Showing posts with label bjútí tips. Show all posts
Showing posts with label bjútí tips. Show all posts

Tuesday, January 8, 2013

Vertu betri manneskja en besta útgáfan af sjálfri þér á myndum í janúar

Hola lovers,

Afsakið fjarveruna. Ég hef átt annríkt.

Ég ætla rétt að vona að þið hafið farið eftir laufléttum ráðleggingum mínum um hátíðirnar og ekki fitnað neitt (og helst grennst). En góð vísa er aldrei of oft kveðin, stundum er gott að skipta um tóntegund og því vil ég benda ykkur á nokkrar frábærar greinar sem birst hafa á Smartlandinu, vinasíðu Tískubloggsins, undanfarið. Lesendum mínum til hægðarauka hef ég dregið fram helstu atriði þeirra hér fyrir neðan.

Fyrsta ber að nefna greinina 9 leiðir til að verða besta útgáfan af sjálfri þér, sem ber reyndar svolítið misvísandi titil. Að óreyndu mætti ætla að hún fjalli um hvernig er hægt að verða betri manneskja, en sem betur fer er það ekki raunin. Greinin fjallar um útlit (enda skiptir auðvitað engu máli hvernig manneskja maður er ef maður er sætur). Í greininni má finna uppástungur að níu leiðum til þess að líta betur út og ber þar ef til vill hæst lið nr. 5, Drekktu grænan djús, og lið nr. 8, Borðaðu regnbogann.

Í greininni Vertu betri manneskja á 21 degi má finna ráðleggingar fyrir tvítyngda í fimm liðum. Ég verð reyndar að játa að ég er enn að reyna að komast að því hvað orðin „exchercise“ og „someting“ þýða. Að sama skapi hef ég aldrei séð sögnina „to attent“ í texta áður og viðurkenni jafnframt að orðalagið að „tosast í eitthvað nýtt“ er mér sömuleiðis framandi. En ég veit að Smartlandið á Mbl.is er faglegur og metnaðarfullur vefur sem myndi aldrei birta illa þýtt og óprófarkalesið drasl svo ég geri fastlega ráð fyrir því að vandinn sé, einsog þeir segja, mín megin.

Í 10 ráð til að tækla janúarljótuna er margt bitastætt að finna, en ég vil sérstaklega benda lesendum á liði 4 (Vönduð snið klæða af) og 5 (Hækkaðu þig upp) því einsog allir vita vilja allar konur líta út fyrir að vera bæði grennri og hávaxnari en þær raunverulega eru. Ég bið ykkur samt í guðsbænum um að hunsa algjörlega lið 7 (Falleg nærföt). Ég hef sagt ykkur áður að það er afar mikilvægt að tryggja karlmönnum sem best aðgengi að líkama ykkar öllum stundum og því heillavænlegast að sleppa hreinlega nærfatnaði og spara þeim þannig dýrmætan tíma í samförum sem þeir geta svo í staðinn notað annað hvort í ræktinni eða til þess að bæta forgjöfina.

Margir lesendur hafa vafalítið fengið snjallsíma í jólagjöf og því er vel við hæfi að enda þessa samantekt á því að minnast á greinina 8 ráð til að vera gordjöss á myndum, því einsog segir réttilega í upphafi hennar: „Í allri Instragram-, Twitter- og Facebook-menningunni skiptir máli að líta vel út á öllum myndunum sem vinir þínir eru taka og pósta jafnóðum daginn út og daginn inn.“ Af þessum átta óbrigðulu „leynitrix[um] sem leysa öll heimsins vandamál“ þykja mér tvö bitastæðust: nr. 4 (Skyggðu andlitið vel) og nr. 2, en þar er réttlilega bent á að „[e]f teknar eru af þér litmyndir skiptir mestu máli að hyljarinn sé með bleikum eða ferskjulituðum tónum“ (ath. leturbreyting síðuhaldara).



Gleðilegt ár.

xoxo
-h

Friday, March 25, 2011

hártíska katta

Hola lovers,

Þið munið kannski eftir því þegar Tískubloggið fjallaði ítarlega um hártísku ófríðra ungbarna, sjá hér og hér.

Og einsog þið vitið eflaust þá hrjáir sama vandamál marga ófríða ketti (þó mínir séu blessunarlega lausir við það).

Það var því með miklum fögnuði sem ég las aðdáendabréf lesanda sem benti á þessa sniðugu lausn fyrir ketti.

Nú legg ég það bara í hendur ykkar, hæfileikaríku lesendur, að búa til uppskrift að herlegheitunum.

xoxo
-h

Thursday, February 3, 2011

leyfið börnunum að koma til mín

Hola lovers,

Alltaf tekst þessum Pjattrófum að vera skrefi á undan mér.

Ég hef barist ötullega fyrir útbreiðslu Tískubloggsins, því planið er að lifa alfarið á auglýsingatekjum af síðunni og til þess þurfa lesendurnir að vera margir.

Ég stóð hinsvegar í þeirri meiningu að það væri ólöglegt að beina markaðssetningu að börnum, en það hefur greinilega verið misskilningur.
Því gær kynntu Pjattrófurnar nýjan leik þarsem 14-18 ára börn áttu að láta alla vini sína læka Pjattrófusíðuna á Facebook og í staðinn gætu börnin fengið ókeypis brúnkusprey (en þess ber þó kannski að geta að þær hækkuðu aldurinn síðar uppí 15-18 ára, án þess að ég skilji afhverju).

Tískubloggið var að sjálfsögðu svolítið sjokkerað yfir því að hafa ekki látið sér detta þetta í hug fyrst, því börn eru mikilvægir og stórtækir neytendur, (og það er aldrei of snemmt að byrja að láta þau hugsa um útlitið sbr. t.d. hér og hér ) en þarsem ég er afar löghlýðin manneskja þá fannst mér réttast að athuga aðeins lagarammann um þetta málefni áður en ég hætti mér útí viðlíka markaðsherferð. (Því ég vil síður lenda í fangelsi, þó vistin gæti reyndar gefið mér ágætis tóm til að ljúka við lífstílsbók mína)

Eftir nokkuð grúsk komst ég að því að það eru ekki beinlínis nein lög til um markaðssetningu til barna viðlíka þeirri sem Pjattrófurnar hófu í gær og ég hyggst leika eftir. En þó er til eitthvað sem heitir Leiðbeinandi reglur um neytendavernd barna (sjá hér).

Og ég sé meira að segja ekki betur en markaðsherferð Pjattrófanna sé akkúrat markaðsherferð sem sniðin er að þörfum barna og til þess fallin að stuðla að heilbrigði líkamsvitund.

Í lið II) 4. Heilbrigði segir:  Markaðssókn, sem beinist að börnum, á að leitast við að miðla heilbrigðri líkamsmynd og mannvirðingu og forðast óheilbrigðar staðalmyndir.

En allir vita að að börn sem eru tönuð og sæt í febrúar eru í raun afar heilbrigð staðalmynd og miðla heilbrigðri líkamsmynd til samfélagsins. Það mætti því í raun segja að Pjattrófurnar starfi í þágu barna, og kann ég þeim þökk fyrir, því börnin eru framtíð Íslands.
Eiginlega eru þær góðgerðarsamtök, frekar en megrunar- og lífstílsblogg.

Ég hef því eðlilega verið að velta fyrir mér hvernig ég geti herjað á æsku Íslands í mínu eigin markaðsstarfi.

Mér finnst algjör óþarfi að draga mörkin við fjórtán eða fimmtán ára aldurinn, og tel það sé hyggilegast að byrja fyrr, og einbeita sér að átta til níu ára gömlum börnum.

Mér datt í hug að halda kannski svona samkeppni þarsem átta ára börn deila Facebooksíðu Tískubloggsins til allra vina sinna, kvitta síðan á vegginn, senda mynd af sér og svo vel ég sætasta barnið og sendi því svolítið beikon, ásamt viðurkenningarskjali.*

*Að sjálfsögðu þyrfti samþykki foreldra barnsins þó að liggja fyrir áður en það fær að veita verðlaununum viðtöku.

xoxo
-h

ÖPPDEIT:

Jiii, lovers.

Svo virðist vera sem þetta sé ekki alveg leyfilegt hjá Pjattrófunum, sbr. þessa frétt hér. Ég held ég bíði aðeins með að starta minni eigin markaðsherferð þangað til ég sé hvort Pjattrófurnar fara í fangelsi eða hvort þær sleppa með skrekkinn.

Monday, January 31, 2011

enn frekar af hártísku ungbarna

Hola lovers,

Hárleysi ungbarna er greinilega mun útbreiddara og algengara vandamál en mig hefði órað fyrir. Það er gott að Húsmóðir helvítis tók af skarið og opnaði umræðuna fyrir þetta viðkvæma mál hér í gestapósti, því það eru greinilega ýmis úrræði í boði fyrir þá sem eru tilbúnir að viðurkenna vandamálið og leita sér í kjölfarið hjálpar.

Velviljaðir lesendur hafa bent síðunni á lausnir sem henta ef til vill efnameira fólki, eða þeim sem eru ekki nægilega handlagnir til að nýta sér ráðleggingar Húsmóðurinnar.

Ef þú ert ein/n af þeim sem hefur tíu þumalfingur og ekkert ímyndunarafl þá gæti þetta verið eitthvað fyrir þig og sköllótta ungbarnið þitt.

Heklaðar hárkollur


Þessar einstaklega fallegu, hlýju og endingargóðu hárkollur má fá á Ebay fyrir aðeins 45 Bandaríkjadali.



Nánari upplýsingar og pantanir hér.

Hárkollur með áföstu hárbandi

Þessar þokkafullu og elegant ungbarnahárkollur eru gerðar úr efni sem heitir kanekalon og innra byrðið er úr mjúku flísefni sem fer vel með viðkvæma húð. Þær kosta u.þ.b. 30 Bandaríkjadali, að viðlögðu sendingargjaldi, en það þykir mér vera lágt verð fyrir að þurfa aldrei aftur að skammast sín fyrir barnið sitt!


Nánari upplýsingar og pantanir hér.

Ég vil þakka þeim lesendum sem sendu ábendingarnar kærlega fyrir.

Það er gott að vita af fólki einsog ykkur sem tekur samfélagslega ábyrgð sína á ófríðum ungbörnum alvarlega og lætur sig málin varða.

xoxo
-h

Thursday, January 27, 2011

gestapóstur - hártíska ungbarna

Hola lovers,

Það er Tískublogginu mikill heiður að kynna til leiks nýjan og ferskan gestapenna, sem fær jafnframt þann mikla heiður að vera með fyrsta gestapóstinn á nýju ári.

Gestapenninn hefur verið aðdáandi Tískubloggsins frá upphafi, hún fjölgaði nýverið mannkyninu og hefur því tekið að sér að fræða lesendur um ungbarnatísku og harðan heim húsmóðurinnar.

Það er því með stolti sem ég kynni ykkur Húsmóður helvítis.

Njótið

***

Heil og sæl kæra Tískubloggsvinkona og lesendur Tískubloggsins.

Um leið og ég þakka fyrir allar þær frábæru upplýsingar sem hafa gert mig að framúrskarandi og velviljaðri tískudrós, vil ég segja að ég er upp með mér að fá að deila tískukunnáttu minni meðal lesenda Tískubloggsins. Það vita nú flestir með smá vit í kollinum að hingað sækja allra hörðustu og flottustu tískuspekúlantar – glöggir lesendur hafa væntanlega áttað sig á því að ég er auðvitað meðal þeirra.

Þó Tískubloggið hafi hlaupið um víðan tískuvöll og snert á flestu sem viðkemur tísku og fylgihlutum þá hefur einn fylgihluturinn orðið útundan, en það eru einmitt börnin okkar. Því hvað eru þau jú annað en fylgihlutir sem eiga að vera tískumannorði okkar til sóma? Illa hirtur krakki er eins og vel girtur rappari, eða með öðrum orðum algjörlega útúr kortinu og ekki neinum mjólkandi mæðrum sæmandi (ómjólkandi mæður fara í sama flokk og karlmenn). Það verður talað um þig á Barnalandi og í mömmuklúbbnum sértu ekki með töff krakka uppá arminn. Ef krakkinn er ljótur, feitur eða bólóttur þá skaltu ekki örvænta móðir góð. Því nú skal ég segja þér fréttir; Þú getur einfaldlega föndrað betra útlit á barnið.

Að þessu sinni verður hártíska ungbarna tekin fyrir en feitu bólóttu börnin verða að bíða að sinni enda er það allt önnur áfallahjálp og meðferð sem þarf við því.

Við vitum öll að hár okkar er stór hluti af útlitinu og það er alvitað að skalli er ekki kúl, hvort sem maður er ungabarn eða með sjúkdóm. Nauðasköllótt barn er álíka óaðlaðandi og skínandi hárlaus pungur á gömlum karli. Þetta vitum við fæðingarorlofsmömmur mæta vel en þorum kannski bara ekki alveg að tala um  í mömmuhittingunum þegar við erum að metast um útlit barnanna undir rós.
Hver kannast ekki við komment eins og: „Ji, það er aldeilis hár sem barnið hefur!“ Og blóta svo eftirá í hljóði yfir því að manns eigið afkvæmi hafi ekkert hár og fara svo heim og reyna að toga einhverjar lufsur úr hárrótum barnsins með tilheyrandi orgum og oftar en ekki skammyrðum frá föður barnsins sé hann sjáanlegur. (Þeir hafa ekki skilning á þessu, enda karlmenn retarðar þegar kemur að tísku og útliti) En þið vitið jafn vel og ég að þessar aðferðir virka ekkert og eftir situr mamman með grenjandi og hárlaust barn og trítilóðan pabbann sem fer oftar en ekki að haga sér eins og górilla í aðstæðum sem þessum.

Svo hvað gerir maður þá til að barnið tolli í tískunni ? Svarið er einfalt: Maður einfaldlega föndrar smá hárkollu úr lítilli og ljótri húfu sem maður hefur fengið í gjöf frá einhverri leiðinlegri og ljótri frænkunni og einfaldlega límir hárið á húfuna. Og hvaðan kemur hárið hljóta margir að spyrja? Jú þú fórnar smá af þínu hári í þetta verðuga útlitsverkefni. Þú missir það hvort eð er allt saman í brjóstagjöfinni svo þú hefur engu að tapa. Þú bara græðir fallegra barn og kannski meira sjálfsálit í leiðinni, því við vitum öll að börn eru framlenging af sjálfsmynd móðurinnar.




Þar hafið þið það. Maður á aldrei að deyja ráðalaus. En ef þið ætlið að hrökkva uppaf í guðanna bænum verið þá allavega töff í tískunni.

Með vinsemd og virðingu,

Húsmóðir helvítis

Saturday, January 15, 2011

snemma beygist krókurinn

Hola lovers,

Þessi metnaðarfulli keppandi í ungbarnafegurðarsamkeppni sannar hið fornkveðna að:

A) Beauty is pain.
B) Það er aldrei of snemmt að byrja.



xoxo
-h

Thursday, January 13, 2011

hreyfing og brennsla á nýju ári

Ég á svona íþróttagalla, nema í koparlit.
Hola lovers,

Einsog þið vitið vonandi, þá er hreyfing nauðsynleg fyrir brennslu og brennsla er nauðsynleg til að halda sér mjórri.

Þessvegna fór ég stundum í líkamsrækt, en þurfti að taka mér pásu eftir legnámið. Ég var síðan eitthvað löt við að byrja aftur þó ég væri búin að ná mér andlega eftir aðgerðina, en nú á nýju ári og nýrri kennitölu (sem yngdi Tískubloggið blessunarlega um þónokkur ár) ákvað ég að drífa mig aftur í þjálfun.

Ég fór í þol- og styrktarpróf hjá einkaþjálfara mínum, og þar kom í ljós að ég bý yfir 0,027 hestöflum* (hö.), en það er töluvert lakari mæling en áður en ég fór í aðgerðina síðla sumars (en þá var mælingin 0,029 hestöfl (hö.)).

Niðurstöðurnar ullu mér að sjálfsögðu töluverðum vonbrigðum, en ég hef einsett mér að halda vel á spöðunum í þjálfuninni og ná mínum fyrri styrk og snerpu.

Þið fáið að sjálfsögðu að fylgjast með framvindu mála hér á blogginu.

xoxo
-h

*1 HP ≡ 33,000 ft·lbf/min by definition
= 550 ft·lbf/s since 1 min = 60 s
= 550×0.3048×0.45359237 m·kgf/s since 1 ft = 0.3048 m and
= 76.0402249068 kgf·m/s 1 lb = 0.45359237 kg
= 76.0402249068×9.80665 kg·m2/s3 g = 9.80665 m/s2
= 745.69987158227022 W since 1 W ≡ 1 J/s = 1 N·m/s = 1 (kg·m/s2)·(m/s)
Or given that 1 hp = 550 ft·lbf/s, 1 ft = 0.3048 m, 1 lbf ≈ 4.448 N, 1 J = 1 N·m, 1 W = 1 J/s: 1 hp = 746W
(Svona skilgreinir einkaþjálfari minn hestöfl (hö.) (en hann er útlenskur og því er skilgreiningin á útlensku. Ég veit að þið eruð ekki öll mjög sleip í ensku og því skellti ég henni í gegnum afar hagkvæma þýðingarmaskínu sem ég rakst nýverið á á ráfi mínu um internetið og svona lítur hún út á íslensku:

HP ≡ 33.000 ft · lbf / mín við skilgreiningu
= 550 ft · lbf / s því 1 min = 60 s
= 550 × 0,3048 × 0,45359237 m · KGF / s síðan 1 ft = 0,3048 m
= 76,0402249068 KGF · m / s £ 1 = 0,45359237 kg
= 76,0402249068 × 9,80665 kg · m2/s3 g = 9,80665 m / s 2
= 745,69987158227022 W síðan 1 W ≡ 1 J / s = 1 n ° m / s = 1 (kg · m/s2) ¨ (m / s)
Eða gefið að 1 hö = 550 ft · lbf / s, 1 ft = 0,3048 m, 1 lbf ≈ 4,448 N, 1 J = 1 n ° m, 1 W = 1 J / s: 1 hö = 746W

(verði ykkur að góðu)))

Tuesday, January 11, 2011

brjóstastækkun og BMI-stuðull

Hola lovers,

Muniði að ég var að hugsa um að fara í nýstárlega brjóstastækkun?

Jæja, ég er hætt við.

Því ég var að komast að því að erfðabreyttu kínversku marglytturnar vega 1,5 kg hver, og því myndi ég þyngjast um heil þrjú kíló við það eitt að fara í aðgerðina. (Þó mætti gera ráð fyrir því að ég myndi missa töluvert af blóði í aðgerðinni, og léttast þannig um u.þ.b. hálft kíló (ef ég er heppin), en því miður þá yrði það ekki varanlegt þyngdartap, því líkaminn á það nefnilega til að endurnýja reglulega blóðbirgðir sínar).

Og ef ég þyngist um heil þrjú kg við aðgerðina þá hækkar BMI-stuðull minn uppí 13.4, sem er náttúrulega fullkomlega óásættanlegt fyrir einstakling með mína líkamsgerð og snefil af sjálfsvirðingu.

Ég íhugaði að láta fjarlægja nokkur rifbein og annan óþarfa til að jafna út þyngdaraukninguna, en mannabein hafa lítinn eðlismassa og því gengur það reikningsdæmi því miður ekki upp.

Ég hef því ákveðið að hætta við brjóstastækkunina og vera bara ekónómísk og fá mér uppblásanlegan brjóstahaldara í staðinn.

Því einsog þið eflaust vitið, þá vegur loft varla neitt.

xoxo
-h


Tuesday, January 4, 2011

100% náttúruleg brjóstastækkun

Hola lovers,

Eftir að ég birti átfittmyndina af mér í rauða latexsamfestingnum af kærastanum þá bentu nokkrir lesendur mér kurteislega á að ég væri alltof flatbrjósta og ætti að sjá sóma minn í því að fara í brjóstastækkun. Þetta hefur mig raunar lengi grunað, að útlit mitt væri óásættanlegt í nútímasamfélagi, og þarsem svo lítið mál er að laga náttúrulegan vanskapnað á borð við lítil brjóst hef ég mér engar málsbætur.

Reyndar væri það sjálfsögð kurteisi af mér við samferðarmenn mína að láta laga þetta, og þá gæti ég líka hætt að vanvirða sköpunarverk fataframleiðenda með því að passa ekki í flíkurnar frá þeim eða þurfa að láta breyta þeim svo þær passi mínu pervisna formi.

Brjóstastækkun er líka afar þægileg og ódýr aðgerð. Hún tekur u.þ.b. tvær klukkustundir og kostar ekki nema 375.000-460.000 kr., „mjög lágt hlutfall kvenna fær innvortis sýkingu í vefina kringum brjóstapúðann“, og einungis í „einstaka tilfellum getur púðinn sprungið eða lekið“.
En gerist það er það svosem ekkert stórmál, því það eina sem skeður er að þá „getur sílikongel smeygt sér inn í aðra vefi í brjóstinu og myndað lítil lokuð hólf utan um gelið hér og hvar í brjóstinu. Við þetta eru miklar líkur á að brjóstið aflagist og glati eðlilegu formi sínu“, en „ekki tekst þó alltaf að fjarlægja allt gel úr brjóstinu komi slíkur leki upp“.


Ég ákvað að fá mér sílikonpúða frekar en með saltlausn, því „á liðnum áratug hefur sílikonpúðinn verið ítarlega rannsakaður og mestallur ágreiningur um öryggi sílikonpúðans verið leystur“.

En einsog þið vitið þá er mér afað umhugað um náttúruna, og umhverfisvernd er a.m.k. á topp 750 listanum yfir áhugamál mín, og því fannst mér svolítið slæmt að vera að styðja framleiðslu á svo ónáttúrulega efni sem sílikon er, en ég var þó tilbúin að gera það af kurteisi við fataframleiðendur.

Þið getið því ímyndað ykkur gleði mína þegar ég rakst á afar áhugaverða grein í róttæku kínversku læknisfræðiblaði þarsem kynntir voru til sögunnar nýir, byltingarkenndir og umhverfisvænir brjóstapúðar.

Þarlendum læknum hefur nefnilega tekist, með aðstoð stofnfruma úr kínverskum stúlkubörnum sem enginn vill eiga, að rækta marglyttur sem henta einstaklega vel sem brjóstapúðar.

Skýringarmynd 1: Sílikonbrjóstapúðar.
Skýringarmynd 2: Erfðabreyttar kínverskar marglyttur.
Skýringarmynd 3: Fleiri erfðabreyttar kínverskar marglyttur.

Einsog þið sjáið af skýringarmyndunum hér að ofan er munurinn nánast enginn. Marglytturnar eru auk þess mun hentugri kostur því þær eru 100% náttúrulegar, menga ekki og samlagast stoðvef í brjóstum fullkomlega. Að auki fara stofnfrumurnar útí blóðrásina og minnka hrukkur, auka kynhvöt og bæta meltinguna.

Ég ætla því að hafa samband við lýtalækna hérlendis og athuga hvort þeir hafa ekki áhuga á að prófa þessa róttæku lækningaraðferð, fyrstir Evrópubúa.

xoxo
-h

Wednesday, December 29, 2010

áramóta-detox-drykkur Tískubloggsins

Hola lovers,

Nokkrir eldheitir aðdáendur Tískubloggsins hafa haft samband og sagt mér að þeir hafi fallið í freistni um jólin og ekki haldið sig við mataræðið sem ég mælti með, sem er náttúrulega fullkomlega óásættanlegt, en ég er skynsöm, fluggáfuð og yfirveguð mannvera, og ég veit að maður byrgir ekki brunninn eftir að barnið er fallið í hann. Neinei, þá þýðir ekkert annað en að setja á sig uppþvottahanskana, sækja prik með beittum króki á öðrum endanum og fiska krakkann uppúr.

Og þannig skuluð þið, sem skortir alla sjálfsstjórn og eruð með svarta samvisku (þið (og ég) vitið hver þið eruð), líta á þennan áramóta-detox-drykk sem uppþvottahanska sem þvær líkama ykkar af syndinni.

Áramóta-detox-drykkur Tískubloggsins

Innihald:

12 ml kalt vatn
11,5 ml hlandvolgt vatn
7,2 ml vatn við stofuhita
3 ferkantaðir ísmolar
4,7 g af skeljasandi
1,35 teskeið af kalkdufti
2 msk aspartam
3 msk grænn matarlitur

Aðferð:

Hellið kalda vatninu í blandara ásamt aspartami og matarlit og setjið kalkið útí og hrærið létt með pískara úr bronsi. Bætið hlandvolga vatninu og skeljasandinum samanvið og hrærið aðeins betur. Látið svo standa í 4 klst. á meðan þið leyfið blöndunni að jafna sig. Bætið þá vatninu við stofuhita við, ásamt ísmolum, blandið þangað til drykkurinn verður þykkur og mjúkur, berið fram í háu glasi, neytið og ég get lofað því að þið munuð bókstaflega finna líkamann hreinsast.

Ykkur er velkomið að setja svona grænt skraut á glasið einsog sést á meðfylgjandi mynd, en munið bara að þið megið ekki borða það, því samkvæmt megrunar- og lífstílsreglum Tískubloggsins er að sjálfsögðu allt sem er náttúrulega grænt harðbannað.

Ég mæli svo með því að þið takið ykkur litla stund í amstri dagsins og þakkið vísindunum í hljóði fyrir að hafa uppgötvað grænan gervimatarlit.

xoxo
-h

Saturday, December 4, 2010

haltu þér mjórri - þó það séu jól

Hola lovers,

Einsog þið vitið kannski, þá er kominn desember. Og þið vitið jafnvel líka að í desember eru jólin. Jólin eru skemmtileg, því þá fær maður yfirleitt pakka, en það er líka önnur og myrkari hlið á jólunum, nefnilega jólamaturinn. Því um jólin eru oft jólaboð og jólahlaðborð og jólamáltíðir og jólasmákökur og súkkulaðijóladagatöl og jólabjór og jólaöl og svo mætti lengi telja.

Ég ætla rétt að vona að þið farið sem flest eftir lífstílsráðunum mínum, sem er einmitt vinsælasta færslan á blogginu frá upphafi, enda þrautreynd aðferð við að halda sér mjórri, sætari og heilbrigðari en ella.

En það getur verið erfitt að fylgja þessum einföldu þumalputtareglum yfir hátíðarnar, eða einhverju mataræði yfir höfuð, einsog kollegi minn hún Marta María bendir á í þessari færslu hér. Hún kemur enda með nokkrar ráðleggingar til að berjast við fituskrímslið, en betur má ef duga skal og því koma hér sérstakar desemberráðleggingar Tískubloggsins um hvernig á að halda sér mjórri - þó það séu jól.

Þegar maður fer í jólaboð eða jólahlaðborð er mikil hætta á því að rekast á eitthvað matarkyns sem ekki er leyfilegt að borða, skv. lífstílsreglum Tískubloggsins. Sem dæmi mætti nefna síld (prótein), rúgbrauð (brúnt), kartöflur (kolvetni), appelsín (ekki með aspartam), mandarínur (ávöxtur), salat (grænt) og margt, margt fleira.

En þar sem ég er kurteis manneskja að eðlisfari þá finnst mér óþægilegt að fara í matarboð og fúlsa við öllu sem mér er boðið upp á. Ég bregð því á það ráð að lauma lítilli Tupperware krukku í töskuna mína áður en ég fer í boð eða út að borða, og svo smakka ég á öllu og bregð mér einfaldlega afsíðis (á klósettið, eða lauma mér inní fataskáp, ef það er upptekið) og æli í krukkuna. Svo sting ég henni aftur í töskuna, fer aftur fram og held áfram að mingla, fullviss um að ég muni ekki bæta á mig einu einasta grammi.

Þetta gæti ekki verið auðveldara! (En ég mæli eindregið með því að þið fáið ykkur (sykurlaust) tyggjó eftir uppsölurnar, því tyggjó er líka meinhollt - enda stútfullt af aspartami)

Þegar ég kem heim set ég æluna yfirleitt á blómabeðið úti í garði, því þetta er fínasti áburður og líka einstaklega umhverfisvænn. Það er líka mikilvægt að hlúa vel að jurtunum í frostinu, og í anda jólanna. Svo þvoiði bara Tupperware krukkuna og þið getið notað hana aftur og aftur. Ég er búin að eiga mína í fjögur ár og hef notað hana mikið um hátíðirnar og það sér ekki á henni. Enda eru Tupperware-vörur gæðavörur.

Og að lokum: Uppskrift að frábærum heilsudrykk sem veitir þér orku til að takast á við daginn, auk þess sem hann minnkar löngun í sætindi.

Hráefni:

1/4 l volgt vatn
1/4 l kalt vatn
3 1/2 dropar sítrónusafi
5 matskeiðar rauður matarlitur
8-9 ísmolar

Aðferð:

Settu allt í mixer, helltu síðan í fallegt glas og njóttu.

xoxo
-h

Thursday, November 25, 2010

þegar gæludýrafóður bjargaði jólunum, og mér

Hola lovers,

Var ég nokkuð búin að segja ykkur frá því þegar ég næstum dó?

Nei? Ókei.

Þannig var að á Þorláksmessu fyrir fjórum árum var ég í matvörubúð að kaupa gæludýrafóður handa köttunum mínum. Ég hafði lokið jólainnkaupunum fyrir sjálfa mig deginum áður, en gleymt að kaupa eitthvað handa þessum elskum þannig að ég skrapp útí búð. Klukkan var að ganga níu og það var aldimmt úti en bjart inni í búðinni svo að ég sá spegilmynd mína greinilega í hurðinni þegar ég var í þann mund að ganga út.

Og sjónin sem blasti við mér var ekki falleg. Ég var kinnfiskasogin, með bauga undir augun, skítugt hár og krítarhvít í framan.

Ég vissi strax að ég yrði að skella mér í ljós, það væri sjálfsögð kurteisi við samferðarfólk mitt, því ekki gat ég boðið þeim uppá að hafa mig svona fyrir augunum. Svo eru ljós líka svo holl og góð fyrir húðina, hárið og augun. Maður verður strax frísklegri og geislarnir hafa í raun yngjandi áhrif og eyða hrukkum (ólíkt náttúrulegu (og lélegra) sólarljósi sem er einsog allir vita ótrúlega hrukkuvaldandi).

En sólbaðsstofan sem ég átti ljósakort í lokaði hálftíu. Ég ákvað þó í örvæntingu minni að bruna þangað, og jesúbarnið var greinilega með mér í anda því ég renndi í hlað rétt í tæka tíð og fékk tvöfaldan ljósatíma. Ég lagði innkaupin frá mér í eitt hornið á básnum, afklæddi mig, lagðist í ljósabekkinn og stakk æpodinum í eyrun.

Einsog þið vitið eflaust flest eru dagarnir fyrir jól afar stressandi tími. Ég hafði verið einsog útspýtt hundskinn dagana áður að klára jólainnkaupin og gera jólahreingerninguna sómasamlega (til að móðga ekki guð), þannig að það þarf engan að undra að ég sofnaði í bekknum. Ég veit ekki hvað það leið langur tími þangað til að ég vaknaði, en þegar ég opnaði augun voru öll ljós slökkt. Mér var ískalt og ég fann ekki fötin mín í myrkrinu, svo ég sveipaði mig handklæði og tiplaði á tánum fram á gang.
-Halló! kallaði ég, en fékk ekkert svar nema mitt eigið bergmál. Mér rann kalt vatn á milli skinns og hörunds og ég fikraði mig áfram eftir ganginum þangað til fingur mínir fundu ljósrofa.

Birtan skar mig í augun og staðfesti um leið grun minn; Allir starfsmennirnir voru farnir heim og ég var ein eftir á sólbaðsstofunni.

Ég hljóp inní básinn minn, fann töskuna mína og reif upp símann. Hann var batteríslaus. Ég klæddi mig fumandi höndum, hirti ekki einusinni um að þurrka af mér storknaðann svitann og hljóp aftur fram.

Útidyrahurðin var læst. Gangurinn fyrir utan hana var myrkur.

Hendur mínar titruðu þegar ég tók upp símann í afgreiðslunni og lagði tólið við eyrað, en það kom enginn sónn. Ég var komin með stóran hnút í magann þegar ég settist við skrifborðið og ræsti tölvuna. Hún malaði góða stund áður en mynd kom á skjáinn og bað mig um aðgangsorð.

Ég vissi ekki aðgangsorðið.

Þar sem ég var fastakúnni á sólbaðsstofunni hafði ég lagt opnunartíma þeirra um hátíðarnar á minnið og ég vissi að þeir opnuðu ekki aftur fyrren 26. desember, eftir þrjá heila daga. Ég hafði ekki sagt neinum frá því að ég ætlaði í ljós og því vissi enginn var ég var niðurkomin.

Og ég var ekki með neitt að borða, nema gæludýrafóðrið sem ég hafði keypt handa köttunum mínum.

Ég eyddi því jólunum á ljósastofunni, ein og yfirgefin og nærðist eingöngu á gæludýrafóðrinu og svolitlu af Aloe Vera After Sun áburði. Það voru engin teppi á allri stofunni, og því kveikti ég á ljósbekknum á næturna til að halda á mér hita. Ég vissi að ég þyrfti að híma þarna í þrjá daga og þarsem ég er jákvæð manneskja sem reynir ávallt að líta á björtu hliðarnar ákvað ég að nota tímann í eitthvað uppbyggilegt frekar en að sitja ein úti í horni, barma mér og gráta. Ég hóf því að þjálfa líkamann og hugleiða.

Sem betur fer er gæludýrafóður einstaklega næringarríkt og hollt, og ég held að vistin hafi gert mér gott. Eiginlega var þetta einsog detox-meðferð, nema miklu ódýrara. Ég slapp við allt jólasukkið, ræktaði bæði líkama og sál, fann mitt Nirvāna og hárið á mér lýstist meira að segja í ljósabekknum.

Ég missti raunar af jólunum en þegar starfsfólkið kom loksins og bjargaði mér úr prísundinni þá leit ég svona út:

Eftir þetta hef ég alltaf borðað gæludýrafóður á jólunum. Eiginlega er gæludýrafóður uppáhaldsmaturinn minn.


xoxo
-h

Monday, October 18, 2010

Hvað er að frétta? / What up?

Hola lovers,

Ég er að pæla í að aflita á mér rassgatið.

Hvað með ykkur?

ENSK ÚTGÁFA (FYRIR ALÞJÓÐLEGA LESENDUR MÍNA) // ENGLISH VERSION (FOR MY INTERNATIONAL READERS)

Pit lovers,

I'm wondering to power my ass.

What about you?

xoxo
-h

Wednesday, September 15, 2010

lífið væri ef til vill öðruvísi

...ef ég hefði fengið að njóta mín í æsku.

Því ég uppgvötaði ekki töframátt fegurðar og tísku fyrren tiltölulega seint, eða þegar ég var um það bil níu ára gömul. Ég gleymi þeirri stundu aldrei. Pabbi hafði verið að sauma nýjar gardínur úr hvítu tjulli og hann gaf mér afganginn til að leika mér með. Fyrst reyndi ég að strengja hann yfir rúmið mitt og ímynda mér að ég væri einhversstaðar í Indókína og fyrir utan væru flugur sem myndu smita mig af malaríu ef þær kæmust undir netið. En ég fékk fljótt leið á því að vera föst uppí rúmi svo ég fór með tjullið og tók mér stöðu fyrir framan spegilinn. Svo fékk ég hugmynd. Ég fór í hvítan slopp og festi tjullið á höfuðið á mér með kennaratyggjói.
Þannig missti ég nokkuð stóran hárlokk úr hvirflinum (því það þurfti að klippa kennaratyggjóið úr hárinu á mér) en þarna fæddust draumar mínir um brúðkaup, og ég hef haldið í meydóminn til að geta blygðunarlaust klæðst hvítu þegar stóri dagurinn rennur loksins upp.

Uppfrá þessu fór ég líka að stelast í rauða matarlitinn í eldhússkápnuum til að bera á varirnar og hef verið afar tískumeðvituð síðan.

Ég vil meina að ég sé með nokkuð háþróað fegurðar- og tískuskyn, en það er hinsvegar alveg klárt að ef ég hefði þjálfað það frá unga aldri væri það ennþá naskara en það er núna. Þessvegna óska ég þess stundum að mamma og pabbi hefðu haft vit á að skrá mig í ungbarnafegurðarsamkeppni. Ég var ekki bara einstaklega fallegt og hæfileikaríkt barn (og hefði þar af leiðandi haft alla burði til að taka þátt í (og vinna) slíka keppni), heldur hefði það snemma veitt mér innsýn í heim fegurðar og tísku, og er viss um að ég hefði kynnst mikið af fólki sem deilir brennandi áhuga mínum á öllu sem þeim heimi viðkemur. Ólíkt æskuvinkonum mínum sem hafa tískuvit á við banana, enda er ég löngu hætt að heilsa þeim ef svo ólíklega vill til að ég rekst á þær útá götu.

Heimur barnafegurðarsamkeppna er töfrandi og ég er viss um að þessar ungu dömur hafa ekki þurft að kljást við jafn margar hindranir á braut fegurðar og tísku og ég. Í mínu tilviki hefur hún verið þyrnum stráð (en það er ein af mörgum ástæðum þess að ég fór að nota hælaskó, því þá eru minni líkur á að fá þyrna annarsstaðar en í tábergið).

Sjáið bara þessar dísir. Þær hreinlega geisla af hamingju.


Ég hef því illan grun um að ef ég hefði fengið að njóta mín í barnafegurðarsamkeppni þá væri líf mitt líka auðugra í dag. Því allar fegurðardísir eignast kórónu og ríkidæmi (og kannski prins (ef þær eru góðhjartaðar)).

Sjáið bara hvað hún er hamingjusöm. Og rík. Og með fína kórónu.

Þeim lesendum sem hafa útlitið með sér og enn eru á barnsaldri og langar að blómsta á alþjóðavettvangi vil ég gefa nokkur ráð. Ég fann ráðleggingarnar á síðunni Princess Protection Rrogram, sem er ein af mínum uppáhaldssíðum, og þær eru mjög gagnlegar. Því miður eru þær á ensku, en þið getið beðið foreldra ykkar um hjálp við þýðingu.

1. SMILE. This is so important but it can be difficult to maintain a natural-looking smile for long periods, so practice and on the day try to relax and enjoy your experience and think about how happy you are to be there.
2. Think about how you hold yourself. Practice walking with grace and confidence, lengthening and slimming your body with good posture. It may help to join a ballet or yoga class to work on this. Yoga will also help with relaxation techniques.
3. Don't waste time comparing yourself to other contestants, focus on getting your best attributes across. Stage presence can be far more important than talent.
4. Never lie during interviews or on any paperwork. Be yourself; you will come across far better if you sound genuine rather than too rehearsed.
5. What is unique about you? Think about what it is that makes you special and build on it. An interesting talent or hobby may make you stick in the minds of the judges.
6. Choose a platform that is genuinely close to your heart. You will be far more passionate if it means something to you and hasn't been chosen simply to impress the judges.
7. Take an interest in current affairs and have an opinion on everything!
8. When choosing your gown, remember the colours and styles that suit you. Cut is also very important. Remember, you are not being marked on the cost of your gown but on how you look in it.
9. Research. Find out as much information as possible about pageants and previous winners prior to the event.
10. Don't give up! If you are unsuccessful at your first pageant don't let it defeat you. Each pageant you attend will improve your confidence and chances of success.

xoxo
-h

Friday, September 3, 2010

langar þig að breyta til?

Hola lovers,

Vildi bara benda ykkur á þetta hérna, ef þið skylduð vera orðnar þreyttar á því að vera alltaf með sama lúkkið þarna niðri.



xoxo
-h

Friday, August 27, 2010

öppdeit!

Nýjustu fregnir herma að það er aksjúllí hægt að koma í veg fyrir hrukkur í andliti með þessum einföldu og þokkafullu æfingum:



xoxo
-h

Thursday, August 26, 2010

viltu losna við hrukkur? - 100% náttúrulegur avókadómaski

Hrukkur eru (næstum því) óhjákvæmileg afleiðing af því að eldast.

Eina fólkið í heiminum sem sleppur við þessar hörmungar eru asískar konur. En hvað eigum við hinar að taka til bragðs?

Tískubloggið lumar á nokkrum óbrigðulum ráðum:

1. Ekki fara út þegar sólin skín.

2. Ekki fara út þegar það er kalt.

3. Ekki fara út þegar það er vindur.

4. Kauptu alltaf dýrustu kremin í flottustu umbúðunum - þau eru best.

5. Slepptu allri andlitstjáningu. Ekki lyfta augabrúnum í spurn þegar þú ert hissa, ekki hrukka ennið þegar þú hefur áhyggjur eða skilur ekki eitthvað (enda telja karlmenn að undrun yfir að skilja ekki eitthvað sé hið eðlilega og náttúrulega ástand konunnar, svo það er í raun óþarfi að gefa þessar tilfinningar til kynna). Ekki brosa og hvað sem þú gerir skaltu alls ekki hlæja. Reyndu að finna einhverjar látlausari og minna hrukkuvaldandi leiðir til að tjá gleði þína og aðdáun, einsog að kreista ástúðlega upphandlegginn á viðmælanda þínum eða lúta höfði, líta svo upp og brosa með augunum (án þess þó að kipra þau, því það getur einnig valdið hrukkum).

Að auki vill tískubloggið deila með ykkur uppskrift að nærandi andlitsmaska sem kemur í veg fyrir hrukkumyndun.

Innihald:

Eitt avókadó.
Einn laukur.
Tvö ferskt chillí aldin.
Tvær matskeiðir gróft sjávarsalt.
Paprikuduft á hnífsoddi.
Þrjár teskeiðar af sítrónusafa.

Aðferð:

Saxið laukinn og chillí aldin afar smátt, stappið öllu saman og látið standa í kæli í 30 mínútur fyrir notkun.
Berið síðan maskann á andlitið og yfir augnlokin og bíðið í tvær klukkustundir. ATH að þið gætuð fundið fyrir örlítilli brunatilfinningu á augnlokunum, en það er bara chillíið að smjúga inní hrukkurnar og slétta þær innanfrá.

Ég mæli með því að þið notið þennan frábæra maska a.m.k. daglega.

xoxo
-h

Monday, August 23, 2010

14 leiðir til að grennast

Hola lovers,

Hver vill ekki vera mjórri? Tískubloggið kemur hér með 14 einfaldar leiðir til að fá kílóin til að fjúka!

Þessi hefur kosið sér rétta lífstílinn!
1. Slepptu öllu kolvetni. Það þýðir ekkert pasta, ekkert brauð, ekkert morgunkorn og engir ávextir (því þeir eru stútfullir af ávaxtasykri).

2. Ekki borða neitt sem er steikt, soðið eða bakað.

3. Slepptu öllum hvítum sykri, brúnum sykri, kanelsykri, sykurreyr og kandís. Fæðutegundir sem innihalda aspartam (einsog t.d. diet kók og extra tyggjó) eru í lagi, því aspartam er ekki fitandi.

4. Ekki borða neinar mjólkurvörur. Slepptu öllu smjöri, osti, mjólk, jógúrti og skyri.

5. Ekki borða neitt sem er rautt, grænt eða brúnt á litinn.

6. Hreyfðu þig daglega, í að minnsta kosti 120 mínútur. Passaðu að borða ekki tveimur tímum fyrir og eftir æfingar. Bannað að taka lyftur og hreyfa bílinn. Fætur eru til þess að labba með þeim!

7. Neyttu allra máltíða nakin fyrir framan spegil.

8. Aldrei leyfa þér að svindla á mataræðinu, ekki einusinni um jólin eða þegar þú átt afmæli.

9. Ekki borða neinar sósur, þær eru allar fitandi.

10. Ekki borða prótein, því það er byggingarefni vöðva, og vöðvar líta oft út einsog fita úr dálítilli fjarlægð.

11. Slepptu morgunmatnum.

12. Slepptu hádegismatnum.

13. Aldrei fara södd að sofa.

14. Drekktu a.m.k. fjóra lítra af vatni á dag, og ekkert sódavatn með bragðefnum! (Nema það sé aspartam).

Og ég tek það fram að þetta er ekki bara megrunarkúr, heldur lífstíll. Farðu eftir þessum einföldu þumalputtareglum og ég lofa því að árangurinn lætur ekki á sér standa!

xoxo
-h

tíska framtíðarinnar

Mér finnst það einhvernveginn svo hughreystandi tilhugsun að það sé þegar búið að hanna tísku framtíðinnar. Þá þarf maður ekki að hafa endalausar áhyggjur af því að vera með puttann á púlsinum og vera áskrifandi að tískublöðum, heldur getur maður bara sett einhverja War Trek eða Far Wars mynd í tækið og séð það sem koma skal.

War Trek gerist í mjög náinni framtíð (eða á næstu 10 eða 15 árum), á meðan Far Wars er aðeins lengra fram í tímann (sirka 80-90 ár).

Hér eru nokkur sýnishorn af tísku framtíðarinnar.

War Trek:

Samkvæmisfatnaður framtíðarinnar.
Kasjúal klæðnaður.
Klæðnaður verkfræðinga.
Spariföt framtíðarinnar.
Giftingarsamfestingur.
Það sem koma skal í lýtalækningum.
Það verða líka hundar í framtíðinni - og þeir verða svona klæddir.

Far Wars:

Pelssamfestingur með áfastri húfu.
Pollagalli.
Svona munu spjátrungar framtíðarinnar klæða sig.
Einkennisklæðnaður stjórnmálamanna.
Lögreglubúningur úr framtíðinni.
Viðeigandi klæðnaður þjóðhöfðingja.
Hundatískan eftir 90 ár.

Sjáumst í framtíðinni - svona klædd!

xoxo
-h

Tuesday, August 17, 2010

Gestapóstur - Mömmuföt

Hæ, ég heiti Lilja og ætla að skrifa hérna smá gestapóst um mjög umdeilt efni, nefnilega barneignir. Aðalhöfundur tískubloggsins (sem þorir vonandi að birta póstinn minn) hefur talað mikið um börn, ættleiðingar og svoleiðis undanfarið, og sjálf stigið hið ultimate skref í þeim efnum með legnáminu. Því langar mig að koma þessu að, sérstaklega fyrir lesendur bloggsins sem eru sjálfir að íhuga að taka skrefið.

Þessi á augljóslega engin börn
Hingað til hafa mömmuföt ekki átt upp á tískupallborðið og því standa nýbakaðar mæður gjarnan í þeirri meiningu að þær geti klæðst hverju sem er, t.d. lágskornum, þröngum buxum með skrautsteinum á rassvösunum, skræpóttum leggings, flegnum bolum og jafnvel ermalausum! Þetta höfum við, áhorfendur, þurft að horfa upp á og þjást í hljóði, en það er auðvitað algjörlega óviðeigandi fatastíll hjá mæðrum. Athugið samt að ekki er eingöngu við þær að sakast.
Þessar eru ánægðar með mömmubuxurnar
Ekki hefur mikið verið rætt um föt sem hæfa mömmum en nú er kominn tími til. Nei, ég er ekki að tala um meðgöngufatnað eða brjóstagjafaboli, heldur föt sem hæfa breyttum líkamsvexti. Ef nútímakonur hefðu vitneskju um það hvernig líkami þeirra breytist á meðgöngu er útséð um að engin þeirra hefði áhuga á barneignum. Slúðrað hefur verið um að til þess að mannkynið deyi ekki út hafi hönnuðir og saumakonur haft samantekin ráð um að hanna hvorki né sauma föt á mæður, heldur einblínt á ungar og oftast óspjallaðar meyjar.

Nú er hinsvegar vitundarvakning í hinum vestræna heimi um að mömmur séu líka fólk, þrátt fyrir flatan, breiðan og mögulega hrukkóttan rass. Ótrúlegustu hönnuðir og tískumerki, meðal annars Chanel, Dior, Gucci og Armani, hafa riðið á vaðið eftir að ei ómerkari fyrirsætur en Gisele Bündchen og Heidi Klum fóru að hlaða niður börnum, og eru farin að hanna og selja svokölluð mömmuföt.
Einhver þarf að benda henni á mömmuföt!

Það er auðvitað algjör della að mömmur geti ekki verið kynþokkafullar og því engin ástæða til þess að fela breiðu mjaðmirnar undir síðri peysu eða troða flata rassinum ofan í óþægilegar mjaðmabuxur sem búa til hið svokallaða muffins-útlit

Nú er mæðrum óhætt að fagna breytingum á líkama sínum og kaupa sér þægileg föt sem þær barnlausu öfundast út í! Áhersla er lögð á breitt mittið og með því að hafa t.d.buxur háar er augað dregið að mittinu, sem helst verður ekki fyrir eins miklum áhrifum af meðgöngu og mjaðmirnar. Mömmubuxurnar eru gjarnan hafðar rúmar að framan svo nóg pláss sé fyrir lafandi neðrimaga og fituforðann sem sest á utanverðar mjaðmirnar. Þannig getur t.d. nýbökuð móðir vel hreyft sig og hengt upp þvott þrátt fyrir keisaraskurð, gyllinæð eða grindargliðnun.
Sigin brjóst, gyllinæð og skökk mjaðmagrind? Ekker vandamál!

Það er óhætt að segja að eftir mörg ár af óvæginni gagnrýni fyrir lystarstols-lúkkið og heróín-sjík-stílinn stefni tískan nú í rétta átt. Heyrst hefur að fleiri hönnuðir séu búnir að taka við sér og ríkir mikil leynd yfir komandi vetrarlínum. Að sögn sérfræðinga og innanbúðarmanna verða mömmufötin áberandi á tískupöllunum og því góð ástæða fyrir þá sem eru í ættleiðingarhugleiðingum að bíða í nokkra mánuði!
Lífrænt ræktuð, fair-trade bómull á rassinn minn!