Hola lovers,
Afsakið fjarveruna. Ég hef átt annríkt.
Ég ætla rétt að vona að þið hafið farið eftir laufléttum ráðleggingum mínum um hátíðirnar og ekki fitnað neitt (og helst grennst). En góð vísa er aldrei of oft kveðin, stundum er gott að skipta um tóntegund og því vil ég benda ykkur á nokkrar frábærar greinar sem birst hafa á Smartlandinu, vinasíðu Tískubloggsins, undanfarið. Lesendum mínum til hægðarauka hef ég dregið fram helstu atriði þeirra hér fyrir neðan.
Fyrsta ber að nefna greinina 9 leiðir til að verða besta útgáfan af sjálfri þér, sem ber reyndar svolítið misvísandi titil. Að óreyndu mætti ætla að hún fjalli um hvernig er hægt að verða betri manneskja, en sem betur fer er það ekki raunin. Greinin fjallar um útlit (enda skiptir auðvitað engu máli hvernig manneskja maður er ef maður er sætur). Í greininni má finna uppástungur að níu leiðum til þess að líta betur út og ber þar ef til vill hæst lið nr. 5, Drekktu grænan djús, og lið nr. 8, Borðaðu regnbogann.
Í greininni Vertu betri manneskja á 21 degi má finna ráðleggingar fyrir tvítyngda í fimm liðum. Ég verð reyndar að játa að ég er enn að reyna að komast að því hvað orðin „exchercise“ og „someting“ þýða. Að sama skapi hef ég aldrei séð sögnina „to attent“ í texta áður og viðurkenni jafnframt að orðalagið að „tosast í eitthvað nýtt“ er mér sömuleiðis framandi. En ég veit að Smartlandið á Mbl.is er faglegur og metnaðarfullur vefur sem myndi aldrei birta illa þýtt og óprófarkalesið drasl svo ég geri fastlega ráð fyrir því að vandinn sé, einsog þeir segja, mín megin.
Í 10 ráð til að tækla janúarljótuna er margt bitastætt að finna, en ég vil sérstaklega benda lesendum á liði 4 (Vönduð snið klæða af) og 5 (Hækkaðu þig upp) því einsog allir vita vilja allar konur líta út fyrir að vera bæði grennri og hávaxnari en þær raunverulega eru. Ég bið ykkur samt í guðsbænum um að hunsa algjörlega lið 7 (Falleg nærföt). Ég hef sagt ykkur áður að það er afar mikilvægt að tryggja karlmönnum sem best aðgengi að líkama ykkar öllum stundum og því heillavænlegast að sleppa hreinlega nærfatnaði og spara þeim þannig dýrmætan tíma í samförum sem þeir geta svo í staðinn notað annað hvort í ræktinni eða til þess að bæta forgjöfina.
Margir lesendur hafa vafalítið fengið snjallsíma í jólagjöf og því er vel við hæfi að enda þessa samantekt á því að minnast á greinina 8 ráð til að vera gordjöss á myndum, því einsog segir réttilega í upphafi hennar: „Í allri Instragram-, Twitter- og Facebook-menningunni skiptir máli að líta vel út á öllum myndunum sem vinir þínir eru taka og pósta jafnóðum daginn út og daginn inn.“ Af þessum átta óbrigðulu „leynitrix[um] sem leysa öll heimsins vandamál“ þykja mér tvö bitastæðust: nr. 4 (Skyggðu andlitið vel) og nr. 2, en þar er réttlilega bent á að „[e]f teknar eru af þér litmyndir skiptir mestu máli að hyljarinn sé með bleikum eða ferskjulituðum tónum“ (ath. leturbreyting síðuhaldara).
Gleðilegt ár.
xoxo
-h
Showing posts with label skammist ykkar. Show all posts

Tuesday, January 8, 2013
Friday, July 29, 2011
dásamleg afmælisgjöf frá aðdáanda
Hola lovers,
Tískublogginu var að berast þessi dásamlega afmælisgjöf í tilefni eins árs afmælis síðunnar.
Er þetta ekki fallegt?
Og hversvegna í ósköpunum hefur bara einn aðdáandi sent mér afmælisglaðning? Kunnið þið ekki að skammast ykkar?

Sunday, June 26, 2011
daily bobsession! o.fl.
Hola lovers,
Einsog þið munið kannski þá var eitt af þeim hógværu markmiðum sem ég setti mér í upphafi að eignast a.m.k. 1.000 aðdáendur á Facebook á fyrsta ári Tískubloggsins. Og það er því sannarlega kominn tími til að tilkynna ykkur (og þó fyrr hefði verið) að Tískubloggið á nú loks hvorki meira né minna en 1.049 aðdáendur á Facebook.
Ég verð þó að játa að þið hafið valdið mér þónokkrum vonbrigðum, lovers, því Tískubloggið verður eins árs í næsta mánuði svo þið létuð mig næstum renna út á tíma með þetta.
En ég fyrirgef ykkur að sinni og treysti því að þið munið leggja meiri metnað í aðdáun ykkar á mér á öðru starfsári Tískubloggsins.
Og nú er komið að liðnum sem allir hafa beðið eftir með öndina í hálsinum; daily bobsession!
P.s. framleiðendur ég er ekki búin að gleyma ykkur.

Sideshow Bob
P.s. framleiðendur ég er ekki búin að gleyma ykkur.
xoxo
-h
Tuesday, May 31, 2011
litið um öxl/opið bréf til framleiðenda og sjónvarpsstöðvaeigenda*
Hola lovers,
Þið trúið því kannski ekki, en eftir tæpa tvo mánuði verður liðið ár síðan ég stofnaði Tískubloggið.
Ég setti mér nokkur hógvær markmið í upphafi, og ég get með stolti sagt að ég hafi náð flestum þeirra.
Þau voru:
Því miður er orðið um seinan að ná kjöri á stjórnlagaþing, en markmiðið að ná 1.000 aðdáendum á Facebook er innan seilingar og raunar mjög raunhæft að ég nái því fyrir júlí. Mig vantar bara 60 aðdáendur til að ná uppí þúsund og þið sem eruð ekki orðin aðdáendur skuluð skammast ykkar og ýta síðan hér og bæta snarlega úr því (og þá fyrirgef ég ykkur þetta kannski). Einnig er ég afar vongóð um að vera boðið á hundatískusýningu bráðlega og hef verið í sambandi við þónokkra áhrifamikla aðila í þeim geira undanfarna mánuði og nokkrir af þessum aðilum hafa lýst yfir áhuga á því að kaupa hjá mér auglýsingar fyrir afar háar fjárhæðir.
Eftir stendur einungis eitt markmið: Að fá minn eigin sjónvarpsþátt.
Það er hreint út sagt til skammar að framleiðendur og sjónvarpsstöðvar hafi ekki ennþá séð sóma sinn í því að hafa samband við mig og bjóða mér frjálsar hendur, ótakmarkað fjármagn og besta sýningartímann. Ég stend nær ráðþrota gagnvart þessu vandamáli og sé sannast sagna ekki annað í stöðunni en að skrifa þeim opið bréf og birta hér á síðunni.
OPIÐ BRÉF TÍSKUBLOGGSINS TIL FRAMLEIÐENDA OG SJÓNVARPSSTÖÐVAEIGENDA.
*Þetta er fyrsta færslan á Tískublogginu sem inniheldur ekki neinar myndir. Það er með vilja gert, svo bara gáfað fólk lesi hana.

Verða besta tískublogg á Íslandi.- Taka sæti á stjórnlagaþingi og koma koma tísku inn í íslenska stjórnarskrá.
Verða besta megrunar- og lífstílssíða á vesturhveli jarðar.Verða ritstjóri eins af stærstu vefmiðlum á Íslandi.- Fá ógeðslega mikið af auglýsingatekjum af síðunni og verða rík.
Fá Pjattrófu til að viðurkenna yfirburði mína.Fá útgáfusamning.- Fá boð á hundatískusýningar í New York.
Fá senda kórónu frá SÍT (Sambandi íslenskra tískubloggara).Verða mér úti um styrktaraðila á síðunni og fá sent ókeypis gæludýrafóður.- Eignast 1.000 aðdáendur á Facebook.
Verða vinsælasta íslenska heimasíðan.Verða sameiningartákn allra íslenskra kvenna.- Fá minn eigin sjónvarpsþátt.
Eignast flott lógó.Skilgreina óendanleika á mannamáli, fyrst allra.Miðla af viskubrunni mínum.Koma kvenþjóðinni til bjargar.
Því miður er orðið um seinan að ná kjöri á stjórnlagaþing, en markmiðið að ná 1.000 aðdáendum á Facebook er innan seilingar og raunar mjög raunhæft að ég nái því fyrir júlí. Mig vantar bara 60 aðdáendur til að ná uppí þúsund og þið sem eruð ekki orðin aðdáendur skuluð skammast ykkar og ýta síðan hér og bæta snarlega úr því (og þá fyrirgef ég ykkur þetta kannski). Einnig er ég afar vongóð um að vera boðið á hundatískusýningu bráðlega og hef verið í sambandi við þónokkra áhrifamikla aðila í þeim geira undanfarna mánuði og nokkrir af þessum aðilum hafa lýst yfir áhuga á því að kaupa hjá mér auglýsingar fyrir afar háar fjárhæðir.
Eftir stendur einungis eitt markmið: Að fá minn eigin sjónvarpsþátt.
Það er hreint út sagt til skammar að framleiðendur og sjónvarpsstöðvar hafi ekki ennþá séð sóma sinn í því að hafa samband við mig og bjóða mér frjálsar hendur, ótakmarkað fjármagn og besta sýningartímann. Ég stend nær ráðþrota gagnvart þessu vandamáli og sé sannast sagna ekki annað í stöðunni en að skrifa þeim opið bréf og birta hér á síðunni.
OPIÐ BRÉF TÍSKUBLOGGSINS TIL FRAMLEIÐENDA OG SJÓNVARPSSTÖÐVAEIGENDA.
Kæru framleiðendur og sjónvarpsstöðvaeigendur,
Hvað haldið þið eiginlega að þið séuð? Vitið þið ekki hver ég er? Vitið þið ekki af hverju þið eruð að missa? Viljið þið ekki vera með hágæðasjónvarpsefni á besta tíma á sjónvarpsstöðvum ykkar? Viljið þið ekki velja íslenskt?
Nú hafið þið haft u.þ.b. tíu mánuði til að hafa samband við mig.
En hafið þið látið í ykkur heyra? Nei.
Hafið þið haft samband? Nei.
Hafið þið hringt í mig? Nei.
Hafið þið sent mér póst? Nei.
Hafið þið kommentað á bloggið? Nei.
Hafið þið pókað mig á Facebook? Nei.
Eruð þið aðdáendur mínir á Facebook? Nei.
Hafið þið viðskiptavit? Nei.
Gætuð þið ekki séð sóma ykkar í því að bjóða mér að minnsta kosti að vera með minn eigin þátt á mbl.is sjónvarpinu?
Netfangið mitt er tiskublogg@gmail.com.
Þið hafið þangað til kl. 16.40 þann 25. júlí 2011.
Fyrstur kemur, fyrstur fær, asshóls.
xoxo
-h
*Þetta er fyrsta færslan á Tískublogginu sem inniheldur ekki neinar myndir. Það er með vilja gert, svo bara gáfað fólk lesi hana.
Thursday, May 26, 2011
betra er seint en aldrei - fegrunarpistill fyrir Hernaðarandstæðinga
Hola lovers,
Fyrir ógeðslega löngu þá var ég beðin um að skrifa fegrunarpistil fyrir tímarit Hernaðarandstæðinga. Ég ætlaði að vera búin að birta hann fyrir löngu en gleymdi því.
En hér kemur hann núna. Afsakið biðina.
Hola lovers,
Ég er helsti sérfræðingur landsins í fegrunum, megrunum og tísku, og var því beðin um að leiðbeina ykkur um fallegt útlit og hvernig á að vera töff. Ég ákvað að taka þessari áskorun, þó ég telji að það séu afar litlar líkur á árangri (ég hef séð myndir af ykkur).
Ég vil byrja á því að hreinsa loftið og segja ykkur sannleikann; Það er ekki í tísku að vera hernaðarandstæðingur.
Því herir eru töff. Hermenn og -konur fá að vera í töff búningum með töff hárgreiðslu og þau fá að vera með töff byssur, þau fá að vita ýmis töff hernaðarleyndarmál á undan almúganum og herir skilja flestir homma og lesbíur útundan, sem er töff.
Það eru líka gerðar töff bíómyndir um hermenn og -konur þarsem þau bjarga litlum gyðingabörnum, vingast við flækingshunda í Írak og finna falleg lótusblóm í daunillum fenjum Víetnam.
Og ef hernaðarandstæðingar og her færu í slag þá held ég að við vitum öll hver myndi vinna.
Aukinheldur skemmdi það mannorð ykkar mikið þegar þið voruð á móti veru Bandaríkjahers hér á landi. Því það er ekkert minna í tísku í öllum heiminum en að vera á móti Bandaríkjunum, afþví að bandarísk þjóð er besta þjóð í heimi, afþví að Bandaríkjamenn fundu uppá Baconnaise.
Þannig að ef þið viljið vera töff er fyrsta ráðlegging mín til ykkar því að hætta að vera hernaðarandstæðingar.
Ef þið getið ekki hugsað ykkur að hætta því þá er það skásta í stöðunni að hætta að minnsta kosti að líta út einsog hernaðarandstæðingar og vona að enginn komist að þessari annarlegu hneigð ykkar.
Svona farið þið að því:
Innkaupalistinn:
Snyrtivörur sem innihalda mikið paraben. Þetta er hið allra nauðsynlegasta sem allir þurfa að eiga: dagkrem, næturkrem, síðdegiskrem, augnkrem, svitaholukrem, meik, púður, hyljari, augnskuggi, augnblýantur, eyeliner, undirmaskari til að þykkja augnhár, maskari, sólarpúður, kinnalitur, varablýantur, varalitur og gloss. (Ath. að þessi listi er ekki tæmandi)
Leggingsbuxur með tígrisdýramynstri. (Eða leggings úr alvöru tígrisdýri, ef þið hafið efni á því (eða úr einhverju meira töff dýri sem er í enn meiri útrýmingarhættu, einsog ísbirni (eða górillu)))
Latexgalli með hönskum og hettu.
Sjampó með miklum aukaefnum og helst í bleikum eða fjólubláum umbúðum. Hárnæring, djúpnæring, hárkrem, hársprey og vax úr sömu línu.
Spegill.
Hárbursti.
Augnháraplokkari.
Rakvél.
PC-fartölva frá þýskum framleiðanda sem hagnaðist á dularfullan hátt á tímum seinni heimsstyrjaldar.
Kaffi sem er ekki Fair Trade.
Þrennar blúndunærbuxur.
Farið síðan í dýrustu búðina á svæðinu, bendið starfsmanni á eina gínu og segið: „Ég ætla að fá allt sem hún er í í minni stærð“.
Farið í aðra búð og endurtakið leikinn.
Farið í þriðju búðina og endurtakið leikinn.
Þessi aðferð er ykkur nauðsynleg, því þið kunnið ekki að klæða ykkur einsog venjulegt fólk. Svona getið þið feikað það. Munið bara að taka mynd af gínunni (eða rissa hana upp, því ég efa að þið eigið farsíma með myndavél) svo þið vitið hvernig þið eigið að raða flíkunum saman þegar heim er komið. Ég ráðlegg ykkur einnig að biðja afgreiðslufólkið í búðinni að númera fyrir ykkur flíkurnar svo þið vitið í hvaða röð þið eigið að fara í þær.
Þegar heim er komið mæli ég með því að þið farið síðan á internetið í nýju tölvunni ykkar og skoðið myndbönd af því hvernig á að nota snyrtivörurnar sem þið keyptuð ykkur. Ef þið eigið þess kost skuluð þið einnig reyna að vingast við venjulega manneskju sem hefur töff skoðanir og fylgjast grannt með því hvernig hún klæðir sig, snyrtir og hegðar sér í daglegu lífi.
Þið skuluð einnig lesa daglega ráðleggingar mínar á Tískublogginu, tiskublogg.blogspot.com.
xoxo
-h
Fyrir ógeðslega löngu þá var ég beðin um að skrifa fegrunarpistil fyrir tímarit Hernaðarandstæðinga. Ég ætlaði að vera búin að birta hann fyrir löngu en gleymdi því.
En hér kemur hann núna. Afsakið biðina.
***
Ég er helsti sérfræðingur landsins í fegrunum, megrunum og tísku, og var því beðin um að leiðbeina ykkur um fallegt útlit og hvernig á að vera töff. Ég ákvað að taka þessari áskorun, þó ég telji að það séu afar litlar líkur á árangri (ég hef séð myndir af ykkur).
![]() |
| Rakaðu af þér skeggið. |
Því herir eru töff. Hermenn og -konur fá að vera í töff búningum með töff hárgreiðslu og þau fá að vera með töff byssur, þau fá að vita ýmis töff hernaðarleyndarmál á undan almúganum og herir skilja flestir homma og lesbíur útundan, sem er töff.
Það eru líka gerðar töff bíómyndir um hermenn og -konur þarsem þau bjarga litlum gyðingabörnum, vingast við flækingshunda í Írak og finna falleg lótusblóm í daunillum fenjum Víetnam.
Og ef hernaðarandstæðingar og her færu í slag þá held ég að við vitum öll hver myndi vinna.
Aukinheldur skemmdi það mannorð ykkar mikið þegar þið voruð á móti veru Bandaríkjahers hér á landi. Því það er ekkert minna í tísku í öllum heiminum en að vera á móti Bandaríkjunum, afþví að bandarísk þjóð er besta þjóð í heimi, afþví að Bandaríkjamenn fundu uppá Baconnaise.
Þannig að ef þið viljið vera töff er fyrsta ráðlegging mín til ykkar því að hætta að vera hernaðarandstæðingar.
Ef þið getið ekki hugsað ykkur að hætta því þá er það skásta í stöðunni að hætta að minnsta kosti að líta út einsog hernaðarandstæðingar og vona að enginn komist að þessari annarlegu hneigð ykkar.
Svona farið þið að því:
- Klippið af ykkur dreddana.
- Farið í bað.
- Notið sápu sem er ekki með umhverfisvottun og sem inniheldur mikið af lyktar- og litarefnum.
- Farið í hrein nærföt (ef þið eigið þau yfir höfuð til).
- Hendið öllu úr skápnum ykkar sem er úr hör eða hampi. Flíkur sem eru í karrígulum, heiðbláum, rústrauðum eða mosagrænum litum skal einnig henda. Heimasaumaðar flíkur skulu fara sömu leið.
- Hendið öllum flíkum sem á stendur Free Tibet.
- Hendið öllum flíkum sem eru með mynd af Che Guevara.
- Hendið varasalvanum ykkar.
- Klæðið ykkur í það sem þið finnið í skápnum sem líkist helst klæðnaði venjulegrar manneskju og farið í verslunarleiðangur í verslunarmiðstöð (það er bannað að fara á Laugaveg eða Skólavörðustíg).
Innkaupalistinn:
Snyrtivörur sem innihalda mikið paraben. Þetta er hið allra nauðsynlegasta sem allir þurfa að eiga: dagkrem, næturkrem, síðdegiskrem, augnkrem, svitaholukrem, meik, púður, hyljari, augnskuggi, augnblýantur, eyeliner, undirmaskari til að þykkja augnhár, maskari, sólarpúður, kinnalitur, varablýantur, varalitur og gloss. (Ath. að þessi listi er ekki tæmandi)
Leggingsbuxur með tígrisdýramynstri. (Eða leggings úr alvöru tígrisdýri, ef þið hafið efni á því (eða úr einhverju meira töff dýri sem er í enn meiri útrýmingarhættu, einsog ísbirni (eða górillu)))
Latexgalli með hönskum og hettu.
Sjampó með miklum aukaefnum og helst í bleikum eða fjólubláum umbúðum. Hárnæring, djúpnæring, hárkrem, hársprey og vax úr sömu línu.
Spegill.
Hárbursti.
Augnháraplokkari.
Rakvél.
PC-fartölva frá þýskum framleiðanda sem hagnaðist á dularfullan hátt á tímum seinni heimsstyrjaldar.
Kaffi sem er ekki Fair Trade.
Þrennar blúndunærbuxur.
Farið síðan í dýrustu búðina á svæðinu, bendið starfsmanni á eina gínu og segið: „Ég ætla að fá allt sem hún er í í minni stærð“.
Farið í aðra búð og endurtakið leikinn.
Farið í þriðju búðina og endurtakið leikinn.
![]() |
| Farðu í klippingu. |
Þegar heim er komið mæli ég með því að þið farið síðan á internetið í nýju tölvunni ykkar og skoðið myndbönd af því hvernig á að nota snyrtivörurnar sem þið keyptuð ykkur. Ef þið eigið þess kost skuluð þið einnig reyna að vingast við venjulega manneskju sem hefur töff skoðanir og fylgjast grannt með því hvernig hún klæðir sig, snyrtir og hegðar sér í daglegu lífi.
Þið skuluð einnig lesa daglega ráðleggingar mínar á Tískublogginu, tiskublogg.blogspot.com.
xoxo
-h
Monday, February 21, 2011
opið bréf til Lilju Ingibjargar og Hildar Lífar
Hola haters,Ég sá að þið eruð að fara að halda VIP-partý og senduð út boð fyrir helgi á Facebook. Ykkur hefur greinilega yfirsést að bjóða mér, sem er með ólíkindum.
Því ég þarf auðvitað ekki að segja ykkur að ég er frægasti og besti megrunar-, tísku- og lífstílsbloggari Íslands og held úti besta og vinsælasta fjölmiðli landsins, sem mun raunar færa út kvíarnar bráðlega og stofna sína eigin sjónvarpsstöð, sem bera mun heitið Ttískttíví (þar sem þið hafið nú fyrirgert möguleika ykkar á því að að vera með gestaþátt). Ég er einnig fyrrverandi ritstjóri vefritsins Eyjunnar, auk þess sem ég er verðandi metsöluhöfundur hjá virtu forlagi. Mér skilst aukinheldur að sá orðrómur að óútkomin lífstílsbók mín sé líklegasti kandídatinn í Bókmenntaverðlaun þessa árs hafi borist menningar- og tískuelítu landsins til eyrna í síðustu viku.
Aðdáendahópur minn er víðfemur og stór. Engin önnur en Hlín Einarsdóttir kallaði mig "krútt", Pjattrófurnar slógu um mig skjaldborg þegar rætinn aðili réðst á Tískubloggið á afar ósvífinn hátt, ég er helsti sérfræðingur landsins í hugmyndafræði Poetrix, ég hef farið í sleik við sex landsliðsmenn í fótbolta, fimm landsliðsmenn í handbolta, sængað hjá fjórum pólitíkusum í velgjörðarskyni á síðastliðnum tveimur vikum, ég hef verið sameiningartákn fyrir allar íslenskar konur í tæplega sjö mánuði, ég er einn virtasti heimspeðlisfræðingur veraldar, og svo mætti lengi telja.
Ég kann að hegða mér í sviðsljósinu og er orðin langþreytt á því að fara út að skemmta mér og lenda í því að einhver "almenningur" hangi utan í mér allt kvöldið.
Aftur á móti veit ég engin deili á ykkur, en ef þið biðjið mig fallega skal ég kannski kynna ykkur fyrir einhverjum af merkari aðdáendum mínum.
Facebook-síðu mína finnið þið hér. Ég býst við pósti frá ykkur eigi síðar en fyrir miðnætti í kvöld.
xoxo
-h
Thursday, October 14, 2010
til minningar um Hermann
Hola lovers,
Einsog þið vitið flest þá eru nú bráðum tvö ár liðin frá því að Hermann lést í eldsvoða.
Dauða hans bar brátt að. Ég hélt við ættum mörg ár eftir saman, og það var því mikið áfall að hann hafi fallið frá á svo vofeiflegan hátt þegar hann var ennþá í blóma lífsins. Ég held að ég muni aldrei ná mér að fullu eftir fráfall hans, en þó að manni finnist það allsendis ómögulegt á köflum, þá heldur lífið samt einhvernveginn áfram. Ég veit það núna.
Hermann var besti hundur sem hægt er að hugsa sér, og ég er þakklát fyrir hvern dag sem ég fékk að njóta félagsskapar hans á hans stuttu ævi.
Því vil ég biðja ykkur að taka nokkrar mínútur í ykkar daglega amstri og minnast hans hér í kommentakerfinu.
Það yrði mér mikils virði og ég veit að hann er uppá himnum og horfir niður á ykkur (og hann mun gefa þeim sem ekki skrifa illt auga, svo skammist ykkar).

| Hermann, ég mun alltaf elska þig. |
xoxo
-h
Monday, October 11, 2010
tískubloggið sniðgengið - framhald
Hola lovers,
Einsog ég skrifaði um í síðustu viku þá hafa Pjattrófurnar, sem eru einmitt helstu átrúnaðargoð mín og fyrirmyndir, sniðgengið Tískubloggið gróflega undanfarnar vikur með því að eyða athugasemdum mínum við færslur á síðunni umsvifalaust um leið og þær bárust. Eðlilega sárnaði mér nokkuð við þessa framkomu, einsog ég fjallaði ítarlega um í þessari færslu.
Ég er ekki ein af þeim sem tekur móðgunum þegjandi, enda lærði ég á sjálfstyrkingarnámskeiði Jónínu Ben að ef manni sárnar eitthvað þá á maður að segja þeim sem særði mann til syndanna, frekar en að sitja eftir með sárt ennið og bölva í hljóði.
Ég sendi þeim því eftirfarandi póst:
Þær hafa enn ekki svarað.
Þær halda sniðgöngu sinni við Tískubloggið áfram.
Það eru þeirra mannréttindi, en þetta er engu að síður ómanneskjuleg framkoma í garð minn og lesenda Tískubloggsins.
Þær kalla sig Pjattrófur og leggja mikið uppúr því að vera dömur. Þær eru meira að segja með greinaflokk á síðunni sem þær kalla „Samskipti“ þar sem þær benda konum á hvernig þær eigi að hegða sér á sem kurteislegastan, grennstan og mest aðlaðandi máta.
Því spyr ég; Kæru Pjattrófur, hvar er það talið dömulegt að hunsa kollega sína?
Svar óskast.
P.S. Til að gæta sanngirni verð ég að nefna að skömmu eftir að ég skrifaði þeim póst þá kommentaði ég einnig á þennan afar fræðandi pistil á Pjattrófublogginu. Ég var alveg viss um að þær myndu eyða því og þessvegna tók ég skjáskot af því til að eiga sem sönnunargagn. En mér til mikillar furðu þá fékk það komment að standa. Það þýðir kannski að þær hafi lesið póstinn frá mér, litið í eigin barm og ákveðið að endurskoða afstöðu sína til Tískubloggsins, en ekki nægilega mikið þó til að svara póstinum mínum. En þarsem ég á sönnunargagnið þá finnst mér synd að nota það ekki, og því fær skjáskotið að fylgja hér með.
Og þarsem ég hef oft horft á CSI Miami og veit hvursu mikilvæg sönnunargögn eru, þá tók ég líka skjáskot af ímeilinu sem ég sendi þeim og sendi tveimur aðilum sem ég treysti, svo sönnunargögnin myndu ekki glatast ef eitthvað skyldi koma fyrir mig.
P.P.S. Og til að allri sanngirni sé örugglega gætt (karma, þið vitið) þá varð hunsun Pjattrófanna mér til nokkurs góðs, þó afar sársaukafull hafi verið. Því sniðganga þeirra varð til þess að ég skilgreindi óendanleika fyrst allra og er nú að huga að frama á sviði heimspeðlisfræði ef Tískubloggið slær ekki í gegn.
P.P.P.S. Þetta sýnir okkur hvernig lífið getur stöðugt komið manni á óvart, og kennir manni jafnframt að stundum gerast hræðilegir hlutir ekki að ástæðulausu.
P.P.P.P.S. Pjattrófur, nýfundinn frami minn sem heimspeðlisfræðingur þýðir samt ekki að ég fyrirgefi ykkur.

Til: pjattrofur@eyjan.is
Frá: tiskublogg@gmail.com
Fyrirsögn: Afhverju má ég ekki vera með?
Dagsetning: 7. október 2010 13:46
Sælar Pjattrófur,
Foucault skrifaði að „sá sem hefur stjórn á orðræðunni mótar skoðanir og upplifun almennings á viðfangi hennar“.
Pjattrófubloggið er metnaðarfyllsta tísku- og megrunarbloggið á Íslandi í dag. Í athugasemdakerfi síðunnar myndast oft líflegar umræður og því má með sanni segja að síðan og höfundar hennar hafi mótað nútímahugmyndir um fegurð og kvenleika. Ég les hana oft á dag, en þorði ekki að taka þátt fyrr en eftir að ég stofnaði mitt eigið tískublogg síðla sumars. Þá fannst mér ég loks gjaldgeng í umræðunni og var tilbúin að taka þátt í að móta skoðanir almennings.
Ég skildi því eftir athugasemd við færslu um hvernig ætti að losna við hrukkur. Athugasemdinni var eytt. Ég skildi því eftir aðra athugasemd þarsem ég gerði athugasemd við að athugasemd minni hefði verið eytt. Þeirri athugasemd var einnig eytt. Ég íhugaði að skrifa athugasemd þarsem ég gerði athugasemd við að athugasemd minni um að athugasemd minni hefði verið eytt hefði verið eytt, en fannst það of flókið í framkvæmd svo ég ákvað að skrifa ykkur póst í staðinn.
Því spyr ég: Afhverju var athugasemdum mínum eytt og afhverju má ég ekki vera meðstjórnandi að orðræðunni?
Virðingarfyllst,
-h
Þær hafa enn ekki svarað.
Þær halda sniðgöngu sinni við Tískubloggið áfram.
Það eru þeirra mannréttindi, en þetta er engu að síður ómanneskjuleg framkoma í garð minn og lesenda Tískubloggsins.
Þær kalla sig Pjattrófur og leggja mikið uppúr því að vera dömur. Þær eru meira að segja með greinaflokk á síðunni sem þær kalla „Samskipti“ þar sem þær benda konum á hvernig þær eigi að hegða sér á sem kurteislegastan, grennstan og mest aðlaðandi máta.
Því spyr ég; Kæru Pjattrófur, hvar er það talið dömulegt að hunsa kollega sína?
Svar óskast.
P.S. Til að gæta sanngirni verð ég að nefna að skömmu eftir að ég skrifaði þeim póst þá kommentaði ég einnig á þennan afar fræðandi pistil á Pjattrófublogginu. Ég var alveg viss um að þær myndu eyða því og þessvegna tók ég skjáskot af því til að eiga sem sönnunargagn. En mér til mikillar furðu þá fékk það komment að standa. Það þýðir kannski að þær hafi lesið póstinn frá mér, litið í eigin barm og ákveðið að endurskoða afstöðu sína til Tískubloggsins, en ekki nægilega mikið þó til að svara póstinum mínum. En þarsem ég á sönnunargagnið þá finnst mér synd að nota það ekki, og því fær skjáskotið að fylgja hér með.
![]() |
| Sönnunargagn A. Smellið til að stækka. |
Og þarsem ég hef oft horft á CSI Miami og veit hvursu mikilvæg sönnunargögn eru, þá tók ég líka skjáskot af ímeilinu sem ég sendi þeim og sendi tveimur aðilum sem ég treysti, svo sönnunargögnin myndu ekki glatast ef eitthvað skyldi koma fyrir mig.
![]() |
| Sönnunargagn B. Smellið til að stækka. |
P.P.S. Og til að allri sanngirni sé örugglega gætt (karma, þið vitið) þá varð hunsun Pjattrófanna mér til nokkurs góðs, þó afar sársaukafull hafi verið. Því sniðganga þeirra varð til þess að ég skilgreindi óendanleika fyrst allra og er nú að huga að frama á sviði heimspeðlisfræði ef Tískubloggið slær ekki í gegn.
P.P.P.S. Þetta sýnir okkur hvernig lífið getur stöðugt komið manni á óvart, og kennir manni jafnframt að stundum gerast hræðilegir hlutir ekki að ástæðulausu.
P.P.P.P.S. Pjattrófur, nýfundinn frami minn sem heimspeðlisfræðingur þýðir samt ekki að ég fyrirgefi ykkur.
xoxo
-h
Wednesday, October 6, 2010
Lítið í eigin barm, fíflin ykkar
Hola lovers,
Styrktaraðili síðunnar er ekki nógu ánægður með mig. Honum finnst síðan ekki vera orðin nægilega vinsæl miðað við hvað hún er búin að vera lengi starfandi, og ef heimsóknarfjöldi fer ekki að aukast snarlega þá hótar hann því að hætta að styrkja skrifin.
Þetta er grafalvarlegt mál, því að kattamatur er dýr. (Já, styrktaraðili síðunnar er dýrafóðursframleiðandi. Vitiði hvað þetta sjitt kostar? Lítið í eigin barm áður en þið dæmið mig.)
Ég viðurkenni líka að þegar ég stofnaði þessa síðu þá hélt ég að Tískubloggið myndi vera orðið heimsfrægt þegar hér yrði komið sögu (en ég er þó farin að byggja mér upp alþjóðlegan lesendahóp, sem er ágætis byrjun þegar stefnt er að heimsyfirráðum). Planið var líka að lifa alfarið af skrifum á þessa síðu og fá sent fullt af fríu drasli og vera boðið til útlanda á hundatískusýningar o.s.frv. Og ég hafði svo mikla trú á þessu plani að ég sagði upp vinnunni um síðustu mánaðarmót því ég var handviss um að ég væri hvorteðer farin að hafa framfæri af bloggi þegar uppsagnarfresturinn minn rynni út. Auk þess er ég búin að leggja út í ýmiskonar fjárfestingar fyrir tískubloggið; kaupa mér naglalökk, hágæðamyndavél fyrir átfittpósta, fara í legnám o.fl.
Þessvegna hafa ég og styrktaraðili síðunnar gert með okkur samkomulag: Ég verð að blogga a.m.k. einusinni á dag. Annars hættir hann að styrkja mig.
Mér þykir afar miður að þetta hafi farið svona og að aðsóknin á síðuna hafi verið jafn dræm og raun ber vitni. Þetta er að vissu leyti mér að kenna, því ég hef ef til vill ekki verið nógu dugleg að uppfæra síðuna. En kæru lesendur, mest er þetta ykkur að kenna.
Þið hafið bara hreint ekki verið nógu dugleg að skoða síðuna og deila henni með vinum og vandamönnum. Finnst ykkur, í alvöru talað, eðlilegt að ég haldi ykkur uppi á ókeypis lesefni hérna á internetinu, og ÞIÐ LESIÐ ÞAÐ SVO EKKI EINUSINNI?!
FINNST YKKUR Í LAGI AÐ KETTIRNIR MÍNIR SVELTI?
Fleira var það ekki að sinni.
Eða jú annars.
Skoðið þessa mynd...
...og skammist ykkar.

Subscribe to:
Posts (Atom)