Showing posts with label samfélagið. Show all posts
Showing posts with label samfélagið. Show all posts

Monday, July 4, 2011

sorglegar og loðnar konur krefjast áþreifanlegrar viðurkenningar á því að þær séu aðlaðandi

Hola lovers,

Ekki er nú öll vitleysan eins. Núna eru einhverjar loðnar og óaðlaðandi kvenrembur að fara í eitthvað sem þær kalla „Druslugöngu“ 23. júlí næstkomandi.

Ég hef nú ekki kynnt mér markmið þeirra til hlítar, en heyrði útundan mér að þau hefðu eitthvað með það að gera að mótmæla því að horft sé á klæðaburð kvenna sem verða fyrir „kynferðisofbeldi“.

Það hlýtur að vera misskilningur því allir vita að karlmenn eiga rétt á því að hafa óheftan aðgang að líkömum kvenna öllum stundum, sama hvernig þær eru klæddar. Og að trúa því að heil ganga verði farin til þess að krefjast þess að karlmenn hafi sjálfsstjórn innan um snöggklætt kvenfólk er náttúrulega út í hött, því auðvitað ætlast enginn til þess að karlmenn bæli niður náttúrulegar hvatir sínar þegar þeir sjá eitthvað sem þeir girnast í heppilegum umbúðum. Og eiginlegt „kynferðisofbeldi“ er heldur ekki til, því það sem sumir kalla kynferðisofbeldi og meintar nauðganir er ekki annað en leið karlmanns til að tjá aðdáun sína. Einsog ég hef fjallað um áður hér á síðunni þá er þetta eiginlega ákveðið form hróss, enda er það vitað mál að karlar eiga oft erfitt með að tjá tilfinningar sínar í orðum og nota því aðrar aðferðir til þess að tjá hug sinn, einsog hefur verið gerð ítarleg skil í fjölmörgum pistlum á Bleikt.is og fleiri góðum síðum.

Þvert á móti sýnist mér á heimasíðu þeirra að tilgangur Druslugöngunnar sé aðallega sá að krefjast þess að karlmenn í samfélaginu viðurkenni þær sem kynverur og sýni þeim þann kynferðislega áhuga sem þær telja að þær eigi tilkall til kynferðis síns vegna, þrátt fyrir það að vera ljótar. Þær ætla held ég að mótmæla þeirri kynferðislegri hunsun sem þær hafa orðið fyrir með því að klæða sig einsog „druslur“, sem er í rauninni bara klæðaburður sem allar konur með alvöru sjálfsvirðingu hafa fyrir löngu tileinkað sér, og síðan ætla þær að skakklappast niður einhverja götu (ég geri ekki ráð fyrir því að nein af þeim kunni að ganga á hælaskóm) og heimta að karlmenn horfi á þær girndaraugum og hunskist kannski til að tjá girnd sína, óumbeðnir.

Þær eru með öðrum orðum að ætlast til þess að karlmenn hrósi þeim svolítið, og á áþreifanlegan hátt.

Þessi fáránlega tilraun þeirra er náttúrulega dæmd til að mistakast, því auðvitað vita allir að það eru bara sætar og fallegar konur sem klæddar eru á ákveðinn hátt sem verða fyrir ágengri kvensemi og fá hrós, og því er þess varla að vænta að nokkur nálægur karlmaður vilji einusinni pota litla fingri í þær loðnu.

Ég ætla bara rétt að vona að þær taki tillit til okkar hinna sem horfum og raki á sér lappirnar áður en þær troða sér í netasokkabuxurnar.

xoxo
-h

Er þetta einungis forsmekkurinn af því sem við munum sjá 23. júlí?

Thursday, May 26, 2011

betra er seint en aldrei - fegrunarpistill fyrir Hernaðarandstæðinga

Hola lovers,

Fyrir ógeðslega löngu þá var ég beðin um að skrifa fegrunarpistil fyrir tímarit Hernaðarandstæðinga. Ég ætlaði að vera búin að birta hann fyrir löngu en gleymdi því.

En hér kemur hann núna. Afsakið biðina.

***


Hola lovers,

Ég er helsti sérfræðingur landsins í fegrunum, megrunum og tísku, og var því beðin um að leiðbeina ykkur um fallegt útlit og hvernig á að vera töff. Ég ákvað að taka þessari áskorun, þó ég telji að það séu afar litlar líkur á árangri (ég hef séð myndir af ykkur).

Rakaðu af þér skeggið.
Ég vil byrja á því að hreinsa loftið og segja ykkur sannleikann; Það er ekki í tísku að vera hernaðarandstæðingur.
Því herir eru töff. Hermenn og -konur fá að vera í töff búningum með töff hárgreiðslu og þau fá að vera með töff byssur, þau fá að vita ýmis töff hernaðarleyndarmál á undan almúganum og herir skilja flestir homma og lesbíur útundan, sem er töff.

Það eru líka gerðar töff bíómyndir um hermenn og -konur þarsem þau bjarga litlum gyðingabörnum, vingast við flækingshunda í Írak og finna falleg lótusblóm í daunillum fenjum Víetnam.

Og ef hernaðarandstæðingar og her færu í slag þá held ég að við vitum öll hver myndi vinna.
Aukinheldur skemmdi það mannorð ykkar mikið þegar þið voruð á móti veru Bandaríkjahers hér á landi. Því það er ekkert minna í tísku í öllum heiminum en að vera á móti Bandaríkjunum, afþví að bandarísk þjóð er besta þjóð í heimi, afþví að Bandaríkjamenn fundu uppá Baconnaise.

Þannig að ef þið viljið vera töff er fyrsta ráðlegging mín til ykkar því að hætta að vera hernaðarandstæðingar.

Ef þið getið ekki hugsað ykkur að hætta því þá er það skásta í stöðunni að hætta að minnsta kosti að líta út einsog hernaðarandstæðingar og vona að enginn komist að þessari annarlegu hneigð ykkar.

Svona farið þið að því:

  • Klippið af ykkur dreddana.
  • Farið í bað.
  • Notið sápu sem er ekki með umhverfisvottun og sem inniheldur mikið af lyktar- og litarefnum.
  • Farið í hrein nærföt (ef þið eigið þau yfir höfuð til).
  • Hendið öllu úr skápnum ykkar sem er úr hör eða hampi. Flíkur sem eru í karrígulum, heiðbláum, rústrauðum eða mosagrænum litum skal einnig henda. Heimasaumaðar flíkur skulu fara sömu leið.
  • Hendið öllum flíkum sem á stendur Free Tibet.
  • Hendið öllum flíkum sem eru með mynd af Che Guevara.
  • Hendið varasalvanum ykkar.
  • Klæðið ykkur í það sem þið finnið í skápnum sem líkist helst klæðnaði venjulegrar manneskju og farið í verslunarleiðangur í verslunarmiðstöð (það er bannað að fara á Laugaveg eða Skólavörðustíg).


Innkaupalistinn:

Snyrtivörur sem innihalda mikið paraben. Þetta er hið allra nauðsynlegasta sem allir þurfa að eiga: dagkrem, næturkrem, síðdegiskrem, augnkrem, svitaholukrem, meik, púður, hyljari, augnskuggi, augnblýantur, eyeliner, undirmaskari til að þykkja augnhár, maskari, sólarpúður, kinnalitur, varablýantur, varalitur og gloss. (Ath. að þessi listi er ekki tæmandi)

Leggingsbuxur með tígrisdýramynstri. (Eða leggings úr alvöru tígrisdýri, ef þið hafið efni á því (eða úr einhverju meira töff dýri sem er í enn meiri útrýmingarhættu, einsog ísbirni (eða górillu)))

Latexgalli með hönskum og hettu.

Sjampó með miklum aukaefnum og helst í bleikum eða fjólubláum umbúðum. Hárnæring, djúpnæring, hárkrem, hársprey og vax úr sömu línu.

Spegill.

Hárbursti.

Augnháraplokkari.

Rakvél.

PC-fartölva frá þýskum framleiðanda sem hagnaðist á dularfullan hátt á tímum seinni heimsstyrjaldar.

Kaffi sem er ekki Fair Trade.

Þrennar blúndunærbuxur.

Farið síðan í dýrustu búðina á svæðinu, bendið starfsmanni á eina gínu og segið: „Ég ætla að fá allt sem hún er í í minni stærð“.

Farið í aðra búð og endurtakið leikinn.

Farið í þriðju búðina og endurtakið leikinn.


Farðu í klippingu.
Þessi aðferð er ykkur nauðsynleg, því þið kunnið ekki að klæða ykkur einsog venjulegt fólk. Svona getið þið feikað það. Munið bara að taka mynd af gínunni (eða rissa hana upp, því ég efa að þið eigið farsíma með myndavél) svo þið vitið hvernig þið eigið að raða flíkunum saman þegar heim er komið. Ég ráðlegg ykkur einnig að biðja afgreiðslufólkið í búðinni að númera fyrir ykkur flíkurnar svo þið vitið í hvaða röð þið eigið að fara í þær.

Þegar heim er komið mæli ég með því að þið farið síðan á internetið í nýju tölvunni ykkar og skoðið myndbönd af því hvernig á að nota snyrtivörurnar sem þið keyptuð ykkur. Ef þið eigið þess kost skuluð þið einnig reyna að vingast við venjulega manneskju sem hefur töff skoðanir og fylgjast grannt með því hvernig hún klæðir sig, snyrtir og hegðar sér í daglegu lífi.

Þið skuluð einnig lesa daglega ráðleggingar mínar á Tískublogginu, tiskublogg.blogspot.com.

xoxo
-h

Thursday, April 21, 2011

Biflía Tískubloggsins, eða hin nýuppgötvaða gullna regla ástarsambands á milli manns og konu

Hola lovers,

Ég er um þessar mundir að skrifa sambandskaflann* í lífstílsbók minni. (Og mér finnst notabene réttast að upplýsa ykkur um nýjan vinnutitil. Hann er ekki lengur Lífstíllinn: Megranir, tíska, Bob & beikon, heldur ákvað ég í samráði við útgefendur mína að vera ögn óræðari og mínímalískari (því það er í tísku) og núverandi vinnutitill er því einfaldlega Hola, lovers.)

Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að sambandskaflinn hafi beinlínis vafist fyrir mér, en flestir vita að sambönd eru flókin. En þau eru jafnframt lífsnauðsynleg öllum sem ætla að koma sér á framfæri og öðlast góða stöðu í lífinu.

Um þau gilda margar, flóknar og óskrifaðar reglur. Mér vitanlega hefur enginn reynt að festa þær niður á blað áður og því er ég sannarlega að vinna frumkvöðlaverk fyrir mannkynið einsog það leggur sig (að ógleymdum mannfræðingum framtíðarinnar (sem munu vafalaust þakka mér óeigingjarnt starf mitt og hafa nafn mitt í hávegum löngu eftir að daga mínir eru taldir (og ef ég verð heppin munu þeir jafnvel nefna gallabuxnategund í höfuðið á mér (einsog þeir gerðu fyrir annan (og síðri) mannfræðing)))) og raunar er það hin mesta hneisa að mér hafi ekki að fyrrabragði verið boðin ritlaun í síðustu úthlutun Launasjóðs íslenskra blogglistamanna.

En í sambandskaflanum fjalla ég einnig töluvert um ástarsambandið á milli manns og konu. Það er víðfemt efni og sannarlega af mörgu að taka. En þarsem ég er ekki að frumsemja efnið, heldur er ég, einsog ég nefndi hér að ofan, að rita niður áður óskrifaðar samfélagsreglur, þá vil ég síður líta á mig sem höfund þessa kafla. Hlutverk mitt er frekar í átt við loftnet sem fangar ósýnilegar bylgjur andrúmsloftsins (sem eru þrátt fyrir allt til staðar, þó þið auðnuleysingjarnir komið ekki auga á þær) og þýðir þær yfir í ómþýða tóna í útvarpstæki; yfir í eitthvað sem jafnvel almúgamaður eða -kona fær skilið.

Eiginlega mætti líta á kaflann sem Biflíuna sjálfa, og mig sem Móses (þó ég hefði aldrei klæðst svona ógeðslegum kufli ótilneydd), en hann fann einmitt steintöflurnar með guðs orði og færði þær niður af fjallinu, og til fólksins. Eða, svo ég noti aðra myndlíkingu (sem þið skiljið kannski betur); Ég er líktog hinn nafnlausi ritari sem festi guðs orð niður á bókfell, svo fólk gæti notið þess um aldir alda.

Það ætti því ekki að koma ykkur á óvart, lesendur kærir, að ég hafi komist að því að sambandskafli minn, líkt og Biflían sjálf, hverfist um eina setningu sem bæði súmmerar upp efni verksins í heild sinni en vísar jafnframt útfyrir sig um leið. Því Biflían, og jafnvel hið kristna siðferði einsog það leggur sig, kristallast í einni setningu; Gullnu reglunni, sjá nánar hér.

Í skrifum mínum hef ég nefnilega komist að því að sambandskafli lífstílsbókar minnar, og hið sambandslega ástarsiðferði á milli karls og konu, kristallast einnig í einni setningu**. Hún er:

Vertu undirgefin, annars verður þú yfirgefin.

xoxo
-h

*Sambandskaflinn er ætlaður konum til aflestrar. Karlmenn þurfa, eðli málsins samkvæmt, aldrei að sýna undirgefni.

**Konur, ekki halda að þessi setning nægi ykkur til að þóknast karlmanninum í lífi ykkar.
Til þess að tryggja farsælt ástarsamband við karlmann þurfið þið að kaupa bókina mína.

Monday, March 21, 2011

fjármunir karlmanna og hjól atvinnulífsins

Hola lovers,

Einsog þið vitið þá er ekkert minna sexí en kona sem hefur áhuga á stjórnmálum. Ég er alltaf meðvituð um að hámarka kynþokka minn á öllum stundum (sem er ein af ástæðunum fyrir því að ég sef alltaf í sokkaböndum og með varalit (hinar eru persónulegar og ég vil síður deila þeim á alnetinu)) og því reyni ég eftir fremsta megni að forðast fréttir og umræður um stjórnmál. En sum mál eru bara svo hávær að umræðan um þau smitast jafnvel inná lífstílssíður og tískublogg (sem er það eina sem ég les á netinu) og svo maður tali nú ekki um Facebook. Dæmi um pólitísk málefni sem maður tekur nánast upp með osmósu er þetta Icesave (sem ég hef gert mér far um að skilja ekki (sem er erfitt, því það er svo ógeðslega einfalt (og ég er svo gáfuð))).

Annað dæmi um pólitískt málefni sem mér hefur ekki tekist að forðast er niðurskurður hjá ríkinu, og sorrí lovers, en ég bara get ekki annað en haft skoðun á því. Ég geri mér grein fyrir því að með því að hafa skoðun á þessu máli þá er ég mögulega að traðka á brothættri sjálfsmynd einhverra karlmanna (með því að hafa skoðun) og ég mun líklega missa þónokkuð af kynþokka mínum í ykkar augum (get ég bætt ykkur þetta upp með því að birta mynd af kloflausu nærbuxunum mínum?), en ég get bara ekki á mér setið.

Nýverið voru birtar upplýsingar um að fækkað hafi verið um 540 stöðugildi hjá ríkinu í niðurskurði í kjölfar kreppunnar. Þar misstu 470 konur atvinnu sína og 70 karlar. Einnig er áformaður mikill niðurskurður í leik- og grunnskólum, en þar starfa að mestu konur.

Á sama tíma eru uppi áform um að ríkið fara út í dýrar framkvæmdir til að „koma hjólum atvinnulífsins í gang“ og búa til störf handa karlmönnum í byggingariðnaði.

Ég fagna þessari þróun ákaft. Því einsog og þið vitið er sjálfsmynd karlmanna ákaflega brothætt, og séu þeir mjög lengi án atvinnu verður sjálfsmynd þeirra afar löskuð og getur jafnvel orðið fyrir varanlegum skaða. Konur aftur á móti skilgreina sig ekki út frá starfi sínu, stöðu eða menntun, heldur er það útlit þeirra, hjúskaparstaða og þyngd sem mótar þeirra sjálfsmynd. Af framansögðu ætti því að vera dagljóst að störf karlmanna eru mikilvægari en störf kvenna, og það gleður mig að stjórnvöld skuli gera sér grein fyrir því.

Einhverjir hafa bent á að ríkið sé, með því að skera niður í heilbrigðiskerfi á sama tíma og dýrar framkvæmdir eru áformaðar, einungis að færa fé úr einum vasa í annan, en það er allsendis ósatt.

Það sem þarf að einblína á núna er að koma samfélaginu í gang aftur eftir hrunið. Til þess þarf að dæla peningum út í samfélagið með því að skapa atvinnu svo fólk fái laun, geti borgað af lánunum sínum og geti keypt vörur eða þjónustu, sem svo aftur skapar meiri atvinnu o.s.frv. Og það er löngu vitað að þeir peningar sem karlar fá greidda eru miklu betri en þeir peningar sem konur hafa á milli handanna. Peningar úr karlmannsveski eru miklu meira atvinnuskapandi en peningar úr kvenmannsveski, og fjármunir karlmanna koma hjólum atvinnulífsins fyrr og betur í gang en það fé sem kvenfólk aflar.

Þess vegna eru aðgerðir ríkistjórnarinnar nú hárréttar.

xoxo
-h

Og hér, svo ykkur finnist ég aftur sexí, fáið þið að sjá kloflausu nærbuxurnar mínar (myndin er tekin áður en ég klippti gatið).