Friday, August 6, 2010

Frábær djúpnæring

Hár sem glansar af heilbrigði er fallegt. Hér er æðisleg og náttúruleg djúpnæring sem bæði nærir og verndar hárið. Það er gott að nota hana a.m.k. einu sinni í mánuði svo hárið sé alltaf fallegt og fínt.

Próteinrík djúpnæring:

270 gr túnfiskur í dós.
50 gr ólífur, fínt saxaðar.
5 gr capers, fínt saxað.
300 gr majónes.
1 tsk sinnep.
Steinselja.

Saxið ólívur og capers, hrærið majónesi og sinnepi saman. Blandið saman túnfiski, ólífum og capers í annarri skál og hrærið varlega svo túnfiskurinn fari ekki í mauk. Blandið majónesinu saman við.

Berið næringuna í nýþvegið hárið, setjið plastpoka yfir og sofið með næringuna í hárinu yfir nótt. Þegar þið skolið hana úr næsta morgun verður hárið glansandi heilbrigt.

Það var a.m.k. mín reynsla!

xoxo

-h

1 comment:

  1. Ég var að fara að prófa þetta en hætti við þegar ég sá að það var kapers í þessu. Það er ógeð!

    ReplyDelete