína þegar ég var að taka átfittpóst fyrir þessa færslu.
P.S. kærasti, ef þú ert að lesa þetta, þá segi ég þér upp.
xoxo
-h
Ég ætla ekki að biðja ykkur afsökunar á fjarveru minni, en ég skal útskýra hana.
Eftir allt fjölmiðlafárið sem fylgdi útkomu lífstílsbókar minnar þá var ég orðin fullkomlega úrvinda. Þið getið auðvitað ekki ímyndað ykkar hvað það er slítandi að fara í viðtöl í öllum helstu fjölmiðlum álfunnar, fá tonn af aðdáendabréfum, mæta á endalausa upplestra, árita þúsundir (ef ekki milljónir) eintaka, heiðra aðdáendur með nærveru minni og líta jafnframt óaðfinnanlega út.
Í janúar ákvað ég því að nota brotabrot af ágóða sölu bókarinnar og fara í tveggja mánaða dítox-spa-búðir við strendur Dauðahafsins.
![]() |
| Dauðahafið. |
Í dítox-spa-búðunum var notalegt og gott andrúmsloft. Þarna var andlega þenkjandi og fallegt fólk á borð við mig sjálfa. Það var sérstaklega einn sem ég náði góðu sambandi við, soldán nokkur að nafni Said. Ég tók strax eftir honum fyrsta daginn. Hann er með hunangslita húð og svo hvítar tennur að þær lýsa upp andlitið á honum þegar hann brosir. Indverskur fakír elti hann á röndum og það var ekki fyrr en undir lok dvalar minnar sem ég komst að því að fakírinn er í raun lífvörður hans. Og Said er jórdanskur olíufursti og einn af ríkustu mönnum veraldar.
Einhvernveginn æxluðust hlutirnir þannig að ég og Said vorum í flestum meðferðum á sama tíma og á milli okkar mynduðust fljótt órjúfanleg bönd. Það er ef til vill erfitt fyrir ófríða að ímynda sér hversu náið samband myndast á milli tveggja einstaklinga sem dítoxa saman, fasta og skola út. Og hvernig maður deilir ósjálfrátt innstu leyndarmálum sínum, löngunum og þrám þegar maður liggur í grænni vin í skugga frá eyðimerkursólinni og bíður eftir því að andlitsmaskinn þorni og hreinsi um leið svitaholurnar á t-svæðinu.
Said hefur sjálfur lýst sambandi okkar sem stokkhóms-syndrómi, en ég sagði honum að ekkert skandinavískt orð gæti fyllilega lýst hita þeirra tilfinninga sem kviknuðu á milli okkar þarna í eyðimörkinni.
Þegar dítox-búðunum lauk bauð hann mér að fylgja honum í höll sína. Ég þáði auðvitað boðið og þar er ég nú. Lífið er ljúft, ég er búin að missa heil 8 kíló, svitaholur mínar eru hreinari en þær hafa nokkurntímann verið og ég hef fengið fullt af innblástri fyrir næstu lífstílsbók. Og það allra besta er að hinar konurnar í höllinni eru huldar frá toppi til táar, og því er ég óumdeilanlega fallegasta konan á svæðinu, því samkeppnin er engin.
Því miður get ég hvorki sýnt ykkur myndir af Said né höllinni eða einhverjum af fjölmörgum lystigörðum hennar, því fakírinn (sem er víst ekki bara lífvörður heldur yfirmaður allrar öryggisgæslu í höllinni) bannar mér að taka myndir og hann braut meira að segja myndavélina mína þegar ég var að taka átfittpóst fyrir þessa færslu.
P.S. kærasti, ef þú ert að lesa þetta, þá segi ég þér upp.
xoxo
-h
Tuesday, December 20, 2011
það sem þið misstuð af á jóladagatali Norræna hússins og ljúffeng Berjasæla Tískubloggsins
Hola lovers,
Tískubloggið kom fram á jóladagatali Norræna hússins í gær. Það var hátíðleg friðarstund þar sem við minntumst Hermanns, en í gær voru einmitt þrjú ár, tveir mánuðir og átta og hálfur dagur síðan hann dó. Að minningarstundinni lokinni leiðbeindi ég gestum Norræna hússins um viðeigandi klæðaburð um hátíðirnar. Þið sem misstuð af því fáið því aldrei að vita hvernig klæðaburður í jólaglögg með vinnunni er líklegastur til þess að leiða til kynlífs með yfirmanni og mögulegrar stöðuhækkunnar í kjölfarið og þið munuð heldur aldrei vita hversu mikilvægt tjull er á sjálfan aðfangadaginn.
Missir ykkar er mikill, einsog þið sjáið af myndinni hér að neðan.
Ég ráðlagði þeim sem hlýddu einnig um mikilvægi þess að vera mjór öllum stundum og kom aðeins inn á hvað er æskilegt að borða um hátíðirnar og hvaða fæðutegundir beri að varast á hátíð ljóss og friðar.
Fyrir ykkur sem skrópuðu læt ég nægja að koma með einfalda, holla, megrandi og þægilega uppskrift að eftirrétti sem ég geri öll jól.
Berjasæla Tískubloggsins
Innihald:
16 ferhyrndir ísmolar
Tveir lítrar af vatni
Eitt sólber
2 dl rauður matarlitur
1,5 dl aspartam
40 g kalk
200 g maísmjöl
Aðferð:
Sjóðið ísmolana í tveimur lítrum af vatni í að minnsta kosti 4 klst. Látið löginn svo standa í 40 mín. við opinn glugga. Setjið þvínæst sólberið út í og látið það liggja í leginum í tvær mínútur. Hellið leginum síðan í gegnum grisju og skiljið berið frá. Hendið síðan berinu.
Setjið matarlit og aspartam út í löginn og hrærið varlega rangsælis, þar til hann hefur samlagast vel. Bætið kalki og maísmjöli við og þeytið þar til blandan verður létt og ljós. Setjið hana síðan í fallegt form og geymið í ísskáp yfir nótt. Þið megið svo skreyta Berjasæluna með berjum ef ykkur lystir, en þið megið ekki borða þau.
Verði ykkur að góðu.
xoxo
-h
Tískubloggið kom fram á jóladagatali Norræna hússins í gær. Það var hátíðleg friðarstund þar sem við minntumst Hermanns, en í gær voru einmitt þrjú ár, tveir mánuðir og átta og hálfur dagur síðan hann dó. Að minningarstundinni lokinni leiðbeindi ég gestum Norræna hússins um viðeigandi klæðaburð um hátíðirnar. Þið sem misstuð af því fáið því aldrei að vita hvernig klæðaburður í jólaglögg með vinnunni er líklegastur til þess að leiða til kynlífs með yfirmanni og mögulegrar stöðuhækkunnar í kjölfarið og þið munuð heldur aldrei vita hversu mikilvægt tjull er á sjálfan aðfangadaginn.
Missir ykkar er mikill, einsog þið sjáið af myndinni hér að neðan.
![]() | |
| Ég og áhorfendur mínir höfðum mínútu þögn til að minnast Hermanns. Um hálsinn ber ég linsuboxið sem geymir jarðneskar leifar hans. |
Fyrir ykkur sem skrópuðu læt ég nægja að koma með einfalda, holla, megrandi og þægilega uppskrift að eftirrétti sem ég geri öll jól.
Berjasæla Tískubloggsins
Innihald:
16 ferhyrndir ísmolar
Tveir lítrar af vatni
Eitt sólber
2 dl rauður matarlitur
1,5 dl aspartam
40 g kalk
200 g maísmjöl
Aðferð:
Sjóðið ísmolana í tveimur lítrum af vatni í að minnsta kosti 4 klst. Látið löginn svo standa í 40 mín. við opinn glugga. Setjið þvínæst sólberið út í og látið það liggja í leginum í tvær mínútur. Hellið leginum síðan í gegnum grisju og skiljið berið frá. Hendið síðan berinu.
Setjið matarlit og aspartam út í löginn og hrærið varlega rangsælis, þar til hann hefur samlagast vel. Bætið kalki og maísmjöli við og þeytið þar til blandan verður létt og ljós. Setjið hana síðan í fallegt form og geymið í ísskáp yfir nótt. Þið megið svo skreyta Berjasæluna með berjum ef ykkur lystir, en þið megið ekki borða þau.
Verði ykkur að góðu.
xoxo
-h
Friday, November 25, 2011
megrun alla daga
Hola lovers,
Pjattrófurnar vita að allar konur vilja vera mjórri en þær eru. Þær lögðu nýverið til að lesendur sínir færu í megrun annan hvern dag, en skyldu þó jafnframt gæta „þess bara að ganga ekki of langt á „venjulegu“ dögunum og skemma allt“.
Mér finnst þetta ekki nógu djúpt í árina tekið hjá þeim og vil því hérmeð árétta að allar konur eiga að vera í megrun alla daga, en ekki bara annan hvern dag.
Því einsog þið sjáið, þá geisla allar grannar konur beinlínis af hamingju.

Thursday, November 3, 2011
Sunday, August 21, 2011
það sem við höfum alltaf vitað; varalitur eyðir femínisma (og blómatími íslenskra kvenna; árið 1981)
Hola lovers,
Ég mæli með því að þið hlustið öll á viðtalið við hana Tobbu hér. Þar bendir Tobba réttilega á að gagnrýni sem hún hefur fengið á fyrirhugaðan sjónvarpsþátt sinn frá meintum femínista falli kylliflöt um sjálfa sig, því sést hafi til meinta femínistans með varalit. En allir vita að femínistar eru ljótar, loðnar og leiðinlegar konur sem hugsa ekkert um útlitið og af því leiðir þá að konan getur ekki verið femínisti og gagnrýni hennar því með öllu ómarktæk.
Þetta er nokkuð sem ég hef lengi vitað; að snyrtivörur núlla út alla feminíska tilburði kvenna. Því allir vita að sætar konur þurfa ekki að vera teknar alvarlega, vera metnar að verðleikum, fá sanngjörn laun eða stjórnunarstöður. Aukinheldur benda rannsóknir til þess að konur eyði að meðaltali þremur árum lífs síns í að hugsa um útlitið, mála sig, klæða sig, greiða sér, raka á sér lappirnar, o.fl., og snyrtileg kona með varalit getur því varla haft tíma til að hafa áhyggjur af stöðu kvenna eða tíma til að mynda sér skoðanir sem mark er takandi á.
Tobba stærir sig af því að hafa fært réttindabaráttu kvenna aftur til ársins 1981 og heimtar einkennisbúning fyrir (ætti maður að líta á þetta sem áskorun, lovers? lógósamkeppnin sýndi svo sannarlega hversu liðtæk við erum í hönnun, einn einkennisbúningur ætti nú að vera lítið mál), en með því held ég að hún hljóti að vísa til þess hve mjög hún hefur lagt sitt af mörkum til þess að hefta útbreiðslu femínisma meðal kvenna – einmitt með því að halda að þeim sjónvarpsþáttum og bókum um varaliti.
(Og allir í þættinum eru reyndar alveg sammála um að það sé bara hið besta mál að færa kvenréttindabaráttuna aftur til ársins 1981, því þá hafi verið svo fínt að vera kona. Þó ég hafi ekki verið fædd það ár, þá held ég að þetta sé hárrétt hjá þeim, því ég sé ekki betur en árið 1981 hafi einmitt verið blómatími íslenskra kvenna. Þá var atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi 65% og á tímabilinu 1979-1981 voru laun kvenna í fullu starfi að jafnaði 71% af launum karlmanna, sem ég tel að endurspegli u.þ.b. muninn á virði þeirra sem manneskjur. Árið 1978 voru aukinheldur 5% þeirra sem kosnir voru til fjögurra ára setu á Alþingi konur, þar var enginn kvenkyns ráðherra, og árið 1986 var hlutfall kvenna í sveitarstjórnum 24,6%. Var þetta ekki bara ídeal, lovers?)
xoxo
-h
Ég mæli með því að þið hlustið öll á viðtalið við hana Tobbu hér. Þar bendir Tobba réttilega á að gagnrýni sem hún hefur fengið á fyrirhugaðan sjónvarpsþátt sinn frá meintum femínista falli kylliflöt um sjálfa sig, því sést hafi til meinta femínistans með varalit. En allir vita að femínistar eru ljótar, loðnar og leiðinlegar konur sem hugsa ekkert um útlitið og af því leiðir þá að konan getur ekki verið femínisti og gagnrýni hennar því með öllu ómarktæk.
Þetta er nokkuð sem ég hef lengi vitað; að snyrtivörur núlla út alla feminíska tilburði kvenna. Því allir vita að sætar konur þurfa ekki að vera teknar alvarlega, vera metnar að verðleikum, fá sanngjörn laun eða stjórnunarstöður. Aukinheldur benda rannsóknir til þess að konur eyði að meðaltali þremur árum lífs síns í að hugsa um útlitið, mála sig, klæða sig, greiða sér, raka á sér lappirnar, o.fl., og snyrtileg kona með varalit getur því varla haft tíma til að hafa áhyggjur af stöðu kvenna eða tíma til að mynda sér skoðanir sem mark er takandi á.
Tobba stærir sig af því að hafa fært réttindabaráttu kvenna aftur til ársins 1981 og heimtar einkennisbúning fyrir (ætti maður að líta á þetta sem áskorun, lovers? lógósamkeppnin sýndi svo sannarlega hversu liðtæk við erum í hönnun, einn einkennisbúningur ætti nú að vera lítið mál), en með því held ég að hún hljóti að vísa til þess hve mjög hún hefur lagt sitt af mörkum til þess að hefta útbreiðslu femínisma meðal kvenna – einmitt með því að halda að þeim sjónvarpsþáttum og bókum um varaliti.
![]() |
| Varalitur: Besta vopnið í baráttunni gegn femínisma. |
xoxo
-h
Tuesday, July 5, 2011
ástarbréf til Vefpressunnar ehf. - ekki fyrir viðkvæma
Hola lovers,
Ég held að Vefpressan ehf. sé uppáhaldsfyrirtækið mitt. Það er vegna þess að Vefpressan ehf. á flesta netmiðla á Íslandi (þ.m.t. Bleikt.is, sem er uppáhaldsheimasíðan mín) og fyrirtækið hefur unnið mjög markvisst að því að draga úr fréttaflutningi og einbeita sér frekar að því að ala upp íslenskt kvenfólk, móta skoðanir þeirra, segja þeim hvað þær eiga að kaupa (í netverslun sem Vefpressan ehf. á), segja þeim hvernig þær eigi að hegða sér á Facebook, segja þeim hvernig þær eigi að hegða sér í kringum karlmenn, segja þeim hvernig þær eigi að klæðast, verja feminískan rétt þeirra til að fá sér sílikon og ganga á háum hælum og síðast en ekki síst hefur Vefpressan ehf. innrætt konum þann algilda sannleika að það tekur enginn mark á því sem konur skrifa nema pistlinum fylgi mynd þarsem sést í a.m.k. 2/3 hluta af brjóstunum á þeim.
Og þá er að sjálfsögðu ónefnt þegar Vefpressan ehf. keypti vefritið Eyjuna og gerði sér lítið fyrir og mokaði út öllum konum þar, enda höfðu margir þær grunaðar um að vera kvenrembur (femínistar). Fyrir það löðurmannlega verk á Vefpressan góðar þakkir skildar, einsog ég fjallaði ítarlega um í þessari færslu.
Miðlar Vefpressunnar ehf. taka uppeldishlutverk sitt alvarlega og starfsfólkið er óþreytandi við að koma með ábendingar til kvenna um hvað þær eiga að elska (svar: töskur og skó), hvernig þær eiga að vilja vera í sumar (svar: sumarlegar og sætar) og hvernig þær eiga að borða til að léttast (svar: svona og svona og svona en ekki svona).
Vefpressunni ehf. er líka mjög umhugað um birtingarmynd kvenna á internetinu og fylgist greinilega grannt með því ef einhverjar óæskilegar konur birta myndir sem smætta kvenkynið einsog það leggur sig. Því auðvitað eiga konur sem uppfylla ekki þær ströngu útlitskröfur sem Vefpressan ehf. gerir til kvenna ekkert að vera að birta myndir af sér af netinu. Því það er einfaldlega „bara óhugnalegt“, svo ég vitni í grein sem birtist nýverið á Pressunni.
Og myndirnar af konunum sem fylgja eru sannarlega óhugnalegar og hljóta að fylla hvern þann sem skoðar ógeði.
Þar má sjá hvorki meira né minna en 10 myndir sem konur dirfðust að birta af sér á opinberum samskipta- og spjallvefum!
Bíræfnin í þessum konum gengur náttúrulega jafn mikið fram af mér og blaðamanni Pressunnar.
ATH AÐ VIÐKVÆMIR ERU VARAÐIR VIÐ ÞVÍ AÐ SKOÐA ÓHUGNAÐINN Í MYNDEFNINU SEM BIRTIST HÉR AÐ NEÐAN.
Í grein Pressunnar kemur fram að á internetinu finnist t.d. konur yfir kjörþyngd sem hika ekki við að birta myndir af sér þarsem þær eru léttklæddar:
Rauðhærð kona hefur sett sjálfmynd á netið og kært sig kollótta um þau áhrif sem þessi óhugnaður getur haft á góðborgara:
Og síðast en ekki síst þá má í greininni finna dæmi þess að jafnvel hafi gráhærð kona birt mynd af sér á brjóstahaldaranum einum fata:
Ég veit að þið eruð jafn sjokkeruð og ég, lovers.
En við getum þó alltént þakkað fyrir að starfsfólk Vefpressunnar ehf. sé sífellt á tánum og alltaf á vaktinni.
Við skulum bara vona að einhverjar konur yfir kjörþyngd, rauðhærðar konur og gráhærðar lesi þessa frétt og átti sig á óhugnaðinum sem útlit þeirra er og þær sjái í kjölfarið sóma sinn í því að hlífa öðru fólki við því að þurfa að horfa á þær.

Thursday, June 23, 2011
af prinsessum og hárumhirðu átta ára stúlkubarna
Hola lovers,
Ekki skil ég hvað kvenrembur eru að kvarta yfir þessum blessaða Prinsessuskóla sem er markaðssettur fyrir átta ára stúlkubörn. Því ég hef áður nefnt að það sé aldrei of snemmt fyrir stúlkur að byrja að huga að útlitinu og velta fyrir sér hvernig þær geti hámarkað útlitsgæði sín (sjá t.d. hér og hér), því þetta er enda hárrétt hjá honum Gunnari Ingvarssyni sem skrifaði athugasemd við fréttina á DV, en hann ritar: „Eins lengi og sögu herma hafa konur notað ýmis ráð til að auka fegurð sína til að gana í augun á kalmönnum. Sumar konur eru reyndar þannig að engin meðul geta gert þær ásjálegar og þær verð feministar.“
Í rauninni finnst mér ekkert eðlilegra en að stúlkubörn langi til að verða prinsessur, enda hafa prinsessur löngum verið táknmynd um kvenlega auðmýkt, fegurð og lítillæti og þær eru í raun holdgervingar alls þess sem konur ættu að vera. Því þær voru sko alls ekki haldnar þessum ranghugmyndum um eigið ágæti sem einkennir því miður margar nútímakonur, enda gerðu þær sér í flestum tilvikum fulla grein fyrir því að þrátt fyrir að deila með þeim erfðaefni, þá væru þær að sjálfsögðu miklu minna hæfar til að að stýra þjóðríkjum en feður þeirra, bræður, frændar og synir, enda erfðust krúnur yfirleitt í beinan karllegg.
Þær gerðu sér heldur engar rómantískar grillur, því hefð var fyrir því að nota þær sem gjaldmiðil í milliríkjasamskiptum og þær voru iðulega seldar í hjónabönd í skiptum fyrir landsvæði og herafla, eða svo karlmennirnir í kringum þær gætu styrkt pólitískt samband ríkja sinna og tryggt sér völd. Þannig settu þær hagsmuni eiginmanna sinna, feðra og föðurlands framar sínum eigin metnaði fyrir lífshamingju, því þær voru hin kvenlega dyggð uppmáluð.
Og þó þær þjáðust oft og tíðum af ýmsum erfðakvillum vegna innræktunar og skyldraæxlunar innan konungsfjölskylda, þá báru þær harm sinn í hljóði, því þær vissu að það að halda völdunum hjá karlmönnunum í ættinni var mikilvægara en það að vera litningagallalaus.
Prinsessur nútímans þurfa heldur ekkert að bisa við að finna sér ævistarf, eða huga að einhverjum „frama“, því það að vera táknmynd kvenlegrar auðmýktar er fullt starf, sem sýnir sig best á því að þeim almúgakonum sem gifta sig inn í konungsfjölskyldur er yfirleitt gert að segja starfi sínu lausu um leið.
Af ofansögðu má sjá að betri fyrirmynd fyrir átta ára stúlkubörn er vandfundin, og ég get satt að segja ekki ímyndað mér neina aðra fyrirmynd sem þær ættu frekar að vilja líkjast.
Ég fagna því einnig innilega að ungum stúlkum sé nú kennd hand- og fótsnyrting, því annars gætu þær verið að nota þessa útlimi til þess að gera eitthvað ógeðslegt einsog að klifra í trjám, sulla í pollum, kasta boltum eða hlaupa. Mér hefur einnig lengi þótt að hárumhirðu átta ára stúlkubarna sé afar ábótavant og því fagna ég því ákaft að einhver ætli að taka að sér að aga þær almennilega og kenna þeim að greiða sér og litgreina jafnframt hvernig litar teygjur þær ættu helst að nota í hárið á sér.
Það eina sem ég setti spurningarmerki við í sambandi við þetta námskeið var að á heimasíðunni kemur fram að þær eigi að taka með sér „holt“ nesti. Í fyrstu hélt ég að þetta væri handvömm síðuhaldara og hún hafi ætlað að slá inn „hollt“ í staðinn, en svo áttaði ég mig á því að auðvitað er henni bara umhugað um að stúlkurnar á námskeiðinu fitni ekki óhóflega og því bendir hún foreldrum á að loftrými skuli vera í nesti þeirra, t.d. rúnstykki sem búið er að fjarlægja miðjuna úr svo skorpan ein er eftir.
Ég vildi næstum því óska þess núna að ég hefði ekki farið í legnám og að ég ætti dóttur til að senda í þennan skóla.

| Hér er dæmi um konu sem kann að litgreina. |
Thursday, May 26, 2011
betra er seint en aldrei - fegrunarpistill fyrir Hernaðarandstæðinga
Hola lovers,
Fyrir ógeðslega löngu þá var ég beðin um að skrifa fegrunarpistil fyrir tímarit Hernaðarandstæðinga. Ég ætlaði að vera búin að birta hann fyrir löngu en gleymdi því.
En hér kemur hann núna. Afsakið biðina.
Hola lovers,
Ég er helsti sérfræðingur landsins í fegrunum, megrunum og tísku, og var því beðin um að leiðbeina ykkur um fallegt útlit og hvernig á að vera töff. Ég ákvað að taka þessari áskorun, þó ég telji að það séu afar litlar líkur á árangri (ég hef séð myndir af ykkur).
Ég vil byrja á því að hreinsa loftið og segja ykkur sannleikann; Það er ekki í tísku að vera hernaðarandstæðingur.
Því herir eru töff. Hermenn og -konur fá að vera í töff búningum með töff hárgreiðslu og þau fá að vera með töff byssur, þau fá að vita ýmis töff hernaðarleyndarmál á undan almúganum og herir skilja flestir homma og lesbíur útundan, sem er töff.
Það eru líka gerðar töff bíómyndir um hermenn og -konur þarsem þau bjarga litlum gyðingabörnum, vingast við flækingshunda í Írak og finna falleg lótusblóm í daunillum fenjum Víetnam.
Og ef hernaðarandstæðingar og her færu í slag þá held ég að við vitum öll hver myndi vinna.
Aukinheldur skemmdi það mannorð ykkar mikið þegar þið voruð á móti veru Bandaríkjahers hér á landi. Því það er ekkert minna í tísku í öllum heiminum en að vera á móti Bandaríkjunum, afþví að bandarísk þjóð er besta þjóð í heimi, afþví að Bandaríkjamenn fundu uppá Baconnaise.
Þannig að ef þið viljið vera töff er fyrsta ráðlegging mín til ykkar því að hætta að vera hernaðarandstæðingar.
Ef þið getið ekki hugsað ykkur að hætta því þá er það skásta í stöðunni að hætta að minnsta kosti að líta út einsog hernaðarandstæðingar og vona að enginn komist að þessari annarlegu hneigð ykkar.
Svona farið þið að því:
Innkaupalistinn:
Snyrtivörur sem innihalda mikið paraben. Þetta er hið allra nauðsynlegasta sem allir þurfa að eiga: dagkrem, næturkrem, síðdegiskrem, augnkrem, svitaholukrem, meik, púður, hyljari, augnskuggi, augnblýantur, eyeliner, undirmaskari til að þykkja augnhár, maskari, sólarpúður, kinnalitur, varablýantur, varalitur og gloss. (Ath. að þessi listi er ekki tæmandi)
Leggingsbuxur með tígrisdýramynstri. (Eða leggings úr alvöru tígrisdýri, ef þið hafið efni á því (eða úr einhverju meira töff dýri sem er í enn meiri útrýmingarhættu, einsog ísbirni (eða górillu)))
Latexgalli með hönskum og hettu.
Sjampó með miklum aukaefnum og helst í bleikum eða fjólubláum umbúðum. Hárnæring, djúpnæring, hárkrem, hársprey og vax úr sömu línu.
Spegill.
Hárbursti.
Augnháraplokkari.
Rakvél.
PC-fartölva frá þýskum framleiðanda sem hagnaðist á dularfullan hátt á tímum seinni heimsstyrjaldar.
Kaffi sem er ekki Fair Trade.
Þrennar blúndunærbuxur.
Farið síðan í dýrustu búðina á svæðinu, bendið starfsmanni á eina gínu og segið: „Ég ætla að fá allt sem hún er í í minni stærð“.
Farið í aðra búð og endurtakið leikinn.
Farið í þriðju búðina og endurtakið leikinn.
Þessi aðferð er ykkur nauðsynleg, því þið kunnið ekki að klæða ykkur einsog venjulegt fólk. Svona getið þið feikað það. Munið bara að taka mynd af gínunni (eða rissa hana upp, því ég efa að þið eigið farsíma með myndavél) svo þið vitið hvernig þið eigið að raða flíkunum saman þegar heim er komið. Ég ráðlegg ykkur einnig að biðja afgreiðslufólkið í búðinni að númera fyrir ykkur flíkurnar svo þið vitið í hvaða röð þið eigið að fara í þær.
Þegar heim er komið mæli ég með því að þið farið síðan á internetið í nýju tölvunni ykkar og skoðið myndbönd af því hvernig á að nota snyrtivörurnar sem þið keyptuð ykkur. Ef þið eigið þess kost skuluð þið einnig reyna að vingast við venjulega manneskju sem hefur töff skoðanir og fylgjast grannt með því hvernig hún klæðir sig, snyrtir og hegðar sér í daglegu lífi.
Þið skuluð einnig lesa daglega ráðleggingar mínar á Tískublogginu, tiskublogg.blogspot.com.
xoxo
-h
Fyrir ógeðslega löngu þá var ég beðin um að skrifa fegrunarpistil fyrir tímarit Hernaðarandstæðinga. Ég ætlaði að vera búin að birta hann fyrir löngu en gleymdi því.
En hér kemur hann núna. Afsakið biðina.
***
Ég er helsti sérfræðingur landsins í fegrunum, megrunum og tísku, og var því beðin um að leiðbeina ykkur um fallegt útlit og hvernig á að vera töff. Ég ákvað að taka þessari áskorun, þó ég telji að það séu afar litlar líkur á árangri (ég hef séð myndir af ykkur).
![]() |
| Rakaðu af þér skeggið. |
Því herir eru töff. Hermenn og -konur fá að vera í töff búningum með töff hárgreiðslu og þau fá að vera með töff byssur, þau fá að vita ýmis töff hernaðarleyndarmál á undan almúganum og herir skilja flestir homma og lesbíur útundan, sem er töff.
Það eru líka gerðar töff bíómyndir um hermenn og -konur þarsem þau bjarga litlum gyðingabörnum, vingast við flækingshunda í Írak og finna falleg lótusblóm í daunillum fenjum Víetnam.
Og ef hernaðarandstæðingar og her færu í slag þá held ég að við vitum öll hver myndi vinna.
Aukinheldur skemmdi það mannorð ykkar mikið þegar þið voruð á móti veru Bandaríkjahers hér á landi. Því það er ekkert minna í tísku í öllum heiminum en að vera á móti Bandaríkjunum, afþví að bandarísk þjóð er besta þjóð í heimi, afþví að Bandaríkjamenn fundu uppá Baconnaise.
Þannig að ef þið viljið vera töff er fyrsta ráðlegging mín til ykkar því að hætta að vera hernaðarandstæðingar.
Ef þið getið ekki hugsað ykkur að hætta því þá er það skásta í stöðunni að hætta að minnsta kosti að líta út einsog hernaðarandstæðingar og vona að enginn komist að þessari annarlegu hneigð ykkar.
Svona farið þið að því:
- Klippið af ykkur dreddana.
- Farið í bað.
- Notið sápu sem er ekki með umhverfisvottun og sem inniheldur mikið af lyktar- og litarefnum.
- Farið í hrein nærföt (ef þið eigið þau yfir höfuð til).
- Hendið öllu úr skápnum ykkar sem er úr hör eða hampi. Flíkur sem eru í karrígulum, heiðbláum, rústrauðum eða mosagrænum litum skal einnig henda. Heimasaumaðar flíkur skulu fara sömu leið.
- Hendið öllum flíkum sem á stendur Free Tibet.
- Hendið öllum flíkum sem eru með mynd af Che Guevara.
- Hendið varasalvanum ykkar.
- Klæðið ykkur í það sem þið finnið í skápnum sem líkist helst klæðnaði venjulegrar manneskju og farið í verslunarleiðangur í verslunarmiðstöð (það er bannað að fara á Laugaveg eða Skólavörðustíg).
Innkaupalistinn:
Snyrtivörur sem innihalda mikið paraben. Þetta er hið allra nauðsynlegasta sem allir þurfa að eiga: dagkrem, næturkrem, síðdegiskrem, augnkrem, svitaholukrem, meik, púður, hyljari, augnskuggi, augnblýantur, eyeliner, undirmaskari til að þykkja augnhár, maskari, sólarpúður, kinnalitur, varablýantur, varalitur og gloss. (Ath. að þessi listi er ekki tæmandi)
Leggingsbuxur með tígrisdýramynstri. (Eða leggings úr alvöru tígrisdýri, ef þið hafið efni á því (eða úr einhverju meira töff dýri sem er í enn meiri útrýmingarhættu, einsog ísbirni (eða górillu)))
Latexgalli með hönskum og hettu.
Sjampó með miklum aukaefnum og helst í bleikum eða fjólubláum umbúðum. Hárnæring, djúpnæring, hárkrem, hársprey og vax úr sömu línu.
Spegill.
Hárbursti.
Augnháraplokkari.
Rakvél.
PC-fartölva frá þýskum framleiðanda sem hagnaðist á dularfullan hátt á tímum seinni heimsstyrjaldar.
Kaffi sem er ekki Fair Trade.
Þrennar blúndunærbuxur.
Farið síðan í dýrustu búðina á svæðinu, bendið starfsmanni á eina gínu og segið: „Ég ætla að fá allt sem hún er í í minni stærð“.
Farið í aðra búð og endurtakið leikinn.
Farið í þriðju búðina og endurtakið leikinn.
![]() |
| Farðu í klippingu. |
Þegar heim er komið mæli ég með því að þið farið síðan á internetið í nýju tölvunni ykkar og skoðið myndbönd af því hvernig á að nota snyrtivörurnar sem þið keyptuð ykkur. Ef þið eigið þess kost skuluð þið einnig reyna að vingast við venjulega manneskju sem hefur töff skoðanir og fylgjast grannt með því hvernig hún klæðir sig, snyrtir og hegðar sér í daglegu lífi.
Þið skuluð einnig lesa daglega ráðleggingar mínar á Tískublogginu, tiskublogg.blogspot.com.
xoxo
-h
Wednesday, April 27, 2011
mæður landsins
Hola lovers,
Var ég ekki löngu búin að segja ykkur að það sökkar að eignast börn? Ég þurfti a.m.k. ekki að hugsa mig um tvisvar þegar ég ákvað að fara í legnám.
Og nú kemur í ljós að mæður mega ekki einusinni drekka með formlegum hætti hérna á Íslandi.
Ég tek bara undir orð Þóru Sigurðardóttur, blaðakonu á Pressunni:
"Nú er bara að bíða eftir að vínið fáist í ÁTVR þannig að mæður geti formlega farið að fá sér í glas."
Því eitthvað verða þessir aumingjar að hafast við á milli þess sem þær skipta um kúkableyjur, setja í þvottavél og láta sig dreyma um fitusog á meðan maðurinn þeirra heldur framhjá þeim.

| Það er ekkert helvítis mömmuvín á borðum á mínu heimili. |
Thursday, February 3, 2011
leyfið börnunum að koma til mín
Hola lovers,
Alltaf tekst þessum Pjattrófum að vera skrefi á undan mér.
Ég hef barist ötullega fyrir útbreiðslu Tískubloggsins, því planið er að lifa alfarið á auglýsingatekjum af síðunni og til þess þurfa lesendurnir að vera margir.
Ég stóð hinsvegar í þeirri meiningu að það væri ólöglegt að beina markaðssetningu að börnum, en það hefur greinilega verið misskilningur.
Því gær kynntu Pjattrófurnar nýjan leik þarsem 14-18 ára börn áttu að láta alla vini sína læka Pjattrófusíðuna á Facebook og í staðinn gætu börnin fengið ókeypis brúnkusprey (en þess ber þó kannski að geta að þær hækkuðu aldurinn síðar uppí 15-18 ára, án þess að ég skilji afhverju).
Tískubloggið var að sjálfsögðu svolítið sjokkerað yfir því að hafa ekki látið sér detta þetta í hug fyrst, því börn eru mikilvægir og stórtækir neytendur, (og það er aldrei of snemmt að byrja að láta þau hugsa um útlitið sbr. t.d. hér og hér ) en þarsem ég er afar löghlýðin manneskja þá fannst mér réttast að athuga aðeins lagarammann um þetta málefni áður en ég hætti mér útí viðlíka markaðsherferð. (Því ég vil síður lenda í fangelsi, þó vistin gæti reyndar gefið mér ágætis tóm til að ljúka við lífstílsbók mína)
Eftir nokkuð grúsk komst ég að því að það eru ekki beinlínis nein lög til um markaðssetningu til barna viðlíka þeirri sem Pjattrófurnar hófu í gær og ég hyggst leika eftir. En þó er til eitthvað sem heitir Leiðbeinandi reglur um neytendavernd barna (sjá hér).
Og ég sé meira að segja ekki betur en markaðsherferð Pjattrófanna sé akkúrat markaðsherferð sem sniðin er að þörfum barna og til þess fallin að stuðla að heilbrigði líkamsvitund.
Í lið II) 4. Heilbrigði segir: Markaðssókn, sem beinist að börnum, á að leitast við að miðla heilbrigðri líkamsmynd og mannvirðingu og forðast óheilbrigðar staðalmyndir.
En allir vita að að börn sem eru tönuð og sæt í febrúar eru í raun afar heilbrigð staðalmynd og miðla heilbrigðri líkamsmynd til samfélagsins. Það mætti því í raun segja að Pjattrófurnar starfi í þágu barna, og kann ég þeim þökk fyrir, því börnin eru framtíð Íslands.
Eiginlega eru þær góðgerðarsamtök, frekar en megrunar- og lífstílsblogg.
Ég hef því eðlilega verið að velta fyrir mér hvernig ég geti herjað á æsku Íslands í mínu eigin markaðsstarfi.
Mér finnst algjör óþarfi að draga mörkin við fjórtán eða fimmtán ára aldurinn, og tel það sé hyggilegast að byrja fyrr, og einbeita sér að átta til níu ára gömlum börnum.
Mér datt í hug að halda kannski svona samkeppni þarsem átta ára börn deila Facebooksíðu Tískubloggsins til allra vina sinna, kvitta síðan á vegginn, senda mynd af sér og svo vel ég sætasta barnið og sendi því svolítið beikon, ásamt viðurkenningarskjali.*
*Að sjálfsögðu þyrfti samþykki foreldra barnsins þó að liggja fyrir áður en það fær að veita verðlaununum viðtöku.
xoxo
-h
ÖPPDEIT:
Jiii, lovers.
Svo virðist vera sem þetta sé ekki alveg leyfilegt hjá Pjattrófunum, sbr. þessa frétt hér. Ég held ég bíði aðeins með að starta minni eigin markaðsherferð þangað til ég sé hvort Pjattrófurnar fara í fangelsi eða hvort þær sleppa með skrekkinn.
Alltaf tekst þessum Pjattrófum að vera skrefi á undan mér.
Ég hef barist ötullega fyrir útbreiðslu Tískubloggsins, því planið er að lifa alfarið á auglýsingatekjum af síðunni og til þess þurfa lesendurnir að vera margir.
Ég stóð hinsvegar í þeirri meiningu að það væri ólöglegt að beina markaðssetningu að börnum, en það hefur greinilega verið misskilningur.
Því gær kynntu Pjattrófurnar nýjan leik þarsem 14-18 ára börn áttu að láta alla vini sína læka Pjattrófusíðuna á Facebook og í staðinn gætu börnin fengið ókeypis brúnkusprey (en þess ber þó kannski að geta að þær hækkuðu aldurinn síðar uppí 15-18 ára, án þess að ég skilji afhverju).
Tískubloggið var að sjálfsögðu svolítið sjokkerað yfir því að hafa ekki látið sér detta þetta í hug fyrst, því börn eru mikilvægir og stórtækir neytendur, (og það er aldrei of snemmt að byrja að láta þau hugsa um útlitið sbr. t.d. hér og hér ) en þarsem ég er afar löghlýðin manneskja þá fannst mér réttast að athuga aðeins lagarammann um þetta málefni áður en ég hætti mér útí viðlíka markaðsherferð. (Því ég vil síður lenda í fangelsi, þó vistin gæti reyndar gefið mér ágætis tóm til að ljúka við lífstílsbók mína)
Eftir nokkuð grúsk komst ég að því að það eru ekki beinlínis nein lög til um markaðssetningu til barna viðlíka þeirri sem Pjattrófurnar hófu í gær og ég hyggst leika eftir. En þó er til eitthvað sem heitir Leiðbeinandi reglur um neytendavernd barna (sjá hér).
Og ég sé meira að segja ekki betur en markaðsherferð Pjattrófanna sé akkúrat markaðsherferð sem sniðin er að þörfum barna og til þess fallin að stuðla að heilbrigði líkamsvitund.
Í lið II) 4. Heilbrigði segir: Markaðssókn, sem beinist að börnum, á að leitast við að miðla heilbrigðri líkamsmynd og mannvirðingu og forðast óheilbrigðar staðalmyndir.
En allir vita að að börn sem eru tönuð og sæt í febrúar eru í raun afar heilbrigð staðalmynd og miðla heilbrigðri líkamsmynd til samfélagsins. Það mætti því í raun segja að Pjattrófurnar starfi í þágu barna, og kann ég þeim þökk fyrir, því börnin eru framtíð Íslands.Eiginlega eru þær góðgerðarsamtök, frekar en megrunar- og lífstílsblogg.
Ég hef því eðlilega verið að velta fyrir mér hvernig ég geti herjað á æsku Íslands í mínu eigin markaðsstarfi.
Mér finnst algjör óþarfi að draga mörkin við fjórtán eða fimmtán ára aldurinn, og tel það sé hyggilegast að byrja fyrr, og einbeita sér að átta til níu ára gömlum börnum.
Mér datt í hug að halda kannski svona samkeppni þarsem átta ára börn deila Facebooksíðu Tískubloggsins til allra vina sinna, kvitta síðan á vegginn, senda mynd af sér og svo vel ég sætasta barnið og sendi því svolítið beikon, ásamt viðurkenningarskjali.*
*Að sjálfsögðu þyrfti samþykki foreldra barnsins þó að liggja fyrir áður en það fær að veita verðlaununum viðtöku.
xoxo
-h
ÖPPDEIT:
Jiii, lovers.
Svo virðist vera sem þetta sé ekki alveg leyfilegt hjá Pjattrófunum, sbr. þessa frétt hér. Ég held ég bíði aðeins með að starta minni eigin markaðsherferð þangað til ég sé hvort Pjattrófurnar fara í fangelsi eða hvort þær sleppa með skrekkinn.
Monday, January 31, 2011
enn frekar af hártísku ungbarna
Hola lovers,
Hárleysi ungbarna er greinilega mun útbreiddara og algengara vandamál en mig hefði órað fyrir. Það er gott að Húsmóðir helvítis tók af skarið og opnaði umræðuna fyrir þetta viðkvæma mál hér í gestapósti, því það eru greinilega ýmis úrræði í boði fyrir þá sem eru tilbúnir að viðurkenna vandamálið og leita sér í kjölfarið hjálpar.
Velviljaðir lesendur hafa bent síðunni á lausnir sem henta ef til vill efnameira fólki, eða þeim sem eru ekki nægilega handlagnir til að nýta sér ráðleggingar Húsmóðurinnar.
Ef þú ert ein/n af þeim sem hefur tíu þumalfingur og ekkert ímyndunarafl þá gæti þetta verið eitthvað fyrir þig og sköllótta ungbarnið þitt.
Heklaðar hárkollur
Þessar einstaklega fallegu, hlýju og endingargóðu hárkollur má fá á Ebay fyrir aðeins 45 Bandaríkjadali.
Nánari upplýsingar og pantanir hér.
Hárkollur með áföstu hárbandi
Þessar þokkafullu og elegant ungbarnahárkollur eru gerðar úr efni sem heitir kanekalon og innra byrðið er úr mjúku flísefni sem fer vel með viðkvæma húð. Þær kosta u.þ.b. 30 Bandaríkjadali, að viðlögðu sendingargjaldi, en það þykir mér vera lágt verð fyrir að þurfa aldrei aftur að skammast sín fyrir barnið sitt!
Nánari upplýsingar og pantanir hér.
Ég vil þakka þeim lesendum sem sendu ábendingarnar kærlega fyrir.
Það er gott að vita af fólki einsog ykkur sem tekur samfélagslega ábyrgð sína á ófríðum ungbörnum alvarlega og lætur sig málin varða.

Thursday, January 13, 2011
hreyfing og brennsla á nýju ári
![]() |
| Ég á svona íþróttagalla, nema í koparlit. |
Einsog þið vitið vonandi, þá er hreyfing nauðsynleg fyrir brennslu og brennsla er nauðsynleg til að halda sér mjórri.
Þessvegna fór ég stundum í líkamsrækt, en þurfti að taka mér pásu eftir legnámið. Ég var síðan eitthvað löt við að byrja aftur þó ég væri búin að ná mér andlega eftir aðgerðina, en nú á nýju ári og nýrri kennitölu (sem yngdi Tískubloggið blessunarlega um þónokkur ár) ákvað ég að drífa mig aftur í þjálfun.
Ég fór í þol- og styrktarpróf hjá einkaþjálfara mínum, og þar kom í ljós að ég bý yfir 0,027 hestöflum* (hö.), en það er töluvert lakari mæling en áður en ég fór í aðgerðina síðla sumars (en þá var mælingin 0,029 hestöfl (hö.)).
Niðurstöðurnar ullu mér að sjálfsögðu töluverðum vonbrigðum, en ég hef einsett mér að halda vel á spöðunum í þjálfuninni og ná mínum fyrri styrk og snerpu.
Þið fáið að sjálfsögðu að fylgjast með framvindu mála hér á blogginu.
xoxo
-h
*1 HP ≡ 33,000 ft·lbf/min by definition
= 550 ft·lbf/s since 1 min = 60 s
= 550×0.3048×0.45359237 m·kgf/s since 1 ft = 0.3048 m and
= 76.0402249068 kgf·m/s 1 lb = 0.45359237 kg
= 76.0402249068×9.80665 kg·m2/s3 g = 9.80665 m/s2
= 745.69987158227022 W since 1 W ≡ 1 J/s = 1 N·m/s = 1 (kg·m/s2)·(m/s)
Or given that 1 hp = 550 ft·lbf/s, 1 ft = 0.3048 m, 1 lbf ≈ 4.448 N, 1 J = 1 N·m, 1 W = 1 J/s: 1 hp = 746W
(Svona skilgreinir einkaþjálfari minn hestöfl (hö.) (en hann er útlenskur og því er skilgreiningin á útlensku. Ég veit að þið eruð ekki öll mjög sleip í ensku og því skellti ég henni í gegnum afar hagkvæma þýðingarmaskínu sem ég rakst nýverið á á ráfi mínu um internetið og svona lítur hún út á íslensku:
HP ≡ 33.000 ft · lbf / mín við skilgreiningu
= 550 ft · lbf / s því 1 min = 60 s
= 550 × 0,3048 × 0,45359237 m · KGF / s síðan 1 ft = 0,3048 m
= 76,0402249068 KGF · m / s £ 1 = 0,45359237 kg
= 76,0402249068 × 9,80665 kg · m2/s3 g = 9,80665 m / s 2
= 745,69987158227022 W síðan 1 W ≡ 1 J / s = 1 n ° m / s = 1 (kg · m/s2) ¨ (m / s)
Eða gefið að 1 hö = 550 ft · lbf / s, 1 ft = 0,3048 m, 1 lbf ≈ 4,448 N, 1 J = 1 n ° m, 1 W = 1 J / s: 1 hö = 746W
(verði ykkur að góðu)))
Tuesday, January 11, 2011
brjóstastækkun og BMI-stuðull
Hola lovers,
Muniði að ég var að hugsa um að fara í nýstárlega brjóstastækkun?
Jæja, ég er hætt við.
Því ég var að komast að því að erfðabreyttu kínversku marglytturnar vega 1,5 kg hver, og því myndi ég þyngjast um heil þrjú kíló við það eitt að fara í aðgerðina. (Þó mætti gera ráð fyrir því að ég myndi missa töluvert af blóði í aðgerðinni, og léttast þannig um u.þ.b. hálft kíló (ef ég er heppin), en því miður þá yrði það ekki varanlegt þyngdartap, því líkaminn á það nefnilega til að endurnýja reglulega blóðbirgðir sínar).
Og ef ég þyngist um heil þrjú kg við aðgerðina þá hækkar BMI-stuðull minn uppí 13.4, sem er náttúrulega fullkomlega óásættanlegt fyrir einstakling með mína líkamsgerð og snefil af sjálfsvirðingu.
Ég íhugaði að láta fjarlægja nokkur rifbein og annan óþarfa til að jafna út þyngdaraukninguna, en mannabein hafa lítinn eðlismassa og því gengur það reikningsdæmi því miður ekki upp.
Ég hef því ákveðið að hætta við brjóstastækkunina og vera bara ekónómísk og fá mér uppblásanlegan brjóstahaldara í staðinn.
Því einsog þið eflaust vitið, þá vegur loft varla neitt.

Tuesday, January 4, 2011
100% náttúruleg brjóstastækkun
Hola lovers,
Eftir að ég birti átfittmyndina af mér í rauða latexsamfestingnum af kærastanum þá bentu nokkrir lesendur mér kurteislega á að ég væri alltof flatbrjósta og ætti að sjá sóma minn í því að fara í brjóstastækkun. Þetta hefur mig raunar lengi grunað, að útlit mitt væri óásættanlegt í nútímasamfélagi, og þarsem svo lítið mál er að laga náttúrulegan vanskapnað á borð við lítil brjóst hef ég mér engar málsbætur.
Reyndar væri það sjálfsögð kurteisi af mér við samferðarmenn mína að láta laga þetta, og þá gæti ég líka hætt að vanvirða sköpunarverk fataframleiðenda með því að passa ekki í flíkurnar frá þeim eða þurfa að láta breyta þeim svo þær passi mínu pervisna formi.
Brjóstastækkun er líka afar þægileg og ódýr aðgerð. Hún tekur u.þ.b. tvær klukkustundir og kostar ekki nema 375.000-460.000 kr., „mjög lágt hlutfall kvenna fær innvortis sýkingu í vefina kringum brjóstapúðann“, og einungis í „einstaka tilfellum getur púðinn sprungið eða lekið“.
En gerist það er það svosem ekkert stórmál, því það eina sem skeður er að þá „getur sílikongel smeygt sér inn í aðra vefi í brjóstinu og myndað lítil lokuð hólf utan um gelið hér og hvar í brjóstinu. Við þetta eru miklar líkur á að brjóstið aflagist og glati eðlilegu formi sínu“, en „ekki tekst þó alltaf að fjarlægja allt gel úr brjóstinu komi slíkur leki upp“.
Ég ákvað að fá mér sílikonpúða frekar en með saltlausn, því „á liðnum áratug hefur sílikonpúðinn verið ítarlega rannsakaður og mestallur ágreiningur um öryggi sílikonpúðans verið leystur“.
En einsog þið vitið þá er mér afað umhugað um náttúruna, og umhverfisvernd er a.m.k. á topp 750 listanum yfir áhugamál mín, og því fannst mér svolítið slæmt að vera að styðja framleiðslu á svo ónáttúrulega efni sem sílikon er, en ég var þó tilbúin að gera það af kurteisi við fataframleiðendur.
Þið getið því ímyndað ykkur gleði mína þegar ég rakst á afar áhugaverða grein í róttæku kínversku læknisfræðiblaði þarsem kynntir voru til sögunnar nýir, byltingarkenndir og umhverfisvænir brjóstapúðar.
Þarlendum læknum hefur nefnilega tekist, með aðstoð stofnfruma úr kínverskum stúlkubörnum sem enginn vill eiga, að rækta marglyttur sem henta einstaklega vel sem brjóstapúðar.
Einsog þið sjáið af skýringarmyndunum hér að ofan er munurinn nánast enginn. Marglytturnar eru auk þess mun hentugri kostur því þær eru 100% náttúrulegar, menga ekki og samlagast stoðvef í brjóstum fullkomlega. Að auki fara stofnfrumurnar útí blóðrásina og minnka hrukkur, auka kynhvöt og bæta meltinguna.
Ég ætla því að hafa samband við lýtalækna hérlendis og athuga hvort þeir hafa ekki áhuga á að prófa þessa róttæku lækningaraðferð, fyrstir Evrópubúa.

| Skýringarmynd 1: Sílikonbrjóstapúðar. |
![]() |
| Skýringarmynd 2: Erfðabreyttar kínverskar marglyttur. |
![]() |
| Skýringarmynd 3: Fleiri erfðabreyttar kínverskar marglyttur. |
Einsog þið sjáið af skýringarmyndunum hér að ofan er munurinn nánast enginn. Marglytturnar eru auk þess mun hentugri kostur því þær eru 100% náttúrulegar, menga ekki og samlagast stoðvef í brjóstum fullkomlega. Að auki fara stofnfrumurnar útí blóðrásina og minnka hrukkur, auka kynhvöt og bæta meltinguna.
Ég ætla því að hafa samband við lýtalækna hérlendis og athuga hvort þeir hafa ekki áhuga á að prófa þessa róttæku lækningaraðferð, fyrstir Evrópubúa.
xoxo
-h
Wednesday, December 29, 2010
þá er það skjalfest! (a.k.a. ég játa)
Hola lovers,
Það er þá einsog mig hefur lengi grunað. Konur eru konum verstar.
Mig hefur nefnilega lengi grunað þetta, en ekki fengið staðfest fyrr en nú. Að konur hefðu komið glerþakinu fyrir, konur berjist í laumi fyrir launamun kynjanna og fáum konum í stjórnunarstöðum og síðast en ekki síst að það eru í raun konur sem setja strangar útlitskröfur sem oft á tíðum eru gerðar til kvenna, því einsog greinin sýnir með óyggjandi hætti fram á þá eru „margar konur [...] einfaldlega að reyna að standast kröfur sem gerðar eru til þeirra. Og hver gerir þessar kröfur? Jú - aðrar konur“.
Alveg grunaði mig þetta, lovers. Það hlýtur að vera af þessum sökum sem að ljótar konur komast aldrei langt á vinnumarkaði eða í pólitík, því það eru aðrar konur sem stjórna því hverjar vinna sig upp og hverjar ekki, og þessar konur setja strangar útlitskröfur. Þessvegna höfum við, líkt og greinarhöfundur þessarar kennslugreinar um karlmennsku „heyrt talað um kynþokkafullar bissness konur sem klifra upp metorðastigann af hreint út sagt útsmognum kvenleika“.
[Innskot: Ég vil nota tækifærið og gleðjast svolítið yfir því að á vefritinu Bleikt.is - Vefur fyrir drottningar, sé hugað að báðum kynjum, en ekki bara konum einsog áður hafði verið lofað, þarsem af yfirlýsingum ritstjóra mátti skilja sem svo að á vefnum ætti eingöngu að vera efni sem allar konur jarðar hafa áhuga á. Mikið er ég fegin að þar virðist alvöru jafnréttisstefna ríkja á ritstjórninni, en ekki femínismi (kvenremba), því einsog ég hef skrifað hér áður þá finnst mér að femínistar ættu frekar að einbeita sér svolítið að því að berjast fyrir réttindum karla ef þær ætla að gera tilkall til þess að vilja jafnrétti. Það er því sannkallað gleðiefni að kvenkyns lesendum Bleikt.is sé þar falið það verkefni að aðstoða menn sína við að verða karlmannlegri.]
Konur eru konum verstar.
Og ég játa að ég er sek um það sem greinin sakar mig um. Ég geri miklar útlitskröfur til vinkvenna minna og þeirra kvenmanna sem ég umgengst. Svo miklar reyndar að ég hætti að tala við mömmu mína þegar hún varð gráhærð (það eru að verða komin fimm ár núna, en ég sakna þess ekki að umgangast hana, því hver vill eiga það á hættu að sjást með henni og láta það fréttast að maður eigi gráhærða og ljóta mömmu?). Ömmu mína hef ég ekki séð í ein sautján ár (mér ofbuðu hrukkurnar), og það eru a.m.k. fimm vinkonur sem ég losaði mig við afþví þær voru of feitar fyrir minn félagsskap, ein fékk að róa afþví að hún fékk ítrekað frunsur og önnur afþví hún fékk leghálskrabbamein og missti allt hárið í lyfjameðferðinni.
Og ég get ekki þrætt fyrir það að stingandi augnaráðið sem greinarhöfundur hefur mætt, augnaráðið sem mældi hana út frá toppi til táar þegar hún var í sínu fínasta pússi og nokkuð ánægð með sjálfa sig hefur að öllum líkindum verið mitt.
En þið hljótið að skilja að ég hef orðspor að vernda. Ég er kyndilberi fegurðar, megrana og tísku á Íslandi og ég þarf að hegða mér í samræmi við það. Það þýðir að ég get ekki leyft ófríðu kvenfólki að valsa um í návist minni.
En þessar feitu og ófríðu mega gjarnan verða vinkonur kærasta míns, enda stendur mér engin ógn af þeim, einsog ég nefndi í þessari færslu (gefið að þær séu með BMI-stuðul yfir 30), og kærastinn hefur raunar verið nokkuð duglegur að hirða afskorningana úr vinahóp mínum, enda með eindæmum aumingjagóður (einsog vitgrannir eru oft á tíðum).
Ég játa því að ég er konum verst, enda er ég kona.
En mér til varnar vil ég benda á að það eru til margar konur sem eru miklu, miklu verri við konur en ég.
Því einsog þið vitið eflaust þá eru það að stærstum hluta konur sem nauðga öðrum konum (og nota jafnvel kerfisbundnar nauðganir sem vopn í stríðum sem þær heyja), beita konur kynferðisofbeldi, selja þær mansali, hlutgera og niðurlægja í klámmyndum og beita þær heimilisofbeldi svo árum skiptir.
Og af því, lesendur góðir, er ég enn saklaus.

áramóta-detox-drykkur Tískubloggsins
Hola lovers,
Nokkrir eldheitir aðdáendur Tískubloggsins hafa haft samband og sagt mér að þeir hafi fallið í freistni um jólin og ekki haldið sig við mataræðið sem ég mælti með, sem er náttúrulega fullkomlega óásættanlegt, en ég er skynsöm, fluggáfuð og yfirveguð mannvera, og ég veit að maður byrgir ekki brunninn eftir að barnið er fallið í hann. Neinei, þá þýðir ekkert annað en að setja á sig uppþvottahanskana, sækja prik með beittum króki á öðrum endanum og fiska krakkann uppúr.
Og þannig skuluð þið, sem skortir alla sjálfsstjórn og eruð með svarta samvisku (þið (og ég) vitið hver þið eruð), líta á þennan áramóta-detox-drykk sem uppþvottahanska sem þvær líkama ykkar af syndinni.
Áramóta-detox-drykkur Tískubloggsins

Innihald:
12 ml kalt vatn
11,5 ml hlandvolgt vatn
7,2 ml vatn við stofuhita
3 ferkantaðir ísmolar
4,7 g af skeljasandi
1,35 teskeið af kalkdufti
2 msk aspartam
3 msk grænn matarlitur
Aðferð:
Hellið kalda vatninu í blandara ásamt aspartami og matarlit og setjið kalkið útí og hrærið létt með pískara úr bronsi. Bætið hlandvolga vatninu og skeljasandinum samanvið og hrærið aðeins betur. Látið svo standa í 4 klst. á meðan þið leyfið blöndunni að jafna sig. Bætið þá vatninu við stofuhita við, ásamt ísmolum, blandið þangað til drykkurinn verður þykkur og mjúkur, berið fram í háu glasi, neytið og ég get lofað því að þið munuð bókstaflega finna líkamann hreinsast.
Ykkur er velkomið að setja svona grænt skraut á glasið einsog sést á meðfylgjandi mynd, en munið bara að þið megið ekki borða það, því samkvæmt megrunar- og lífstílsreglum Tískubloggsins er að sjálfsögðu allt sem er náttúrulega grænt harðbannað.
Ég mæli svo með því að þið takið ykkur litla stund í amstri dagsins og þakkið vísindunum í hljóði fyrir að hafa uppgötvað grænan gervimatarlit.

Tuesday, December 14, 2010
beikonsushi fyrir byrjendur (og lengra komna)
Hola lovers,
Einsog allir með snefil af tískuviti þekkja, þá er fjúsjon-matargerð heitasta heitt.
Aðdáandi Tískubloggsins sendi mér rétt í þessu dásamlegt myndband sem kennir manni m.a. hvernig er hægt að gera hrísgrjónalaust beikonsushi. Það kalla ég sko fjúsjon í lagi.
Þetta er miklu, miklu meira töff en úldinn fiskur og sojasósa.

Sunday, November 21, 2010
hollir og ótrúlega megrandi hafraklattar - uppskrift
Hola lovers,
Ég er á póstlistanum hjá honum Dr. Peter D´Adamo og nýverið fékk ég þessa frábæru uppskrift að hafraklöttum. Hún er fljótleg og bragðgóð og hráefnið ódýrt, og svo er hún líka einstaklega kaloríusnauð. Ég hef verið að borða svona í a.m.k. þrjú mál á degi hverjum undanfarið og ég er búin að léttast um næstum því tvö kíló.
Hollir og ótrúlega megrandi hafraklattar Dr. Peter D´Adamo:
Hafraklattar:
3 bollar af erfðabreyttu haframjöli
0,5 teskeið kartöflumjöl
0,2 g af salti
2 og 1/5 rúsína, fínt saxaðar
Dressing:
7 ml léttmjólk
7 ml undanrenna
15 ml vatn
Aðferð:
Bleytið vel í haframjölinu og látið standa í ísskáp yfir nótt. Þerrið síðan og setjið í pott, bætið salti útí og sjóðið í 3 klst. Saxið rúsínur og blandið saman við ásamt kartöflumjöli. Hnoðið hráefnið í klatta og steikið uppúr vatni í 20 mín.
Ég mæli með að þið berið þá fram með dressingunni, en hvað sem þið gerið skuluð þið ekki nota smjör (nema það sé beikonsmjör).
xoxo
-h
Ég er á póstlistanum hjá honum Dr. Peter D´Adamo og nýverið fékk ég þessa frábæru uppskrift að hafraklöttum. Hún er fljótleg og bragðgóð og hráefnið ódýrt, og svo er hún líka einstaklega kaloríusnauð. Ég hef verið að borða svona í a.m.k. þrjú mál á degi hverjum undanfarið og ég er búin að léttast um næstum því tvö kíló.
Hollir og ótrúlega megrandi hafraklattar Dr. Peter D´Adamo:Hafraklattar:
3 bollar af erfðabreyttu haframjöli
0,5 teskeið kartöflumjöl
0,2 g af salti
2 og 1/5 rúsína, fínt saxaðar
Dressing:
7 ml léttmjólk
7 ml undanrenna
15 ml vatn
Aðferð:
Bleytið vel í haframjölinu og látið standa í ísskáp yfir nótt. Þerrið síðan og setjið í pott, bætið salti útí og sjóðið í 3 klst. Saxið rúsínur og blandið saman við ásamt kartöflumjöli. Hnoðið hráefnið í klatta og steikið uppúr vatni í 20 mín.
Ég mæli með að þið berið þá fram með dressingunni, en hvað sem þið gerið skuluð þið ekki nota smjör (nema það sé beikonsmjör).
xoxo
-h
Monday, November 8, 2010
hollráð handa kvenþjóðinni
Hola lovers,
Einsog þið vitið þá leggur Tískubloggið sig fram um að ráðleggja konum hvernig þær eigi að hugsa og hegða sér til þess að líkurnar á því að þóknast karlmanni séu ávallt í hámarki.
Því vil ég benda kvenkyns lesendum mínum á þennan afar nytsama pistil. Það var nú aldeilis kominn tími til að einhver karlmaður léti heyra í sér og benti kvenþjóðinni á hvað hún gæti bætt í fari sínu. Listinn telur 15 atriði, og er það vel. Þó eru þau að mínu mati mismikilvæg og ég vil því sérstaklega draga fram þrjú atriði sem þessi ónefndi maður tæpir á og ræða þau frekar. Því höfundur listans talar undir rós, en þessi atriði geta skipt sköpum í þeirri flóknu list sem felst í því að þóknast karlmanni, og því tel ég það afar, afar mikilvægt að lesendur mínir átti sig vel á því hvað hann á við og misskilji ekki neitt.
Fjórði liðurinn sem þessi ágæti maður nefnir er „Alvarleiki / Húmorsleysi“. Þarna bendir hann konum á að þær eigi að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Með þessu á höfundur við að þú átt að sýna honum þá sjálfsögðu kurteisi að hlæja að öllum bröndurunum hans, þó þeir séu á þinn kostnað, þér finnist þeir kannski niðrandi í þinn garð eða hreinlega ekki fyndnir. Karlar eru nær undantekningarlaust miklu gáfaðri en konur, þeir hafa miklu háþróaðra og næmara skopskyn, og því er óhætt að draga þá ályktun að ástæðan fyrir því að þér finnist brandarinn ekki fyndinn sé hreinlega sú að þú skilur hann ekki. Höfundur er meira að segja svo vænn að koma með dæmi um brandara sem þér á að finnast fyndinn, en í honum gefur hann í skyn að kvenkynið hafi lítið þróast í gegnum árin. Fyrstu viðbrögð þín eru ef til vill þau að brandarinn sé niðrandi í þinn garð og jafnvel kvenþjóðarinnar allrar, og þig langar ekki að hlæja að honum, en í raun þá skilur þú ekki húmorinn í honum. Þetta er hárfín kaldhæðni. Lestu brandarann aftur og aftur og ef þú skilur hann ekki enn þá skaltu lesa þetta hér.
Áttundi liðurinn „Kvenremba (Femínisti?)“ bendir á þá augljósu staðreynd að enginn nennir að púkka uppá kvenrembur, a.k.a. femínista. Enda eru þær, einsog höfundur listans bendir réttilega á, „bitrar og gramar konur sem þrá fátt heitar en að sjá karlmenn hengda upp á millifótakonfektinu“. Að auki eru þær ógeðslegar, ljótar, leiðinlegar og loðnar konur sem eru alltaf með einhvern uppsteyt og leiðindi. Þær geta aldrei slakað á og eina ástæðan fyrir því að þær kalla sig femínista er að sú að þær leggja hatur á karlkynið einsog það leggur sig afþví að enginn vill sofa hjá þeim. Og, einsog höfundur nefnir, ef að þær væru alvöru jafnréttissinnar þá myndu þær að sjálfsögðu hætta að beita sér fyrir kvenréttindum og í staðinn fara að berjast fyrir réttindum karla þarsem á þá hallar.
Í fimmtánda og síðasta liðnum, „Kynlífsbann“, nefnir höfundur hina óskráðu reglu sem ríkjandi er í okkar samfélagi varðandi kynlíf, og hún er sú að það eru í raun bara ein réttmæt ástæða fyrir því að kona megi neita manni sínum eða kærasta um kynlíf. En það er einungis „þegar karlmaður er vondur við konuna sína (ofbeldi eða framhjáhald)“. Annars á hann fullan rétt á því að hafa aðgang að líkama þínum þegar honum hentar, „því ófullnægður karlmaður er ósáttur karlmaður“. Það skiptir engu þótt þú sért þreytt, pirruð eða með hita og niðurgang. Ef þú vilt halda í manninn þinn er eins gott að þú bítir á jaxlinn, því einsog höfundur listans bendir á þá ert þú „ekki sú eina í heiminum með leggöng og munn“.
Ég segi amen við því, bróðir!

| Skólabókardæmi um femínista. |

Subscribe to:
Posts (Atom)