Showing posts with label hotness. Show all posts
Showing posts with label hotness. Show all posts

Thursday, April 21, 2011

Biflía Tískubloggsins, eða hin nýuppgötvaða gullna regla ástarsambands á milli manns og konu

Hola lovers,

Ég er um þessar mundir að skrifa sambandskaflann* í lífstílsbók minni. (Og mér finnst notabene réttast að upplýsa ykkur um nýjan vinnutitil. Hann er ekki lengur Lífstíllinn: Megranir, tíska, Bob & beikon, heldur ákvað ég í samráði við útgefendur mína að vera ögn óræðari og mínímalískari (því það er í tísku) og núverandi vinnutitill er því einfaldlega Hola, lovers.)

Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að sambandskaflinn hafi beinlínis vafist fyrir mér, en flestir vita að sambönd eru flókin. En þau eru jafnframt lífsnauðsynleg öllum sem ætla að koma sér á framfæri og öðlast góða stöðu í lífinu.

Um þau gilda margar, flóknar og óskrifaðar reglur. Mér vitanlega hefur enginn reynt að festa þær niður á blað áður og því er ég sannarlega að vinna frumkvöðlaverk fyrir mannkynið einsog það leggur sig (að ógleymdum mannfræðingum framtíðarinnar (sem munu vafalaust þakka mér óeigingjarnt starf mitt og hafa nafn mitt í hávegum löngu eftir að daga mínir eru taldir (og ef ég verð heppin munu þeir jafnvel nefna gallabuxnategund í höfuðið á mér (einsog þeir gerðu fyrir annan (og síðri) mannfræðing)))) og raunar er það hin mesta hneisa að mér hafi ekki að fyrrabragði verið boðin ritlaun í síðustu úthlutun Launasjóðs íslenskra blogglistamanna.

En í sambandskaflanum fjalla ég einnig töluvert um ástarsambandið á milli manns og konu. Það er víðfemt efni og sannarlega af mörgu að taka. En þarsem ég er ekki að frumsemja efnið, heldur er ég, einsog ég nefndi hér að ofan, að rita niður áður óskrifaðar samfélagsreglur, þá vil ég síður líta á mig sem höfund þessa kafla. Hlutverk mitt er frekar í átt við loftnet sem fangar ósýnilegar bylgjur andrúmsloftsins (sem eru þrátt fyrir allt til staðar, þó þið auðnuleysingjarnir komið ekki auga á þær) og þýðir þær yfir í ómþýða tóna í útvarpstæki; yfir í eitthvað sem jafnvel almúgamaður eða -kona fær skilið.

Eiginlega mætti líta á kaflann sem Biflíuna sjálfa, og mig sem Móses (þó ég hefði aldrei klæðst svona ógeðslegum kufli ótilneydd), en hann fann einmitt steintöflurnar með guðs orði og færði þær niður af fjallinu, og til fólksins. Eða, svo ég noti aðra myndlíkingu (sem þið skiljið kannski betur); Ég er líktog hinn nafnlausi ritari sem festi guðs orð niður á bókfell, svo fólk gæti notið þess um aldir alda.

Það ætti því ekki að koma ykkur á óvart, lesendur kærir, að ég hafi komist að því að sambandskafli minn, líkt og Biflían sjálf, hverfist um eina setningu sem bæði súmmerar upp efni verksins í heild sinni en vísar jafnframt útfyrir sig um leið. Því Biflían, og jafnvel hið kristna siðferði einsog það leggur sig, kristallast í einni setningu; Gullnu reglunni, sjá nánar hér.

Í skrifum mínum hef ég nefnilega komist að því að sambandskafli lífstílsbókar minnar, og hið sambandslega ástarsiðferði á milli karls og konu, kristallast einnig í einni setningu**. Hún er:

Vertu undirgefin, annars verður þú yfirgefin.

xoxo
-h

*Sambandskaflinn er ætlaður konum til aflestrar. Karlmenn þurfa, eðli málsins samkvæmt, aldrei að sýna undirgefni.

**Konur, ekki halda að þessi setning nægi ykkur til að þóknast karlmanninum í lífi ykkar.
Til þess að tryggja farsælt ástarsamband við karlmann þurfið þið að kaupa bókina mína.

Saturday, November 27, 2010

átfitt dagsins

Hola lovers,

Hér er átfitt dagsins.



Ullarpeysa: Af kærasta.

Sokkabuxur: Keyptar á útsölu.

Ullarsokkar: Ósamstæðir. Af kærasta.

xoxo
-h

Thursday, October 21, 2010

H*O*T*N*E*S*S



Stimamýktin, tónlistin, limaburðurinn, myndatakan... ég er orðlaus af aðdáun!

xoxo
-h

Friday, September 3, 2010

langar þig að breyta til?

Hola lovers,

Vildi bara benda ykkur á þetta hérna, ef þið skylduð vera orðnar þreyttar á því að vera alltaf með sama lúkkið þarna niðri.



xoxo
-h

Thursday, August 26, 2010

H*O*T*N*E*S*S

Já, ég veit að ég er búin að skrifa um hann áður, en ég fæ bara ekki nóg af þessu rússneska kyntrölli.

Vladimir Putin, í öllu sínu veldi:

Flottur.
Karlmannlegur.
Hann kann að fara með byssur.
Hér er hann með tígrisdýri sem hann skaut.
Ísbjörn sem hann skaut.
Á leiðinni að skjóta hval með lásboga.
Að fljúga flugvél á leiðinni að slökkva skógarelda.
Putin að sigla kafbáti.
En hann á sér sínar mjúku hliðar. Hér gefur hann móðurlausum elgskálfi pela.
HOTNESS!

Fjúff það liggur bara við að maður skelli sér til Kreml.

xoxo
-h

Monday, August 23, 2010

14 leiðir til að grennast

Hola lovers,

Hver vill ekki vera mjórri? Tískubloggið kemur hér með 14 einfaldar leiðir til að fá kílóin til að fjúka!

Þessi hefur kosið sér rétta lífstílinn!
1. Slepptu öllu kolvetni. Það þýðir ekkert pasta, ekkert brauð, ekkert morgunkorn og engir ávextir (því þeir eru stútfullir af ávaxtasykri).

2. Ekki borða neitt sem er steikt, soðið eða bakað.

3. Slepptu öllum hvítum sykri, brúnum sykri, kanelsykri, sykurreyr og kandís. Fæðutegundir sem innihalda aspartam (einsog t.d. diet kók og extra tyggjó) eru í lagi, því aspartam er ekki fitandi.

4. Ekki borða neinar mjólkurvörur. Slepptu öllu smjöri, osti, mjólk, jógúrti og skyri.

5. Ekki borða neitt sem er rautt, grænt eða brúnt á litinn.

6. Hreyfðu þig daglega, í að minnsta kosti 120 mínútur. Passaðu að borða ekki tveimur tímum fyrir og eftir æfingar. Bannað að taka lyftur og hreyfa bílinn. Fætur eru til þess að labba með þeim!

7. Neyttu allra máltíða nakin fyrir framan spegil.

8. Aldrei leyfa þér að svindla á mataræðinu, ekki einusinni um jólin eða þegar þú átt afmæli.

9. Ekki borða neinar sósur, þær eru allar fitandi.

10. Ekki borða prótein, því það er byggingarefni vöðva, og vöðvar líta oft út einsog fita úr dálítilli fjarlægð.

11. Slepptu morgunmatnum.

12. Slepptu hádegismatnum.

13. Aldrei fara södd að sofa.

14. Drekktu a.m.k. fjóra lítra af vatni á dag, og ekkert sódavatn með bragðefnum! (Nema það sé aspartam).

Og ég tek það fram að þetta er ekki bara megrunarkúr, heldur lífstíll. Farðu eftir þessum einföldu þumalputtareglum og ég lofa því að árangurinn lætur ekki á sér standa!

xoxo
-h

Tuesday, August 17, 2010

mig langar í...

Eftir að ég ákvað að ættleiða þá get ég ekki hætt að skoða barnaföt á netinu.


Og ég er búin að finna það fyrsta sem ég mun kaupa á mitt barn; háhælaða ungbarnaskó!


Bleikir og fínir
Háhæluð stígvél eru náttúrulega möst.
Þeir fara svo vel á fæti
Pæja
Fashionista
Fierce
Tilbúin að skella sér útá lífið
Ég elska háhælaða skó og finnst eðlilegt og sjálfsagt að þeir séu nú í boði í ungbarnastærðum. Enda tel ég að það sé aldrei of snemmt að skilgreina kornabörn sem kynverur og klæða þau í fatnað sem hefur kynferðislegar skírskotanir, sbr. þetta sjóðheita ungbarnabikiní: 


x0x0
-h

Thursday, August 12, 2010

H*O*T*N*E*S*S

Þeir gerast ekki heitari en þessi hérna!

Silvio Berlusconi í öllu sínu veldi:

Sjóðheitur!
Hann lét lappa uppá sig fyrir nokkrum árum, kvenþjóðinni til mikillar gleði. Fyrir og eftir.
Það komast ekki meiri krúttheit á eina mynd!
Mikið vildi ég gefa fyrir að hann myndi glápa á botninn á mér!
*slef*
Púff púff, hann skýtur þig í hjartastað.

xoxo
-h

Wednesday, August 11, 2010

H*O*T*N*E*S*S

Rússneska þjóðin er ekkert að grínast með þennan (fyrrverandi, en samt bakviðtjöldinstarfandi) forseta:

Þetta kalla ég alvöru karlmenni.
*slef*
Hann er metró...
...en samt svo harður að hann getur buffað ofurþjálfaða karatemenn.
Enn ein ástæðan fyrir því að ég dauðöfunda Kim Jong-il!

xoxo
-h