Showing posts with label þynnka. Show all posts
Showing posts with label þynnka. Show all posts

Saturday, October 9, 2010

fuuuuuuuuuuuuuuu**

Ég er óhógeðslega þunn. Dr. D´Adamo hefur svo sannarlega rétt fyrir sér. Áfengi fer ekki vel í O-blóðflokkinn, þó við séum ofurmenni að öllu öðru leyti.

Átfitt dagsins:



Bolur: Keyptur í barnadeildinni í Hagkaup árið 2008. Ég var í honum í gær, svaf í honum, ætla að vera í honum í allan dag, sofa aftur í honum í nótt og vera í honum allan morgundaginn líka. Og auðvitað er hann bleikur. Ég hef samúð með brjóstakrabbameini.

Buxur: Af kærasta.

Peysa: Af kærasta.

Sokkar: Engir.

Hár: Skítugt. Ég held ég hafi hellt bjór í það í gær.

Matseðill dagsins: Bland í poka, nachos og ostapopp.

Ég myndi ekki koma í heimsókn ef ég væri þið.

xoxo
-h

Sunday, August 1, 2010

átfitt - þynnkudagur

Ég fór í dásamlegt sveitabrúðkaup í gær. Dansaði þangað til fimm í morgun og þynnkuátfittið í dag er bein og eðlileg afleiðing af því.

Buxur: Of stórar (og mjög svo gegnsæjar, og þar af leiðandi óviðeigandi utanhúss) hvítar leggings sem ég keypti af einhverjum óskiljanlegum ástæðum í London.

Peysa: Af kærastanum. Mér var kalt og ég rakst á hana á stól inní stofu.

Sokkar: Ósamstæðir. Úr H&M.

Köttur: Athyglissjúkur.

Svo er það bara pítsa, vídjó, afréttari og nammi það sem eftir lifir dags.

x0x0
-h